08.11.1954
Efri deild: 13. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 87 í B-deild Alþingistíðinda. (225)

10. mál, verðlagsuppbót á laun opinberra starfsmanna

Frsm. (Bernharð Stefánsson):

Herra forseti. Við 2. umr. þessa máls tók hv. 4. þm. Reykv. aftur brtt. sínar á þskj. 119 til 3. umr., í því skyni, að fjhn. athugaði þessar till. fyrir 3. umr. Nú hefur n. ekki unnizt tími til þess að taka þessar till. til meðferðar enn. Ég geri að vísu ráð fyrir, að það hafi ekki mikla þýðingu, að n. geri það, en ég bendi aðeins á þetta, og ef hv. flm. þessara tillagna óskar, að n. taki þær til athugunar, þá sé ég ekki annað en að það verði að fresta málinu nú. Mundi sennilega vera hægt að halda fund um málið í dag.