05.04.1955
Sameinað þing: 50. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 191 í D-deild Alþingistíðinda. (2533)

85. mál, verkafólksskortur í sveitum

Jón Pálmason:

Herra forseti. Þessi till., sem hér liggur fyrir, var lögð fram um mánaðamót nóvember og desember og er síðan búin að bíða allan þennan tíma. Samt sem áður vil ég þakka hv. allshn. fyrir að skila nú loks áliti um þessa till. með sameiginlegum meðmælum, en jafnframt láta í ljós, að það getur haft mjög erfiðar afleiðingar fyrir það stórmál, sem hér er um að ræða, hvað þetta hefur dregizt lengi, vegna þess að hvað sem líður verkafólksöflun fyrir bændur landsins innanlands, þá er það víst, að ef að því verður horfið — og líklega er ekki um annað að ræða — að fá fólk erlendis frá, þá þarf það eða hefði þurft meiri fyrirvara en nú er orðinn, og má vænta, ef till. verður samþ., sem ég reikna með og vænti, að þá verði af hálfu ríkisstj. og Búnaðarfélags Íslands brugðið vasklega við að framkvæma þessa tillögu.