19.11.1954
Sameinað þing: 18. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 50 í D-deild Alþingistíðinda. (2409)

105. mál, atkvæðagreiðsla að hálfu Íslands

Utanrrh. (Kristinn Guðmundsson):

Herra forseti. Aðeins örfá orð. — Hv. þm. Borgf. hélt því fram, að við hefðum varðveitt rétt okkar í aldir til Grænlands. Ég vil nú spyrja: Á hvaða hátt höfum við varðveitt okkar rétt? Með aðgerðaleysi? Heldur hv. þm. Borgf., sem er góður og gegn bóndi, ef hann væri í landamerkjamáli við nágranna sinn, að hann gæti alltaf skotið því á frest að láta skera úr því? (PO: Meðan ekki er skorið úr því, þá er það þó óútkljáð.) Það eru áreiðanlega takmörk fyrir því, hve lengi er hægt að draga eitt mál, án þess að sé skorið úr því. Hv. þm. veit það, ef hann vill tala um málið af alvöru og hreinskilni, að það hefur alltaf vantað meiri hluta fyrir þessu máli hér í þinginu. Þess vegna er komið eins og komið er. Menn hafa farið hjá sér hér í þinginu, þegar þetta mál hefur verið flutt, því að þeim hefur fundizt það svo mikil fjarstæða. Þess vegna hefur þingið alltaf kosið þá leið að hafa undanbrögð í þingsályktunum eða láta málið daga uppi. Ef það hefði verið nokkur alvara í þessu máli, þá væri fyrir löngu búið að fara þá leið, sem hv. þm. Borgf. hefur bent á, að fara í mál. En þetta hefur ekki verið gert. Og það er alveg ótækt og fráleitt að hugsa sér, að það sé hægt að draga það í áratugi að koma fram með kröfu og gera hana gildandi. Ég skil ekki það réttarfar.

Hv. þm. leyfði sér að segja, að ég hefði lagt grundvöll að því, að við töpuðum rétti til Grænlands. Þetta finnst mér nokkuð stór orð: Þessari skoðun hans mótmæli ég harðlega. Hann hefur enga ástæðu til þess að bera þetta á mig. Og þar sem hann minntist aftur á afstöðu mína á fundi utanríkisráðherranna, þá þarf ég ekki að fara að endurtaka það, sem ég sagði áðan.

Það sanna í málinu er það, að hv. þm. og fáeinir menn aðrir hafa einstaka sinnum verið háværir um þetta mál, en ekki fylgi því eftir: Nú þegar að því er komið, að hv. Alþ. taki afstöðu til málsins í alvöru, þá virðast þeir fara upp af hjörunum. Hann lýsti því yfir, að hann hefði haft fulla sókn í þessu máli, en ekkert orðið ágengt, en það er af því, að hann hefur alltaf verið í stórum minni hluta hér á þinginu.