05.04.1955
Sameinað þing: 50. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 193 í D-deild Alþingistíðinda. (2535)

85. mál, verkafólksskortur í sveitum

Forsrh. (Ólafur Thors):

Herra forseti. Hv. þm. Borgf. (PO) beindi þeirri fsp. til hæstv. landbrh., eða þar sem hann vegna sérstakra anna hefur ekki komið því við að sækja þennan fund, þá til annarra viðstaddra ráðherra, hvert mundi verða svar ríkisstj. við bréfi Búnaðarfélags Íslands, dags. 11. marz, sem nokkuð snertir það mál, sem hér er til umr., og nefndi hv. þm. sérstaklega þrenns konar málaleitan til ríkisstj. frá Búnaðarfélaginu. Í fyrsta lagi, hvort ríkisstj. mundi vera samþykk því, að 150–200 erlendum verkamönnum, körlum eða konum, sem ætluðu að stunda hér landbúnaðarstörf, yrði heimilað hér landsvistarleyfi í eitt eða tvö ár. Ég hygg, að ríkisstj. mundi heimila það, og þykist muna það rétt, að það hafi verið a. m. k. mjög vel á því tekið á ríkisstjórnarfundi, þar sem þessu máli aðeins var hreyft. — Í öðru lagi, hvort ríkisstj. mundi vilja beita sér fyrir því, að greiddur verði úr ríkissjóði allur kostnaður við flutning fólksins til landsins, og sömuleiðis kostnaður við sendiför eins manns eða tveggja, er valinn yrði til eða valdir til að ráða fólkið, enda samþykki ráðuneytið val þessara manna. Þetta eru tilmæli, sem ríkisstj. mundi að sjálfsögðu ekki láta sér svo mikið sem koma til hugar að gefa fyrirheit um að styðja, og þá líka miklu sæmra, að þeir, sem slík mál bera fyrir brjósti og sæti eiga á Alþ., beri fram um slíkt till. á Alþ. Hér er ekki aðeins um stórvægileg útgjöld að ræða úr ríkissjóði, heldur einnig um ákaflega stór „prinsip“-mál. Hvað mundu t. d. bændur hér á þingi segja, ef útgerðarmenn færu fram á það, að ríkissjóður greiddi för þeirra sjómanna, sem nú er verið að ráða á íslenzk skip, segjum Færeyinganna, og skipta mörgum hundruðum, fram og aftur? Og það gætu orðið margar aðrar afleiðingar af slíkri ákvörðun ríkisstj., ef hún tæki sér eindæmi til þess að kveða á um svo veigamikla hluti. Ríkisstj. var því öll sammála um að beita sér ekki fyrir þessu, heldur að beita sér gegn því. Náttúrlega getur Alþ. svo út af fyrir sig tekið þessa ákvörðun, ef því sýnist, og þá verður ríkisstj. að una því, ef hún telur það ekki svo mikilsvert, að hún telji ástæðu til að gera það að fráfararatriði. Það er vitanlegt, að hér eru í ýmsum málum gerðar samþykktir, sem ríkisstj. út af fyrir sig mundi ekki óska að bera fram sjálf eða styðja, en telur þó ekki skipta því höfuðmáli, að ástæða sé til að gera að fráfararatriði.

Hitt er öll ríkisstj. sammála um, að að öðru leyti beri henni og sé ljúft að greiða fyrir því, að takast megi að ráða þetta verkafólk til landsins, og þá einnig með því — og það þykir ekki hættulegt fordæmi — að greiða kostnað við sendiför manns, sem yrði valinn annaðhvort af Búnaðarfélaginu og þá kannske í samráði við ríkisstj. og þætti þeim kostum búinn, að nokkurt öryggi fengist fyrir því, að það fólk, sem til starfans réðist, væri hæft til þeirrar vinnu, sem því er ætlað að inna af hendi hér á landi. Og það er einmitt þetta, sem mér einnig hefur skilizt að hafi vakað fyrir flm. þeirrar till., sem hér er til umr.

Ég get hins vegar ekki svarað hv. þm. Borgf. um þriðju fsp., sem hann las upp, og gæti hún þá legið til nánari velviljaðrar athugunar. En ef maður má leyfa sér að taka upp aðeins léttara hjal, til þess að ekki verði ágreiningur á milli mín og míns ágæta vinar, þm. Borgf., veit ég ekki, hvort það er ástæða til á þessu stigi málsins að hafa áhyggjur út af að yfirfæra kaupgjald þeirra verkakvenna, sem hingað ráðast, því að guð og gæfan hefur nú hagað því svo, að þær hafa flestar gifzt hér ágætum bændum og reynzt vel í sínu starfi, bæði fyrst við hússtörfin og seinna, að því er mér er sagt, sem ágætar ektakvinnur á heimilum bændanna.

Aðrar eða frekari upplýsingar get ég ekki fyrir hönd stj. gefið á þessu stigi málsins.