02.12.1954
Sameinað þing: 21. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 62 í D-deild Alþingistíðinda. (2438)

68. mál, gistihús í landinu

Jóhann Hafstein:

Herra forseti. Ég vil aðeins viðhafa um þetta nokkur orð, vegna þess að ég átti hlut að máli eða óskaði eftir því hér ekki alls fyrir löngu, að málinu yrði frestað, til þess að þingmönnum gæfist kostur á að athuga meðferð mjög hliðstæðs máls áður, sem ég vitnaði til, nefndarskipun um gistihúsamálin. Ég hef nú síðan haft aðstöðu til þess að athuga þær skýrslur, sem fyrir liggja frá þeirri n., og ég tel ekki, að það sé á neinn hátt þannig, að þess vegna sé ekki full þörf á þessari till., sem nú er flutt. Sérstaklega kemur það í ljós við nánari athugun, að hennar verkefni var að verulegu leyti miðað við tímabundið atriði, þ. e. hún lagði fram sérstakar tillögur um það, hvernig hægt væri að koma því til leiðar, að stúdentagarðarnir yrðu tiltækir á því sumri, sem þá fór í hönd. En n. skilaði áliti sínu 31. marz 1951, og niðurstöður hennar voru sem sagt aðallega varðandi stúdentagarðana, Laugarvatnsskólann, fjárstyrk til hans, og svo almennt um aukið hreinlæti á þeim gististöðum, sem til eru.

Það voru nú fleiri atriði, sem þessi n. fjallaði um, m. a. um gistihúsasjóð, en þó engan veginn þannig, að ég telji, eftir að hafa haft aðstöðu til að athuga málið, að þessi till. eigi ekki fullan rétt á sér, og lýsti ég því strax í upphafi, að efnislega væri ég henni samþykkur. Hins vegar er ég andvígur þeirri brtt., sem hv. allshn. hefur flutt, sem er umorðun á till. og efnislega sú ein, að ríkisstj. á að láta framkvæma athugun á gistihúsaþörf í landinu í samráði við Ferðaskrifstofu ríkisins, og það er sú brtt., sem frá n. kemur. Um það var ekkert sérstakt tekið fram í frumtillögunni, og tel ég hana eðlilegri, vegna þess að það eru margir aðrir aðilar, sem engu síður ætti að hafa samráð við í þessu sambandi en Ferðaskrifstofu ríkisins. Það eru margar aðrar ferðaskrifstofur og Samband veitinga- og gistihúsaeigenda og fleiri aðilar. Það má segja, að þetta sé ekki mikilvægt atriði; en ég fyrir mitt leyti mun greiða atkv. á móti brtt. n., en fylgja till. eins og hún var upphaflega flutt af hv. þm. V-Ísf.