14.12.1954
Sameinað þing: 27. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 123 í D-deild Alþingistíðinda. (2464)
118. mál, Norður-Atlantshafssamningurinn
Frsm. meiri hl. (Hermann Jónasson):
Herra forseti. Það hefur nú, eins og kannske mátti við búast, teygzt nokkuð úr þessum umr., þó að fyrri umr. málsins væri allýtarleg, eins og ég gat um í þeim fáu orðum, sem ég lét falla hér, þegar ég leiddi þetta mál af hálfu utanrmn. inn í þingið, eftir að hún hafði athugað málið á fundi, svo sem ég skýrði þá frá.
Það er rætt hér nokkuð mikið um hraða málsins og gert út af því talsvert mikið veður, sem ég sannast að segja sé nú ekki að sé mikil ástæða til. Ég skýrði frá því í þeim fáu orðum, sem ég sagði hér í gær, að það hefði verið rætt um það við ríkisstj., hvort hún teldi sér fært að fresta málinu, og frá utanrrh. kom sú yfirlýsing, að hann sæi sér það ekki fært, vegna þess að gert er ráð fyrir, að þinginu verði frestað nú um næstu helgi og komi ekki saman fyrr en í febrúar.
Nú fengu hv. þm. að heyra það, að þeir þm., sem hér tala um málið og ræða það, að rétt sé að fresta því að þessu sinni þangað til þing kemur saman að nýju, gera allir ráð fyrir, að málið verði afgreitt á þingum annarra hlutaðeigandi þjóða a. m. k. seinni partinn í janúar, sennilega sums staðar fyrir jól. Norðmenn hafa þegar afgreitt málið, og ég býst ekki við, að það verði talið að þeir verði sér neitt til minnkunar fyrir það. Og hjá öðrum verður það rætt þegar þing kemur saman eftir áramót eða í janúarmánuði.
Það liggur því alveg ljóst fyrir, að það er yfirleitt gert ráð fyrir því og þeir, sem tala nú með frestun, gera ráð fyrir því, að málið verði afgreitt hjá öðrum ekki seinna en seinni hlutann í janúarmánuði, og það, sem þeir eru þess vegna að fara fram á og ríkisstj. er á móti, er það, að við verðum þeir seinustu, sem afgreiða málið. (Gripið fram í.) Jú, það er það, sem hv. þm. gerði einmitt ráð fyrir í þeirri ræðu, sem hann var að flytja núna áðan, að málið mundi verða afgreitt seint í janúarmánuði hjá öðrum þjóðum; lengra þorði hann ekki að ganga. — Hvað sem því líður, má gera ráð fyrir því, að ríkisstj. hafi gert sér það nokkurn veginn ljóst, um leið og hún valdi þetta mál sem eitt af þeim málum, sem þyrftu að komast fram fyrir áramót og þess vegna er tekið hér fyrir, að afgreiðsla málsins yrði að hennar áliti of seint á ferðinni, ef málið væri látið bíða þangað til í febrúarmánuði, og hér stendur einmitt eins á og í Noregi, þar stendur þing yfir, og þess vegna er málið afgreitt þar strax, en ekki látið bíða þess þings, sem kemur saman eftir áramót og mér er a. m. k. sagt að muni ekki koma saman í janúarmánuði.
Annars sé ég ekki, hvaða máli það skiptir, hvort menn taka afstöðu til þessa máls efnislega núna fyrir áramót eða eftir áramót. Ég hygg, að enginn af þeim hv. þm., sem hér hafa talað um málið, hvort sem þeir eru með því eða móti, viti ekki, að það hefur verið talið alveg fullvíst, að ekkert þeirra ríkja, sem eru í Atlantshafsbandalaginu, mundi standa gegn því, að Þjóðverjar fengju inngöngu í Atlantshafsbandalagið. Það var aðeins spurning um tvö ríki: Frakkland og Þýzkaland, og eftir því er í höfuðatriðum beðið. Það er raunverulega vitað fyrir fram um afstöðu hinna ríkjanna, að hún er jákvæð, og gera allir ráð fyrir því. En þó að við frestuðum málinu núna og það yrði t. d. fellt í franska þinginu eða þýzka, þá mundi það vera jafnvitað, að við mundum hafa samþykkt það, ef á hefði þurft að halda, og ég skal koma að því síðar, vegna hvers ég tel eðlilegt, að við höfum þá afstöðu til málsins.
Ég sé þess vegna ekki, að það skipti neinu verulegu máli, hvort við lýsum yfir formlega fyrir áramót eða eftir áramót þessari afstöðu, sem allir vita að er okkar afstaða og er afstaða allra þeirra ríkja, sem í bandalaginu eru, nema það er vafi um tvö. Vissulega er ekki hægt að neita því, að það getur verið vafi, en meira getur maður ekki fullyrt.
Og það er eiginlega eftirtektarvert í þessu sambandi, hvað það er talinn sjálfsagður hlutur, að Ísland beiti sér ekki gegn því, að Þjóðverjar gerist aðilar að Atlantshafsbandalaginn. Hér liggur fyrir till. frá þjóðvarnarmönnum, og ef sú till. væri samþ., er lýst yfir samþykki okkar, held ég, á því, að Þjóðverjar gerist aðilar að Atlantshafsbandalaginu. eða með leyfi hæstv. forseta: „Á hinn bóginn telja Íslendingar, sem eru óvígbúin þjóð og þess vegna í reyndinni óvirkur aðili að Norður-Atlantshafsbandalaginu, ekki eðlilegt, að þeir taki á sig þá ábyrgð að hindra með neitunarvaldi sínu það, sem herveldi bandalagsins kunna að telja sér nauðsynlegt í vígbúnaðarmálum sínum.“ Ef þessi till. er samþ., þá er hún yfirlýsing um, að það komi ekki til mála, að við séum að beita neitunarvaldi okkar til þess að koma í veg fyrir það, að Þjóðverjar gerist aðilar að Atlantshafsbandalaginu; það er talið svo sjálfsagt, að meira að segja Þjóðvfl. er með því. Þetta er sú afstaða, sem er almennt vituð, og þess vegna lýsir vitanlega Þjóðvfl. þessu yfir sem sjálfsögðum hlut. Hann treystir sér ekki einu sinni til að rísa gegn því.
En það, sem ég sagði hér í gær, var það, að ég teldi það eðlilegt, að þessu máli hefði verið frestað þangað til eftir áramót, ef þinginu væri ekki frestað svo lengi, að hætt væri við því, að afgreiðsla málsins yrði of seint á ferðinni, ef því væri frestað nú. Annað sagði ég ekki og segi það enn að gefnu tilefni, vegna þess að þessi orð hafa verið færð úr lagi.
Það, sem talsvert hefur verið rætt um í sambandi við þetta mál, er spurningin um það, hvort Þjóðverjar eigi að hervæðast eða ekki. Þetta atriði liggur alls ekki fyrir til ákvörðunar í sambandi við þetta mál. Við skulum hugsa okkur, að aðild Þjóðverja að Atlantshafsbandalaginu yrði ekki samþykkt, og þá láta hv. þm. sumir, sem um þetta mál hafa talað, á sér skilja, að það væri sama og neitun þjóðarinnar um að hervæðast. Þetta er herfilegur misskilningur eða sagt móti betri vitund. Það er vitað mál, að fyrir hálfu ári hafa bæði Bandaríkjamenn og Englendingar lýst því yfir, að nú alveg á næstunni, ef ekki verði samkomulag um Evrópuher, muni þeir gera friðarsamninga við Þjóðverja, og þá eru Þjóðverjar frjálsir að því sjálfir að ákveða sína hervæðingu, og þessar þjóðir hafa lýst því yfir, að þær muni ekki standa í vegi fyrir því. Spurningin er því eingöngu um það: Vilja menn, að Þjóðverjar hervæðist innan Atlantshafsbandalagsins með þeim takmörkunum, sem hervæðingunni eru settar í samningunum, og með þeim hömlum, sem eru lagðar á Þjóðverja með því að vera í þessu bandalagi, eða vilja menn, að Þjóðverjar hervæðist sjálfstætt, eins og þeir gerðu eftir fyrri styrjöld? Það er spurningin, sem liggur fyrir. Það er ekki neinn vafi á því, að þeir, sem hugleiða þetta mál, fengu þá reynslu af hervæðingu Þjóðverja eftir fyrri styrjöld, að þeir óska ekki eftir, að það endurtaki sig. Og jafnaðarmenn í Frakklandi, sem hafa eins og aðrir Frakkar um sárt að binda vegna viðureignarinnar við Þjóðverja, jafnaðarmenn í Noregi, og það þarf ekki að lýsa, um hvaða sár þeir hafa að binda, jafnaðarmenn í Danmörku, jafnaðarmenn í Belgíu, með sinn utanríkisráðherra í broddi fylkingar sem einn ákveðnasta meðmælanda þess. að Þjóðverjar gangi í Atlantshafsbandalagið, og jafnaðarmenn að miklum meiri hluta í Englandi eru þrátt fyrir gamlar endurminningar og þrátt fyrir sínar tilfinningar allir því meðmæltir, að Þjóðverjar hervæðist innan Atlantshafsbandalagsins, vegna þess að þeir álíta það betri kost en að gerður verði friðarsamningur við Þjóðverja á næstunni og þeir hervæðist sjálfstætt. Þetta er m. a. ein af ástæðunum. Það er þess vegna ekki verið að taka ákvörðun um það, hvort Þjóðverjar eigi að hervæðast eða ekki. Það er verið að taka ákvörðun um það, undir hvaða kringumstæðum Þjóðverjar eigi að hervæðast, hvort þeir eigi sjálfir að ráða sinni hervæðingu eða þeir eigi að hlíta þeim takmörkunum, sem gert er ráð fyrir í Atlantshafssáttmálanum.
Við getum svo hugsað okkur þriðja möguleikann, sem að vísu er naumast fyrir hendi, og það er það, að það eru ekki gerðir fyrst um sinn friðarsamningar af hálfu Bandaríkjamanna, Englendinga og Frakka við Vestur-Þýzkaland. Og hver yrði þá afleiðingin? Afleiðingin yrði sú, sem ég efast ekki um að ýmsir hv. þm. hér í Alþingi mundu telja heppilega lausn, — hún yrði sú samkvæmt yfirlýsingu, sem gefin hefur verið fyrir alilöngu og ekki er neinn efi á að yrði framkvæmd, að ef ekki tekst með einhverju móti samkomulag um hervæðingu Vestur-Evrópu og varnir, þá draga Bandaríkjamenn og Englendingar heri sína burt af meginlandinu og meginlandið verður óvarið. Sjálfsagt eru það margir hv. alþm., sem vita um þessa yfirlýsingu. Hún var m. a. endurtekin af utanríkisráðherra Belgíu í ræðu fyrir tæpum 3 mánuðum, og hann var þá inntur eftir því, hvort væri víst, að þannig mundi verða farið að, og lýsti hann yfir að gefnu því tilefni, að á því væri enginn vafi, að Bandaríkjamenn og Bretar mundu ekki hafa herdeildir sínar á meginlandinu, sem þeir teldu að ekki væri hægt að verja og þess vegna þýðingarlaust að setja sínar herdeildir í hættu þar, ef ekki yrðu nein samtök um varnir Vestur-Evrópu. Þetta þýðir það þá jafnframt, sem sennilega flestir gera sér ljóst, að um leið og meginlandið er óvarið, er Ísland komið í fremstu varnarlínu milli þeirra tveggja risa að austan og vestan, sem aðallega eigast við í vígbúnaðarkapphlaupi og ef til vill í þeim átökum, sem menn að vísu vona að aldrei komi til.
Það er þess vegna fjarri því, að við höfum hagsmuni af því, að ekki verði af varnarsamtökum á meginlandi Evrópu; það er alveg þvert á móti. Ef Þjóðverjar taka þátt í þessum varnarsamtökum, þá eru menn sammála um það, að á meginlandi Evrópu myndast það hernaðarjafnvægi, að það er talið ólíklegt, að hvor aðilinn um sig þori að hreyfa sig. Og það er áreiðanlegt, að þeir, sem þekkja til varnarsamtaka Vestur-Evrópu, gera sér ljóst, að það er ekki hægt að koma 15 þjóðum, hvað sem Þjóðverjum líður, út í styrjöld; það er enginn hægðarleikur að koma þeim út í styrjöld, slíkur friðarvilji sem þar ríkir almennt. Það er þess vegna að mínu áliti þannig, að hvað sem inngöngu okkar í Atlantshafsbandalagið leið á sínum tíma, — það er gerður samningur, sem við vitanlega hringlum ekki með, við getum ekki gert það með utanríkissamninga, — þá er það að mínu áliti stórkostleg umbót á Atlantshafsbandalaginu, að Þjóðverjar gerist þar aðilar, vegna þess að með því móti myndast varnargarður, sem Evrópuþjóðirnar standa að í heild, alla leið frá Miðjarðarhafi til Norður-Noregs, — varnargarður fyrir austan okkur, varnargarður á milli Rússlands og Bandaríkjanna, þeirra þjóða, sem eru taldar vera aðalaðilarnir í hinu kalda stríði og mundu verða það, ef það óhapp vildi til, að styrjöld brytist út. Og það hljóta menn að gera sér ljóst, að það er verulegur ávinningur fyrir okkur að hafa þennan varnargarð austan við okkur í stað þess að vera ella, ef meginland Vestur-Evrópu væri varnarlaust, í fremstu víglínu, eins og ég sagði áðan, og með þeim afleiðingum vitanlega, að miklu meiri áherzla yrði lögð á varnir og varnarframkvæmdir hér á Íslandi en ef þessi samtök verða, sem nú er verið að reyna að koma á í Vestur-Evrópu.
Ég er af þeim ástæðum, sem ég hef nú greint, þeirrar skoðunar, að okkur sé alveg vorkunnarlaust að greiða atkvæði um þetta mál nú þegar, vegna þess að þessi breyting á Atlantshafsbandalaginu, tilkoma Vestur-Þýzkalands, er til stórkostlegra bóta og til verulegs öryggis fyrir Ísland frá því, sem nú er, og miðað við það, að ekki yrði af varnarsamtökum á meginlandi Vestur-Evrópu. Þetta er þess vegna fyrirkomulag á bandalaginu, sem við hljótum fremur að óska eftir heldur en hitt.