18.12.1954
Sameinað þing: 31. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 150 í D-deild Alþingistíðinda. (2478)
131. mál, samþykki til frestunar á fundum Alþingis
Forsrh. (Ólafur Thors):
Herra forseti. Ríkisstj. er kunnugt um, að margir þm., og þá einkum þeir, sem búa utan Reykjavíkur, óska þess, að nú verði gert nokkurt hlé á þingstörfum og þá nokkru lengra en aðeins sjálfa jóladagana og nýársdaginn. Ég hef þess vegna fyrir hönd stjórnarinnar leyft mér að bera fram á þskj. 304 till. til þál. um, að Alþ. samþ. að fresta þingfundum frá deginum í dag að telja, enda verði þingið kvatt saman eigi síðar en 4. febr. n. k.
Verði þetta samþ., sem ég geri ráð fyrir, þá mun stjórnin nota þinghléið til þess að vinna að ýmsum þeim málum, sem hún hefur hug á að nái fram að ganga á framhaldsþinginu, og nefni ég þar sem dæmi og fyrst og fremst húsnæðismálin.
Ég sé ekki ástæðu til að láta önnur eða lengri rök fylgja þessari till. og vænti, að hún nái samþykki Alþingis.