19.11.1954
Sameinað þing: 18. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 8 í D-deild Alþingistíðinda. (2394)

105. mál, atkvæðagreiðsla að hálfu Íslands

Pétur Ottesen:

Það hefur verið upplýst í þessu máli af hæstv. utanrrh., að till. Dana um að innlima Grænland í Danmörku skýtur fyrst upp hér á Íslandi á s.l. sumri. Á fundi utanrrh. Norðurlanda, sem haldinn var hér, lagði utanrrh. Dana fram þessa till. Af hálfu Íslendinga var þarna aðeins einn atkvæðisbær fulltrúi, hæstv. utanrrh. Og hæstv. ráðh. hefur nú upplýst um það hér, hvernig atkvgr. á þessum fundi utanríkisráðherranna féll, nefnilega á þá lund, að utanrrh. Noregs og Svíþjóðar greiddu atkv. með þessari till., en fulltrúi Íslendinga sat hjá og lagði þar ekkert til mála.

Ég verð að segja, að það er mjög einkennileg afstaða, sem hæstv. ráðh. tekur í þessu máli, með tilliti til aðgerða í þessu máli á undanförnum áratugum. Málið hefur oft verið mjög rætt með íslenzku þjóðinni og verið gerðar um það ályktanir á Alþ., sem voru þess eðlis, að hæstv. ráðh. hafði hina ýtrustu skyldu til þess að gæta þar hagsmuna Íslendinga og gera ágreining um slíka till. sem þessa.

Annað er það og, sem ég vil benda á í þessu sambandi, og það er þegar ég á síðasta þingi bar fram till. um Grænlandsmál, sem hljóðaði á þennan veg:

„Alþ. ályktar að skora á ríkisstj. að bera nú þegar fram við ríkisstj. Danmerkur kröfu um, að hún viðurkenni full yfirráð Íslendinga yfir Grænlandi. Ef danska stjórnin fellst ekki á þá kröfu, lýsir Alþ. yfir þeim vilja sínum, að leitað verði um málið úrskurðar alþjóðadómstólsins í Haag.“

Þegar ég sá fram á það í þinglokin, að þessi till. mundi ekki fá afgreiðslu á þann hátt, sem ég hafði lagt til, að hún yrði samþykkt, bar ég fram utan dagskrár fyrirspurn til hæstv. utanrrh. um það, hvort ríkisstj. mundi, á meðan ekki væri tekin endanleg ákvörðun í Grænlandsmálinu, gera nokkra samninga við Dani, er vörðuðu Grænland, sem gætu orðið til þess að gera aðstöðu vora erfiðari í kröfum vorum til réttar á Grænlandi. Hæstv. ráðh. varð mjög fljótt og vel við því að gefa svör við þessari fyrirspurn minni, og þau svör hljóðuðu á þá lund, að ríkisstj. mundi ekki gera eða gerði ekki neina slíka samninga, er gætu veikt rétt vorn til þessarar kröfu.

Nú þegar þetta mál ber þannig að, að Íslendingar komast í fyrsta skipti í færi við þetta mál, sem sé á þessum ráðherrafundi, þá lít ég svo á, að það hafi verið í algeru ósamræmi við yfirlýsingu hæstv. ráðh. í þinglokin í fyrra, að hann viðhefur þá aðferð, sem hann hafði þar, að sitja hjá og láta málið afskiptalaust af hálfu Íslendinga. Þetta vil ég taka mjög skýrt fram.

Nú hefur þetta haldið þannig áfram. Málið kemur svo fyrir gæzlunefnd allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna, sem nú situr vestur í Ameríku, og fulltrúi Íslendinga í þessari nefnd fetar í fótspor hæstv. ráðh. og situr einnig hjá.

Nú er að því komið, að tekin verði endanleg afstaða til þessa máls á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Þá er það fyrst, sem ríkisstj. boðar hér til fundar í dag — fyrst lokaðs fundar — og tilkynnir um þetta og leitar eftir áliti Alþ. um það, hvernig ríkisstj. eigi að leggja fyrir fulltrúa vora um atkvgr. um þetta mál á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Og nú er á þessum opna fundi, sem nú er að byrja, komin fram till. frá hæstv. ríkisstj. um það, að þessi leikur skuli enda eins og hann byrjaði, að Íslendingar láti málið ekki til sín taka, sitji hjá, sem vitanlega getur þýtt það og ekkert annað, að þeir leggi blessun sína yfir það, að allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna samþykki innlimun Grænlands í Danmörku, að Íslendingar leggi blessun sína yfir þetta með þeim hætti að sitja hjá, sem hæstv. ráðh. hefur sagt að sé alveg það sama og greitt væri atkv. með till.

Það hefur nú um langt skeið verið rætt um það hér, að Íslendingar ættu rétt til Grænlands og að oss bæri að hefja baráttu fyrir endurheimt þessa lagalega réttar vors. Að þessu hafa, eins og alkunnugt er, staðið margir þjóðkunnir menn og þ. á m. sumir þeirra manna, sem hafa verið í fararbroddi alla sína tíð í sjálfstæðisbaráttu þessarar þjóðar og sumir átt þátt í að leiða það mál farsællega til fullra lykta. Alþ. hefur gert samþykktir, er taka undir þessar réttarkröfur. Þannig var 1931 samþ. þáltill. frá Jóni heitnum Þorlákssyni, sem hljóðar svo:

„Alþ. ályktar að skora á ríkisstj. að gæta hagsmuna Íslands út af deilu þeirri, sem nú er risin milli stjórna Noregs og Danmerkur um réttindi til yfirráða á Grænlandi.“

Og Jón Þorláksson endaði grg. sína fyrir þessu máli með þessum orðum, með leyfi hæstv. forseta:

„Ég hef fyrir mitt leyti ekki ástæðu til að vænta annars en að Íslendingar geti í þessu efni haft góða aðstöðu til þess að halda öllum sínum rétti.“

Þessu máli var þá vísað til utanrmn., sem skipuð var sjö mönnum, þjóðkunnum mönnum, og einn meðal þessara manna var hæstv. forsrh., Ólafur Thors. N. lagði einróma til, að þessi till. væri samþ., og hún var svo eftir till. n. afgreidd frá Alþ. með shlj. atkv. Þannig lýsti Alþ. þá afstöðu sinni til réttarkröfu til Grænlands.

Áður hafði á Alþ. verið samþ. till., sem hné mjög í þessa sömu átt og m. a. fól í sér að skipa n. til þess að rannsaka réttarstöðu Grænlands. Málinu hefur oft verið hreyft á Alþ. síðan, og þó að það hafi ekki fengið þar endanlega afgreiðslu, hefur aldrei bólað á neinni till. eða ályktun, sem gengi í öfuga átt við það, sem Alþ. lýsti yfir og ályktaði 1931.

Sú n., sem fjallaði um þáltill. þá, sem ég flutti og las hér upp áðan, lagði að vísu ekki til, að till. yrði samþ., heldur að henni yrði vísað til ríkisstj. Það var fjarri því, að í rökstuðningi fyrir því að vísa till. til ríkisstj. fælist nokkur vefenging á þeim vilja, sem fram hafði komið í ályktunum Alþ. í þessu máli áður, heldur blátt áfram viðurkenning á því. Segir svo í þessu nál. m. a., með leyfi hæstv. forseta:

„Alþ. hefur oftar en einu sinni gert ályktanir um þetta mál og aldrei afturkallað þær. Standa þær því enn í fullu gildi. N. sér því ekki, að ný þál. um málið geti haft verulega þýðingu, heldur sé mest undir framkvæmdinni komið,“ þ. e. að framkvæma áður yfirlýstan vilja Alþ. í þessu máli.

Á þessum grundvelli er það, sem n. lagði til að málinu yrði vísað til ríkisstj.

Ég ætla ekki að fara langt út í að ræða um þetta, en þetta voru atriði í málinu, sem ég tel að alveg sé rétt að komi hér fram til glöggvunar á því, hvernig á þessu máli hefur verið haldið hér að undanförnu. Og þessa mátti hæstv. utanrrh. minnast, þegar hann sat fund hér með Dönum, sem notuðu tækifærið — hér á íslenzkri grund — til þess að fá fyrstu samþykkt á þessari till. sinni. Mátti hann vel minnast þess, að þetta var sá bakhjallur í þessu máli, sem hann átti að taka tillit til og haga sér eftir í þjónustu við sína þjóð.

Það er þess vegna fyrst nú, sem þeim selshaus skýtur upp úr gólfinu hér í sölum Alþingis, þegar Danir leita á náðir stofnunar, sem Íslendingar eru líka aðilar að, um, að sú stofnun samþykki, að þeir innlimi Grænland í Danmörku, — það er fyrst þá, sem alveg óvænt og skyndilega bólar á straumhvörfum og stefnuskiptum í þessu máli hér á Alþ. Það byrjar, eins og ég sagði áðan, á þessum fundi norðurlandaráðherra, sem þá var haldinn hér á íslenzkri grund. Og byrjunin er sú, eins og ég hef áður lýst, að fulltrúi Íslendinga situr hjá við atkvgr. um innlimunina og lætur sig málið af hálfu Íslendinga engu skipta.

Svo heldur þetta áfram. Nú virðist ríkisstj., eftir því sem ráða má af þeirri till., sem hér liggur fyrir, syngja í kór: Danir eiga allan réttinn. Íslendingar eiga engan rétt. — Og ríkisstj. ætlast til, að Alþ. verði þátttakandi í þessum söngkór. Það er ekki vert að spá neinu um það, hvernig sú atkvgr. fer hér, en ég vil aðeins benda á það, sem ég hef áður sagt, að þá skýtur skökku við þann tón, sem áður hefur kveðið við á Alþ. í þessu máli, ef ályktunin verður nú sú: Danir eiga allan réttinn, Íslendingar engan.

Eftir þessari till. að dæma eða orðalagi hennar verður ekki annað séð en að þetta sé hálfgert feimnismál hjá hæstv. ríkisstj., samkv. niðurlagi till., eftir að búið er að tala um, að fyrirmælin héðan að heiman eigi að verða þau að sitja hjá við atkvgr. „um ályktun gæzluverndarnefndar varðandi það, að Dönum beri ekki lengur að senda skýrslur um Grænland til Sameinuðu þjóðanna.“ Það er talað um það, að köttur fari stundum í kringum heitan soðpott. Hér kemur að þessu leyti ákaflega skýrt fram eðli kattarins. Hér er verið að reyna að komast fram hjá því, sem er nakinn og ber sannleikurinn í þessu máli, og það er ekkert annað en það, að hér er farið fram á, að Íslendingar leggi blessun sína yfir innlimun Grænlands í Danmörku, því að vitanleg forsenda þess, að Danir þurfi ekki að gefa neina skýrslu um Grænland, er það, að Grænland sé innlimað í Danmörku. Ég vildi aðeins benda á þetta.

Ég skal svo ekki hafa þessi orð öllu fleiri, því að á örlagastundu er það svo, að það veltur ekki yfirleitt á mörgum orðum, heldur því, að menn athugi vel sitt ráð um þá hluti, sem gilda í hverju máli og lengi á að búa að.

Ég vil þess vegna leyfa mér að bera hér fram brtt. við till. hæstv. ríkisstj. og leggja hana fram skriflega og biðja hæstv. forseta að koma henni á framfæri við atkvgr. Till. mín er sú, að tillgr. orðist svo:

„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að leggja fyrir fulltrúa Íslands á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna, er nú situr, að mótmæla með atkvæði sínu innlimun Grænlands í Danmörku.“ Fyrirsögn till. orðist svo:

„Till. til þál. um afstöðu fulltrúa Íslands á þingi Sameinuðu þjóðanna varðandi Grænland.“

Vil ég svo leyfa mér að afhenda hæstv. forseta þessa till. mína til fyrirgreiðslu.