05.04.1955
Sameinað þing: 50. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 194 í D-deild Alþingistíðinda. (2536)

85. mál, verkafólksskortur í sveitum

Pétur Ottesen:

Ég skil að vísu aðstöðu ríkisstj. að því er snertir kostnaðarhlið þessa máls, en ef ég mætti nú taka upp léttara hjal eins og hæstv. forsrh., þá finnst mér það nú skjóta dálítið skökku við, ef ríkisstj. vill ekki ljá því nokkurt lið að flytja hingað inn þýzkar konur, svo góða reynslu sem við höfum að hans dómi fengið af slíkum innflutningi áður. — En hvað sem þessu líður, þá vænti ég, að hæstv. ráðherra eða hæstv. ríkisstjórn þyki það ekkert undarlegt, þó að leitað sé eftir svari hæstv. ríkisstj. við bréfi, sem skrifað var um þetta 11. marz. Að vísu þurfti ekki að gera það í almennum umræðum hér á Alþ.; slíkt hefði vitanlega getað komið og var eðlilegt að kæmi eftir öðrum leiðum. En það hefur nú tekizt svo til, að svar við þessu bréfi, sem skrifað var 11. marz, hefur ekki borizt í hendur stjórnar Búnaðarfélags Íslands, og vildi ég þó mega vænta þess, að það væri ekki ósanngjarnt að gera þá kröfu til ríkisstj., að hún sýndi þá nærgætni í þessu máli, þar sem hér var um að ræða að afla landbúnaðinum vinnukrafts einmitt fyrir vorið, að hún léti ekki dragast svo mjög sem hún hefur gert að svara slíkri málaleitun sem þessari, á hverja lund sem svo það svar félli.

Við í stjórn Búnaðarfélagsins höfðum hugsað okkur, að sá gangur yrði í þessu máli hjá hæstv. ríkisstj., ef hún vildi sinna þessari málaleitun, að hún leitaði til Alþ. um samþykki fyrir því, að varið yrði nokkru fé í þessu skyni. Við höfðum gert ráð fyrir því, því að það er ákaflega algengt, þegar ríkisstj. þarf að afla sér slíkrar heimildar á þeim tíma, þegar þing situr og búið er að ljúka afgreiðslu fjárl., að hún snúi sér annaðhvort til fjvn. um umsögn hennar og meðmæli eða þá beint til Alþ. til þess að afla sér heimildar fyrir slíkum greiðslum. Það er einmitt af því, að við lítum svona á þetta mál, að stjórn Búnaðarfélagsins hefur ekki gert ráðstafanir til, að hafizt yrði handa hér á Alþ. um þetta mál, því að á meðan ekkert svar barst við bréfinu var ekki heldur ástæða til að grípa á þann hátt inn í gang málsins. Nú skilst mér, að það hafi fengizt fullkomin svör við því hjá hæstv. forsrh., það sé talað fyrir hönd allrar ríkisstj. og að sú niðurstaða hafi orðið á stjórnarfundum að sinna þessu máli ekki frekar en hann nefndi hér, sem sé, að hann tók vel á því, að veitt yrði landsvistarleyfi fyrir þetta fó1k, og ríkisstj. mundi vera þess albúin að taka þátt í kostnaði þess manns eða þeirra manna, sem sendir yrðu til þess að leita fyrir sér um ráðningu á þessu fólki. Viðvíkjandi yfirfærslunni, sem líka er nauðsynlegur liður í þessu máli, ef hafizt hefði verið handa um það, hafði hæstv. ráðh. ekki svör að gefa á þessari stundu. Með ummælum hæstv. ráðh. er þá fullsvarað því bréfi, sem stjórn Búnaðarfélagsins hefur skrifað um þetta, þannig að frekari fjárstuðnings sé ekki í þessu máli að vænta en þess. sem hæstv. forsrh. hefur nú gefið upplýsingar um, og liggur þá málið alveg ljóst og skýrt fyrir.