06.12.1954
Neðri deild: 27. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 66 í D-deild Alþingistíðinda. (2446)
47. mál, gistihús á Þingvöllum
Ásgeir Bjarnason:
Herra forseti. Af því að hv. fyrri flm. brtt. á þskj. 221 er ekki hér staddur, vildi ég aðeins segja nokkur orð.
Ég er hv. þm. N-Ísf. algerlega sammála um, að það sé nauðsynlegt að reisa á Þingvöllum gistihús, sem sé „samboðið virðingu staðarins og eftir þörf þjóðarinnar“, eins og hann orðaði það. En það, sem ber á milli í þessum tveimur till., sem hér liggja fyrir hv. Alþingi, er það, að við í minni hl. n. leggjum til, að áður en nokkur undirbúningur sé hafinn, sé ríkisstj. falið að láta athuga möguleika á gistihúsbyggingu á Þingvöllum og þá sérstaklega, hvaða aðilar vilji standa að slíkri byggingu og sjá um reksturinn. Það kemur ósjaldan fyrir, þegar hafnar eru framkvæmdir hér á landi á einu eða öðru sviði, að það verður að stöðva þær vegna peningaleysis eftir nokkur ár, og stafar það af því, að upphaflega er ekki hugsað nógu vel til enda í málinu eða hverjir vilja taka baggann á sig í einu eða öðru. Og það er ekki nóg með það, þó að gistihús rísi upp á Þingvöllum og einhverjir aðilar vildu sjá um að koma því upp myndarlegu og vel úr garði gerðu, heldur þyrfti eigi síður að tryggja hitt, að einhverjir aðilar eða aðili vildi sjá um rekstur gistihússins í framtíðinni.
Það er veruleg þörf á því hér á landi að athuga bæði byggingu gistihúsa og gistihúsarekstur almennt í landinu. Nú fyrir nokkrum dögum hefur hv. Alþingi samþ. till. í þessum efnum, og það er ekki kveðið fastar að orði þar en svo, að athuga skuli gistihúsaþörfina, og ég álít, að Þingvöllum, þótt þeir séu mjög kærir í hjörtum okkar allra, sé ekki nein óvirðing gerð, þótt við setjum þá á sama bekk að því leyti til, að það séu athugaðir möguleikarnir á því, hverjir vilji standa að gistihúsbyggingunni og síðan að rekstrinum. Þegar þessi atriði liggja ljóslega fyrir, verður sjálfsagt hafizt handa og það kannske af enn meiri krafti en ef þegar væri byrjað með einhvern undirbúning, en lægi ekki nógu ljóslega fyrir, áður en verkið væri hafið, hvaða möguleikar væru á því að starfrækja gistihús á Þingvöllum eins myndarlega og við viljum vera láta. Við erum allir sammála um það, að reisa beri myndarlegt gistihús á Þingvöllum. En ég tel, að með þeirri till., sem hér liggur frammi frá minni hl. n., séu þau atriði málsins tryggð í upphafi, sem tryggja ber, og að síðan megi taka málið til nánari athugunar, eftir því sem þá á við, án þess að slá nokkru föstu um, að reisa beri gistihús, fyrr en grundvallaratriðin eru rannsökuð eins og við í minni hl. leggjum til.