01.11.1954
Efri deild: 10. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 351 í C-deild Alþingistíðinda. (2336)
67. mál, útgerð togara
Brynjólfur Bjarnason:
Herra forseti. Ég vil ekki láta hjá liða að lýsa afstöðu minni til þessa frv. nú strax við 1. umr. málsins. Flokksmenn mínir í Nd. flytja frv. um togarakaup, sem er að vísu talsvert með öðrum hætti en þetta frv. og miklu víðtækara, og þeir hafa fært ýtarleg rök fyrir nauðsyn þess, sem ekki er nauðsynlegt að endurtaka hér. En samkv. því er gert ráð fyrir, að keyptir verði 10 nýir togarar og tveir þeirra smíðaðir innanlands og skulu vera af fullkomnustu gerð.
Nú þykir mér ánægjulegt, að hv. flm. þessa frv. hafa með flutningi þess fallizt á skoðun okkar sósíalista um nauðsyn þess að kaupa nýja togara, og er það mjög gleðileg hugarfarsbreyting hjá hv. framsóknarmönnum frá fyrri afstöðu þeirra til togarakaupa, sem öllum landsmönnum er kunn. Ég fellst fyllilega á rök hv. flm. og þau rök, sem færð voru fram í ræðu hv. frsm., og mætti færa fram mörg fleiri veigamikil rök málinu til stuðnings. Ég álít, að hér sé um mikið og aðkallandi nauðsynjamál að ræða fyrir íslenzka atvinnuvegi í heild sinni og fyrir þau byggðarlög sérstaklega, sem atvinnutækjanna eiga að njóta. Ég mun því eindregið fylgja þessu frv., enda þótt það gangi ekki eins langt og ég hefði kosið. Ég hef rætt þetta við flokksmenn mína, og ég get lýst því yfir hér, að Sósíalistaflokkurinn mun allur eindregið fylgja þessu frv. og að sá stuðningur er alveg skilyrðislaus. Hins vegar teldi ég mjög æskilegt, að á frv. yrðu gerðar nokkrar breytingar í meðferð málsins. Það er nauðsynlegt, eins og hv. frsm. hefur raunar sýnt fram á, að afla þessara tækja svo fljótt sem auðið er. Ég tel því, að ekki eigi að bíða eftir því, að fjár til togarakaupanna verði safnað í viðkomandi byggðarlögum, heldur eigi ríkið þegar í stað að festa kaup á skipunum og gefa síðan byggðarlögunum kost á að eignast þau með þeim kjörum, sem hér er gert ráð fyrir. Í frv. er hins vegar gert ráð fyrir því, að ekki verði stofnað til togarakaupanna fyrr en tilskildu hlutafé hefur verið safnað í byggðarlögunum eða þá það hefur mistekizt, en þá er samkv. 5. gr. ríkisstjórninni heimilt f. h. ríkissjóðs að kaupa og gera út allt að fjórum togurum til þess að leggja afla á land í verstöðvum, þar sem mikil nauðsyn er á aukinni atvinnu. Vegna þess, hve málið er aðkallandi, geri ég fastlega ráð fyrir því, að hv. flm. muni fúslega fallast á slíka breytingu á frv.
Ég vænti þess, að hv. flm. hafi ráðgazt um málið við flokk sinn, áður en þeir lögðu frv. fram, þannig að það eigi óskipt fylgi Framsfl. Í Nd. flytur einn hv. þm. Alþfl. ásamt einum hv. þm. Framsfl. frv. um togarakaup ríkisins, en sams konar frv. hefur áður verið flutt af hálfu Alþfl. Það frv. var að vísu með nokkuð öðrum hætti en þetta, en hefur þó sama markmið, þannig að ég tel víst, að Alþfl. muni eindregið fylgja þessu frv. Einn af hv. þm. Sjálfstfl. lagði nýlega ríka áherzlu á nauðsyn þess að afla nýrra togara í sambandi við till., sem hann flutti. Þegar á þetta er litið, virðist mér auðsætt, að frv. þetta ætti að hafa fylgi mikils meiri hluta þingmanna, þ. e. þingmanna Framsfl., Sósfl. og Alþfl. og væntanlega Sjálfstfl. líka eða .a. m. k. margra hv. þm. hans. Og ef flm. er það alvöru- og áhugamál, að það nái fram að ganga, þá vænti ég þess, að þeir sjái til þess, að meðferð þess í þinginu gangi með eðlilegum hraða. Ef hv. flm. vaka yfir því og sjá til þess, að það verði ekki látið daga uppi, en það er þeim auðvelt, ef þeir vilja, þá tel ég víst, að frv. þetta nái örugglega fram að ganga á þessu þingi.