19.11.1954
Sameinað þing: 18. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 54 í D-deild Alþingistíðinda. (2412)

105. mál, atkvæðagreiðsla að hálfu Íslands

Utanrrh. (Kristinn Guðmundsson):

Herra forseti. Það eru aðeins fá orð. Mér fannst, að hv. 6. landsk. teldi það óvirðulegt af Íslendingum að sitja hjá við atkvæðagreiðsluna hjá Sameinuðu þjóðunum um Grænland. Ég vil bara benda honum á, að það er mjög algengt, að fulltrúar sitji hjá við atkvæðagreiðslu um mál hjá Sameinuðu þjóðunum.

T. d. þegar Grænlandsmálið var afgreitt í 4. nefndinni, þá sátu hvorki meira né minna en 12 þjóðir hjá og 10 mættu ekki, en,það er oft talið sama og hjáseta; sumir kjósa heldur að mæta ekki. (Gripið fram í.) Ég skal ekkert um það segja, hvort þeim hefur ekki fundizt, að hér væri einnig að ræða um einhver „prinsip“-mál.

Hv. þm. taldi, að með þessari yfirlýsingu hefðum við ekkert meira um Grænland að segja. Ég mótmæli því. Við erum einn af 60 meðlimum Sameinuðu þjóðanna og höfum jafnrétthátt atkvæði um Grænland og önnur mál þar eins og hver önnur þjóð.

Hv. þm. tæpti á því, hvort við mundum ætla að leita samninga við Dani um einhver fríðindi við Grænland. Ég minntist á það í framsöguræðu minni, að ég teldi það ekkert fráleitt. Þegar Norðmenn töpuðu sinni deilu við Dani, þá sýndu Danir drengskap mikinn við Norðmenn og sömdu við Norðmenn um ýmis réttindi í Grænlandi. En hvernig hefur málið verið nú undanfarið? Íslendingar hafa alltaf horfið frá því að semja við Dani um Grænland, vegna þess að vissir menn hafa látið það koma fram eða látið það á sér skilja, að það mundi þýða, að við afsöluðum okkur kröfuréttindum til Grænlands, ef við semdum við Dani og viðurkenndum þar með eignarrétt þeirra á Grænlandi. Ég vildi aðeins benda á þetta atriði.

Hv. 4. þm. Reykv. fannst mér vera svolítið móðgaður við mig, af því að mér fannst hann tala heldur óvirðulega um skandinavísku þjóðirnar, okkar bræðraþjóðir, út af því, að þær hafi heitt einhverjum bolabrögðum í Grænlandsmálinu. Hann dró það mjög í efa, að Danir hefðu varðveitt sjálfsákvörðunarrétt Grænlendinga, en þær þjóðir eða þeir fulltrúar, sem hafa um málið fjallað hjá Sameinuðu þjóðunum, hafa lýst því yfir, að bæði svör og skýringar frá flytjendum tillögunnar hafi verið talin fullnægjandi. Meira vil ég ekki um það segja.