05.04.1955
Sameinað þing: 50. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 195 í D-deild Alþingistíðinda. (2537)
85. mál, verkafólksskortur í sveitum
Forsrh. (Ólafur Thors):
Herra forseti. Ég get vel skilið, að hv. þm. Borgf. hefði kunnað því betur, að ríkisstj. hefði skriflega svarað erindi Búnaðarfélagsstjórnarinnar. Hins vegar veit hann vel, — hann er nú svo kunnugur öllum þessum málum, — að það líður ekki nokkur sá dagur, að stj. berist ekki mörg og margvísleg erindi, sem öll kalla á svör. Mörg eru þess eðlis, að einstakir ráðherrar geta svarað þeim, án þess að bera sig saman við samstarfsmenn sína. Önnur eru hins vegar þess eðlis, að ráðherrarnir verða að taka sameiginlega ákvörðun um það, og meðal þeirra er einmitt erindi hv. Búnaðarfélagsstjórnar, sem hv. þm. Borgf. gat um. — Ég skal ekki neita því fyrir mitt leyti, að ég gerði mér nokkrar vonir um, að áður en til landauðnar kæmi á Íslandi, mundi þessi hv. þm. kannske hnippa í mig og vekja mig; og ef honum skytist yfir það, þá mundi kannske hv. 1. þm. N-M. hnippa annaðhvort í mig eða einhverja af vinum sínum í ríkisstj. Það eru þar nokkuð aðgangsharðir menn að verki, og ég man það, að mín viðkvæma samvizka fékk einhverja svölun, þegar ég var að svíkja skyldu mína um að skrifa bréfið, þegar mér varð rennt huganum til þessara ágætu vina minna hér, — vona, að það hafi þá ekki hlotizt þjóðarskaði af þessu heldur.
Annars skal ég aðeins, áður en ég lýk málinu, taka það fram, að það er náttúrlega sjálfsagt að greiða eftir fremstu föngum fyrir því, að þetta verkafólk, ef til landsins kemur, fái beztu fyrirgreiðslu, sem aðrir hafa notið um yfirfærslu á sínu vinnukaupi.