30.03.1955
Sameinað þing: 49. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 191 í D-deild Alþingistíðinda. (2531)
85. mál, verkafólksskortur í sveitum
Frsm. (Jón Sigurðsson):
Herra forseti. Verkafólksskorturinn í sveitum er eitt af mestu vandamálum landbúnaðarins. Víða hagar svo til, að það eru ekki nema tvær fullorðnar manneskjur á heimili, og ef eitthvað ber út af, þá er heimilið í voða. Sums staðar er ekki einu sinni nema einn karlmaður, og gefur það auga leið, hvernig þar er viðhorfið, ef eitthvað ber út af. Víða er það svo, að eldri bændur eru orðnir það slitnir og brjóstþungir, að þeir treysta sér ekki til að vera í heyjum. Þeir hafa góðar ástæður, eru kannske í góðum efnum og vilja gjarnan sinna búskap og hafa alla aðstöðu til þess, en þeim er það í raun og veru fyrirmunað, þegar ekki fæst nokkur maður til þess að sinna störfum að vetrinum, sem getur leyst þá af hólmi.
Þetta eru aðeins örfáar svipmyndir af því ástandi, sem nú er og hefur verið í sveitunum, og ég vil fullyrða, að þetta ástand fer stöðugt versnandi.
Búnaðarþingi, sem núna er nýlega lokið, bárust víðs vegar frá erindi um, að það væru gerðar ráðstafanir til að ráða bót á verkafólksskortinum í sveitum. Það tók að sjálfsögðu þetta mál til rækilegrar athugunar og samþykkti svo hljóðandi ályktun, með leyfi forseta, með samhljóða atkvæðum:
„Búnaðarþing ályktar að fela stjórn Búnaðarfélags Íslands að beita sér fyrir innflutningi erlends verkafólks til landbúnaðarstarfa með tilliti til þeirra umsókna, sem fyrir liggja. Skal það leita aðstoðar og fjárstuðnings ríkisstjórnar og Alþingis um framkvæmd þessa. Enn fremur verði gert allt, sem unnt er, til að útvega innlent fólk til landbúnaðarstarfa. Í því sambandi verði ráðningarstofu landbúnaðarins falið að stuðla að fólksskiptum milli landshluta.“
Þetta er ályktun búnaðarþings, sem var samþykkt með samhljóða atkvæðum.
Það má geta þess, að fyrir liggja núna líklegast a. m. k. 170 umsóknir um verkafólk, aðeins vegna þeirra umræðna. sem hér hafa orðið, og auglýsingar, sem stjórn Búnaðarfélags Íslands setti í útvarp. Enginn vafi er þó á, að þetta er aðeins örlítið brot af því, sem þyrfti að vera, vegna þess að fjöldi manna kveinkar sér við eða telur sér það ófullnægjandi að fá útlent verkafólk, sem aðallega var gert ráð fyrir í þessari auglýsingu.
Allshn. er á einu máli um nauðsyn þess, að ríkisstj. geri það, sem í hennar valdi stendur, til þess að greiða úr verkafólksskortinum í sveitunum í samráði við Búnaðarfélag Íslands, og mælir þess vegna eindregið með því, að þáltill. verði samþykkt.