22.03.1955
Neðri deild: 63. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 177 í D-deild Alþingistíðinda. (2510)

161. mál, okur

Gunnar Jóhannsson:

Herra forseti. Í framsöguræðu, sem hv. 3. þm. Reykv. (BÓ) hafði fyrir nál. á þskj. 476 um okur, gaf hann í skyn, að ég hefði á einhvern hátt stuðlað að því, sem stóð í þeim skrifum, sem um þetta mál birtust í Þjóðviljanum í gær, og vil ég upplýsa hv. þm. um, að það er á misskilningi byggt. Ég hafði engar viðræður átt við blaðamenn Þjóðviljans um málið. (Gripið fram í.) Hafi þetta verið hans álit, þá er það algerlega á misskilningi byggt. (Gripið fram í.) Ég gat dregið það út úr ræðu hans, að hann áliti, að ég hefði farið með þetta í blaðið. Hins vegar er það ekki óalgengt, að þingfréttaritarar blaðanna komi með ýmislegt í blöðum sínum, sem gerist hér á hv. Alþ., en það sé ekki nákvæmlega sannleikanum samkvæmt. Ég minnist þess t. d., að í vetur birtust hér í einhverju víðlesnasta blaði í bænum ummæli hv. 9. landsk. þm., sem blaðið taldi sig hafa orðrétt eftir. Ummælin voru rangt eftir höfð. 9. landsk. lét birta kafla úr ræðu sinni alveg orðrétt og óskaði eftir, að viðkomandi blað leiðrétti þær rangfærslur, sem það hefði birt úr ræðu hans. Það var ekki leiðrétt. Hér er um annað að ræða. Blaðamanninum hefur fundizt það dálítið einkennilegt, að þessir hv. þm. áttu samtal saman og rétt á eftir var málið tekið út af dagskrá. Nú er upplýst, að það hefur ekkert slíkt vakað fyrir þessum hv. þm., og allir elskusáttir á það, að þetta mál skuli fá afgreiðslu hér á hv. Alþ. Við höfum orð sjálfs hæstv. dómsmrh. fyrir því, að hann skuli gera allt, sem í hans valdi stendur, til þess að afhjúpa og draga fram í dagsljósið, ef um okur er að ræða í þessu landi. Ég segi fyrir mig sem einn af þm. þessarar hv. d., að ég er ánægður með þessi ummæli, og þau verða ekki gleymd; eftir þeim verður munað.

Ég vil svo að lokum mega treysta því, að þeirri n., sem kann að verða kosin hér til rannsóknar á okri, megi vel farnast í sínum störfum. Ég þykist vita það líka eftir þau mjög svo sterku ummæli, sem hæstv. dómsmrh. hefur haft um þetta mál, að það muni ekki standa á því, að væntanlegri n. verði fengin í hendur öll þau gögn, sem hún óskar eftir, bæði frá einstaklingum, hlutafélögum og bönkunum, þessu máli viðkomandi.