19.11.1954
Sameinað þing: 18. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 24 í D-deild Alþingistíðinda. (2400)

105. mál, atkvæðagreiðsla að hálfu Íslands

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Herra forseti. Ég vildi gjarnan segja hér fáein orð um málið, en ekki vera langorður.

Það hefur verið vitnað nokkuð til þess, einkum af hv. þm. Borgf. (PO) og nokkuð af hv. síðasta ræðumanni, 6. landsk. þm. (FRV), hvað Alþ. hefur áður ályktað um hið svokallaða Grænlandsmál. Hv. þm. Borgf. vildi túlka þær samþykktir þannig, að á undanförnum árum hefði verið hrein afstaða hv. Alþ. í málinu og þá sú, að Íslendingar ættu rétt til yfirráða á Grænlandi. Ég geri fastlega ráð fyrir því, að það, sem hv. þm. vitnar til, sé það, sem lengst gengur í þessa átt. Ég geng þess ekki dulinn, að hv. þm. mundi ekki leyna neinu, sem lengra gengur í þá stefnu, sem hann vill halda í málinu, en það, sem hann greindi hér í umr. Hann vitnaði fyrst til þáltill., sem flutt var hér af Jóni heitnum Þorlákssyni og samþykkt. Efni hennar er: „Alþ. ályktar að skora á ríkisstj. að gæta hagsmuna Íslands út af deilu þeirri, sem nú er risin milli stjórna Noregs og Danmerkur um réttindi til yfirráða á Grænlandi.“ Þessi tillaga var samþykkt í sambandi við þau átök, sem þá voru í uppsiglingu á milli Dana og Norðmanna um þetta mál. En hvað var svo gert út af þessari þáltill.? Mér vitanlega ekki annað en það, sem hv. landsk. þm., sem talaði hér næst á undan mér, greindi frá, sem sé yfirlýsing birt í þá átt, að Íslendingar teldu sig hafa hagsmuna að gæta í sambandi við það, hvað ofan á yrði um Grænlandsmálin. Engin afskipti hygg ég að hafi farið fram samkvæmt þessari þáltill. af málflutningnum fyrir Haagdómstólnum né yfirleitt nokkurt innlegg lagt fram í málið út af henni, og vissulega engin krafa gerð um Grænland. Það mun hafa orðið niðurstaða þeirra manna, sem athuguðu málið út af þáltill., að það væri ekki grundvöllur af Íslands hendi til þess að gera slíkt.

Þá vitnaði hv. þm. næst til þess, að hann hefði á síðasta þingi borið fram þáltill., sem að vísu hlaut ekki afgreiðslu, en allshn. þingsins fjallaði um og skilaði áliti um. Þegar þessi þáltill. var flutt, höfðu Danir alveg nýlega innlimað Grænland, alveg nýlega sameinað Grænland Danmörku með nýrri stjórnarskrá. Það hefði því sannarlega verið ástæða til fyrir hv. Alþ., ef það hefði verið sömu skoðunar og hv. þm. Borgf., að afgreiða þáltill. hans jákvætt, en fresta henni ekki. En hvað gerðist á Alþ. þá? Allshn. skilaði áliti, eins og ég sagði áðan, lagði til að vísa till. til ríkisstj. með þeim rökstuðningi nánast, að allt ylti á því, hvernig haldið væri á málinu í samningum við Dani. Með þessum rökstuðningi stóð til að vísa málinu til ríkisstj., en málið hlaut ekki afgreiðslu.

Ekki var gert tilkall til Grænlands með þessari afgreiðslu.

Hér liggur fyrir þáltill. frá ríkisstj. um, að Alþ. samþykki, að fulltrúar Íslands sitji hjá við atkvæðagreiðslu varðandi Grænland, sem fyrir dyrum stendur á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Hér liggja nú einnig fyrir tvær brtt. frá mönnum, sem eru annarrar skoðunar. Önnur þeirra er frá þeim manni, sem fastast hefur haldið því fram hér á hv. Alþ., að Íslendingar ættu yfirráðarétt á Grænlandi. Hin er frá þeim hv. þm., sem talaði hér áðan, öðrum þræði mjög ákveðið í sömu stefnu. Um hvað eru svo þessar brtt.? Við hefðum mátt vænta þess, að brtt. væru um það að nota nú tækifærið á þingi Sameinuðu þjóðanna til þess að bera fram kröfuna til Grænlands, til þess að láta segja það sama þar, sem þessir hv. þm. hafa sagt hér í þingsölunum: að Íslendingar ættu rétt til þess að ráða yfir Grænlandi og þá auðvitað án tillits til þess, hvað Grænlendingum sjálfum kynni að sýnast. En nú bregður svo einkennilega við, að brtt. eru alls ekki um þetta. Þær eru um það eitt að greiða atkvæði gegn viðurkenningu Sameinuðu þjóðanna á innlimun Grænlands í danska ríkið. En þessir skeleggu bardagamenn fyrir réttindum Íslendinga til Grænlands leggja það ekki til, að lagt sé fyrir okkar menn á þingi Sameinuðu þjóðanna að flytja þar það, sem þeir kalla okkar rétt. Af hverju er þetta? Við skiljum ákaflega vel, af hverju þetta er. Það er vitanlega í raun og veru svo, að þegar til kemur, þá kinoka þessir hv. þm. sér við — og það er ekkert undarlegt — að láta leggja það fyrir fulltrúa Íslands á þingi Sameinuðu þjóðanna að standa þar upp og halda því fram, að við eigum rétt til þess að ráða yfir Grænlandi án tillits til þess, hvað íbúar þess vilja. Þeir kinoka sér við að leggja þetta til, og það er ekki nema eðlilegt. Ég er ekki að lasta það. En þessar brtt. bera það alveg greinilega með sér, að þannig er þetta vaxið. Þegar til á að taka hika menn við að senda menn út með þennan boðskap. Við vitum á hinn bóginn ákaflega vel, til hvers þessar brtt. eru fluttar, hverju þær eiga að þjóna. Þær eru til heimabrúks. Þær eru til þess, að hv. þm. geti lagt þær út og haldið því fram hér heima fyrir, að þeir séu sérstaklega þjóðhollir og vilji standa fast á rétti Íslands, en hinir, sem hreinskilnislega segja í heyranda hljóði, að við getum ekki gert kröfu til þess að ráða yfir Grænlandi, séu aftur á móti ekki jafnþjóðhollir og séu til þess búnir að afsala réttindum Íslands til yfirráða á Grænlandi. Þannig er þetta og þannig hefur verið og verður haldið á þessu máli. Við heyrðum hljóðið í hv. síðasta ræðumanni, og kem ég ofur lítið nánar að hans ræðu, því að hún var satt að segja í mesta máta undarleg. Þar kemur þessi tvískinnungur, þetta alvöruleysi í málinu mjög glöggt fram og miklu gleggra en hjá hv. þm. Borgf. (PO).

Þessi hv. þm. (FRV) flutti fyrst langa ræðu um sjálfsákvörðunarrétt þjóðanna, hvað hann væri þýðingarmikill, og hann brýndi raustina og sagði: Hefur grænlenzka þjóðin verið spurð að því, hvort hún vildi verða hluti af danska ríkinu? Hefur grænlenzka þjóðin verið spurð? sagði hv. þm. Síðari hluti ræðu hv. þm. var aftur á móti allt annars eðlis. Hann var röksemdafærsla fyrir því, að við mundum eiga rétt til þess að ráða yfir Grænlandi. Þegar þar var komið ræðu hv. þm., var hann sem sé algerlega búinn að gleyma grænlenzku þjóðinni, sem hann talaði svo fjálglega um í fyrri hluta ræðunnar. Hvar var grænlenzka þjóðin með sjálfsákvörðunarréttinn, þegar þessi hv. þm. var að bollaleggja um, að Íslendingar ættu að gera kröfu til þess, að þeirra sögulegi réttur til Grænlands væri virtur, sem vel gæti verið þannig vaxinn, að þeir ættu fulla heimtingu á því að ráða yfir landinu. Er nú ekki hollast fyrir þennan hv. þm. og okkur alla að gera okkur grein fyrir því og játa í fullri hreinskilni, að allt þetta tal um réttinn til þess að ráða yfir landi, sem annað fólk byggir, — allt þetta tal samrýmist alls ekki afstöðu þeirri, sem Íslendingar hafa um sjálfsákvörðunarrétt þjóðanna? Það er ekki hægt að gera hvort tveggja: halda því fram, að allar þjóðir eigi heilagan rétt til sjálfsákvörðunar í málum sínum öllum, og svo hinu í sömu andránni, að við eigum rétt til þess að taka undir okkur Grænland, alveg án tillits til þess, hvað íbúunum þar kynni að sýnast. Það er furðulegt, þegar þeir hv. þm., svo sem síðasti ræðumaður (FRV), sem halda þessu fram samtímis, eru að tala um tvískinnung og að aðrir fari hjá sér í málinu eða annað álíka smekklegt.

Hv. þm. Borgf. hefur það fram yfir, að hann hefur þó alltaf haldið sér við nýlendusjónarmiðið eitt, að við ættum rétt til þess að ráða yfir Grænlandi, en hefur ekki gert tilraun til þess að leika svo tveim skjöldum sem hv. síðasti ræðumaður. Þó leggur hann nú ekki til beinlínis, að þetta sjónarmið sé flutt á þingi Sameinuðu þjóðanna.

Ég sagði áðan, að við vissum, hverju ætti nú að halda fram hér heima fyrir. Ég sagði, að þessar brtt. væru ætlaðar til heimabrúks, og við það stend ég. Þær bera það alveg greinilega með sér og yfirleitt öll málsmeðferð varðandi Grænlandsmálið lengi undanfarið af hendi þessara aðila.

Ef vér ætlum að snúast gegn till. á þingi Sameinuðu þjóðanna út frá sjónarmiði þeirra, sem halda því fram, að við eigum Grænland, þá yrðum við að láta okkar menn hjá Sameinuðu þjóðunum bera fram kröfu til landsins eða halda því fram þar, að við eigum rétt til þess að ráða yfir Grænlandi, annaðhvort með því að halda Grænlandi sem nýlendu eða innlima Grænland í íslenzka ríkið. Nú hefur ein höfuðröksemd okkar Íslendinga í frelsisbaráttunni verið sjálfsákvörðunarréttur okkar sem annarra þjóða. Höfuðregla Sameinuðu þjóðanna er sjálfsákvörðunarréttur þjóðanna, og auðvitað er ekkert smáþjóðum jafndýrmætt og þessi regla, sé hún höfð í heiðri. Ætti nú að fara eftir því, sem hv. flm. brtt. halda fram hér heima fyrir, yrði minnsta þjóðin innan samtaka Sameinuðu þjóðanna að láta fulltrúa sína rísa upp og gera landakröfur, sem ganga í bága við sjálfsákvörðunarréttinn, kröfur um að ráða yfir landi annarra manna, að þeim gersamlega forspurðum.

Ég get ekki hugsað mér, að Íslendingar vilji gera sig að undri í augum heimsins með því að halda þessu fram á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Ég vil að minnsta kosti ekki ljá mitt fulltingi til þess og óska, að það komi hér alveg hreinlega fram. Ef við gerðum fyrirvara í þessa stefnu eða greiddum atkv. á móti till. þeirri, sem á að leggjast fyrir, með því að impra á landakröfum á hendur Grænlendingum, þá göngum við beint á móti einu grundvallaratriði í samstarfi Sameinuðu þjóðanna og skipum okkur í hóp þeirra þjóða, sem krefjast þess að fá að sitja yfir annarra hlut.

Það eru svo aðrir þættir í þessu máli, sem sumum kynni að sýnast sem máli mundu skipta:

1) Að Haagdómurinn hefur dæmt Dönum yfirráð á Grænlandi, án þess að Íslendingar gerðu þá kröfu til landsins, þótt grundvöllur fyrir slíkri kröfu væri þá gaumgæfilega athugaður hér samkv. þál. þeirri, sem hér hefur verið dregin inn í umr.

2) Að Íslendingar hafa mótmælalaust séð Dani sameina Grænland danska ríkinu.

3) Að landakröfur Íslendinga ættu að byggjast á mörg hundruð ára gömlum samskiptum Grænlendinga og Íslendinga.

4) Að valdir lögfræðingar íslenzkir hafa komizt að þeirri niðurstöðu, að Íslendingar eigi ekki kröfu til Grænlands.

5) Að enginn hefur fært vott af rökum fyrir því, að Íslendingar hefðu möguleika á því að sjá sómasamlega fyrir málefnum Grænlendinga eins og nú stendur, ef þeir gerðu kröfu um, að Grænland yrði undir Íslendinga lagt, og sú krafa yrði tekin alvarlega og okkur afhent landið og þjóðin, sem býr á landinu. Væntanlega ætlast menn ekki til þess, að Grænlendingum verði sópað út af landinu, um leið og það yrði afhent Íslendingum?

En við skulum sleppa þessu, þó að þetta séu auðvitað engin smáatriði. Við skulum til hægðarauka halda okkur við það eitt, að Íslendingar létu sína menn á þingi Sameinuðu þjóðanna halda því fram, að Ísland ætti rétt til yfirráða á Grænlandi, rétt til Grænlands. Það gæti ekki þýtt annað en að Íslendingar gerðu kröfur til þess, að Grænlandi væri ráðstafað til þeirra, hvað sem Grænlendingar segðu. Hvernig gæti þjóð með okkar sögu látið fulltrúa sína í alþjóðasamtökum halda slíku fram án þess að bíða stórfelldan álitshnekki og tjón á sálu sinni? Þetta er blátt áfram ekki hægt, að mínu viti. Undir slíku mundum við aldrei rísa, og af því mundum við hljóta varanlegan álitshnekki og skaða.

Það hefur verið imprað á því, þó að það hafi ekki verið gert hér í síðustu ræðum, að við ættum að hafa einhvers konar fyrirvara um ótiltekinn eða óútskýrðan rétt í Grænlandi til landsafnota, — rétt, sem við gætum tekið okkur, krafizt okkur til handa, án tillits til þess, hvað Grænlendingar vildu. En við skulum gæta vel að því, hvað við værum að gera með því að halda þessu fram á alþjóðavettvangi.

Fáar þjóðir hafa meiri hagsmuna að gæta í þessu sambandi en einmitt við Íslendingar. Fáar þjóðir eiga meira undir því en við, að það sé skilyrðislaust viðurkennt, að engin þjóð eigi af hagsmunaástæðum eða vegna hefðar nokkurn minnsta rétt í landi annarrar þjóðar eða til sjávargagns við strendur annarrar þjóðar. Tilvera okkar sem sjálfstæðrar þjóðar byggist að mínu áliti bókstaflega á því, að þessi meginregla sé viðurkennd og höfð í heiðri, og á því byggist afstaða okkar í landhelgismálinu m. a., að þessi regla sé í heiðri höfð. Allra sízt sæti því á okkur að gera nokkuð það, sem veikt gæti þessa reglu og baráttu okkar fyrir henni.