19.11.1954
Sameinað þing: 18. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 55 í D-deild Alþingistíðinda. (2414)

105. mál, atkvæðagreiðsla að hálfu Íslands

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Ég gerði það að minni till., fyrst við forseta persónulega með því að ganga til hans og síðan úr sæti mínu, að þessu máli væri vísað til utanrmn., og mér finnst það ekki óeðlilegt, að slíkt mál fái þá meðferð. Nú tilkynnir hæstv. forseti, að það liggi svo mikið a að afgreiða málið, að það þurfi að koma ályktunum ríkisstj. og Alþingis til New York fyrir mánudag.

Ég vil nú leyfa mér að spyrja: Fyrst atkvgr. á ekki að fara fram nú í nótt um þetta mál, hvenær á þá fundur að verða um þetta mál? Vakir það ef til vill fyrir hæstv. ríkisstj. að hafa ekki atkvgr. um þetta mál fyrr en á mánudag? Er meiningin að fresta málinu til mánudags, þannig að það verði ekki hægt að koma til New York öllum þeim skilaboðum frá Alþingi Íslendinga, sem t. d. utanrmn. við góða rannsókn málsins og þm. við frekari íhugun þess kynnu að komast að niðurstöðu um? Með fundi á mánudag um þetta mál er girt fyrir það, að það væri tími lengur til að skýra og senda til New York þær ályktanir, sem Alþingi Íslendinga kynni að gera í þessu máli. Við skulum segja, að Alþingi Íslendinga kynni t. d. að álykta að senda svo og svo mikið af gögnum um málið, upplýsingum, sem fram hafa komið, en þá væri ekki lengur orðinn tími til þess að koma öllum þeim gögnum. M. ö. o. á að hindra Alþingi Íslendinga í því að geta látið Sameinuðu þjóðirnar vita allan sannleikann í málinu. Það er sem sé samsæri þarna hjá ríkisstj. með Dönum um að koma í veg fyrir, að raddir Íslands heyrist í New York viðvíkjandi þessu; vegna þess að svo framarlega sem utanrmn. kynni að vitkast eitthvað dálítið við rannsókn á málinu og Alþ. að samþykkja eitthvað annað en ríkisstj. vill, þá er búið að girða fyrir það með því að halda áfram fundi á mánudag. Ég skal taka þetta allt aftur, sem ég hef sagt, ef fundurinn á að vera á morgun — allt saman. En nú ætla ég að biðja hæstv. forseta að upplýsa mig, af því að ég varð var við þessa tilhneigingu í dag hjá hæstv. forsrh. að vilja helzt ekki hafa þennan fund í kvöld, heldur að vilja hafa fundinn á mánudag og byrja á mánudagsmorgun, geta skorið niður umræðurnar nógu snemma, haft nógu skamman tíma til þess, ef Alþ. skyldi samþykkja eitthvað annað en ríkisstj. vill, að þá kæmi ekki sá vilji fram. (Gripið fram í.) En ég gæti trúað, að Alþ. ályktaði að senda t. d. alla þá ræðu, sem 6. landsk. hefur. haldið hérna, til New York, — það gæti vel verið, meira að segja þó að menn væru ekki sammála henni, til þess að gera einn hlut, og það er að láta Sameinuðu þjóðirnar fá að heyra, hvaða skoðanir væru uppi í þessu máli, það vekti t. d. fyrir ríkisstj., sem vildi gjarnan upplýsa Sameinuðu þjóðirnar. En það vakir ekki fyrir hæstv. ríkisstj. Hún vill ekki eiga það á hættu, að Alþ. geri neina samþykkt, sem kynni að þýða það, að Sameinuðu þjóðirnar væru upplýstar um ganginn í þessum málum. Ég tók hér t. d. fyrir plaggið, sem liggur fyrir Sameinuðu þjóðunum, frá verndargæzlunefnd, og sýndi fram á, hvernig það væri.

Það á sem sé að koma í veg fyrir það, ef það á ekki að verða fundur fyrr en á mánudag, að nokkuð, sem Alþ. kynni að samþykkja og vildi senda og vildi leggja fyrir fulltrúa Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum að bera fram, gæti komizt þangað. En eins og ég sagði áðan, skal ég gjarnan taka það aftur, sem ég nú hef sagt, ef það er meiningin, að við höldum áfram á morgun. En ef það er meiningin að halda áfram á mánudag, þá vil ég ítreka mína tillögu, að málinu sé vísað til utanrmn., því að þá hefur hún sannarlega nógan tíma til þess að starfa, og ég vil óska eftir, að sú till. sé borin upp.