09.02.1955
Sameinað þing: 34. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 202 í D-deild Alþingistíðinda. (2558)
112. mál, niðursuðuverksmiðja í Ólafsfirði
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Út af þeirri þáltill., sem hér liggur fyrir á þskj. 200, vildi ég segja hér nokkur orð.
Hv. fyrri flm. tók það fram, að till. væri nokkuð óljóst orðuð. Það er rétt. Það verður ekki séð á till. meðal annars, hvort hugsað er, að ríkisstj. beiti sér fyrir því, að þessari atvinnugrein verði haldið áfram á Ólafsfirði sem niðursuðuatvinnugrein. En það er eitt höfuðatriði í þessu máli, hvort hægt sé að ganga svo frá málinu, að þeirri grein verði haldið þar áfram, en ekki að þetta atvinnufyrirtæki verði tekið til einhverrar annarrar starfrækslu. Og í trausti þess, að svo verði gert, vildi ég fara nokkrum orðum um þetta mál.
Það er nú liðið allt að 20 árum síðan Íslendingar fyrst fóru að reyna að gera niðursuðu að atvinnugrein, og helzt til þess að auka þannig útflutninginn á sjávarafurðum. Þá var komið hér upp í Reykjavík niðursuðuverksmiðju af Sambandi íslenzkra fiskframleiðenda. Og það var hugsað á þeim tíma, að hún ætti að vera nokkurs konar móðurverksmiðja fyrir landið og hafa þá jafnframt á hendi sölu afurðanna og innkaup fyrir hinar smærri verksmiðjur, á líkan hátt og Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna hefur nú. Og fyrr en þessum málum er komið í það horf, er ákaflega vonlítið um, að hægt sé að reka niðursuðuverksmiðjur í hinum smærri stöðum landsins. Þetta vildi ég láta koma fram í málinu þegar við þessa umr.
Nú tókst því miður svo illa til, að Samband íslenzkra fiskframleiðenda varð að hætta þessari starfrækslu. Hygg ég, að þeir hafi selt verksmiðjuna og alveg horfið frá þessari nýju atvinnugrein, sem ég tel að beri að harma. Hins vegar var byggt hér upp nokkru síðar fiskiðjuver ríkisins, eins og kunnugt er, og ætlaði það einmitt að fara í stórum stil inn á niðursuðusviðið og setti mjög mikla peninga í að byggja upp fullkomna niðursuðuverksmiðju. Hvort það hafi hugsað sér að verða móðurfyrirtæki fyrir aðrar smærri verksmiðjur í landinu, skal ég ekki segja um, en hitt er einnig víst, að sá iðnaður hefur ekki heldur gengið vel. Ég hygg jafnvel, að hann hafi verið stöðvaður um tíma eða a. m. k. dregið mjög úr honum, og tel ég það einnig mjög mikinn skaða fyrir málið í heild.
Nefnd sú, sem ríkisstj. hefur skipað til þess að athuga, á hvern veg hægt er að halda jafnvægi í byggð landsins, hefur nokkuð athugað þessi mál og m. a. beðið Iðnaðarmálastofnun ríkisins að athuga gaumgæfilega fyrir sig, á hvern hátt væri hægt að skipuleggja niðursuðuiðnaðinn í landinu. N. hefur bent Iðnaðarmálastofnuninni á, að það sé óhjákvæmilegt að hennar áliti að hafa einhvern aðila, annaðhvort samband niðursuðuverksmiðjanna eða einhvern annan aðila, til þess að vera leiðandi aðili í þessu máli, gera öll innkaup, og síðan sé framleiðslan öll seld undir einu og sama merki. Það er ákaflega mikils virði í þessu máli, ef það væri hægt að koma því þannig fyrir. Ef móðurverksmiðjan gæti látið í té hinum smærri verksmiðjum úti á landinu ekki einasta leiðbeiningar og eftirlit með niðursuðunni, heldur einnig umbúðir allar og haft á hendi alla sölu og öll innkaup, þá telja þeir menn, sem í n. sitja, og einnig Iðnaðarmálastofnunin, að það sé eina leiðin til þess að komast nokkuð áfram í þessum málum.
Ég vildi því mjög mælast til þess, að hv. fjvn., sem fær þetta mál í hendur, vildi hafa samband við Iðnaðarmálastofnunina, fá frá henni upplýsingar um þetta mál, á hvaða stigi það stendur, ræða þá kannske einnig við þá n., sem hefur með jafnvægið að gera í byggðum landsins, til þess að gera sér grein fyrir því, hvort unnt sé að byggja þessa atvinnugrein upp, ekki einasta í Ólafsfirði, heldur og víðar á landinu. Ég hygg, að það sé enginn vafi á því, að í framtíðinni, ef hægt er að skipuleggja þetta þannig um allt land, séu möguleikar fyrir því að vinna upp allmikið niðursuðuiðnaðinn í landinu og selja framleiðsluna á erlendum markaði, svo framarlega sem við erum færir um að selja hana með sama verði og aðrar þjóðir.
Ég vil í þessu sambandi mega benda á, að það hefur nýlega fyrir áhrif frá Sölumiðstöð íslenzkra fiskframleiðenda verið seld í stórum stíl í Ameríku ný fisktegund, sem Ameríkumenn kalla fishsticks, og eru öll líkindi til þess, að það geti aukið stórkostlega útflutning Íslendinga á sjávarafurðum. Og mér þætti ekkert óeðlilegt, ef unnið yrði jafnvel að þessum sérstöku málum, sem hér um ræðir, þá væri hægt í framtíðinni að byggja hér upp öruggan atvinnuveg og örugga útflutningsvöru fyrir landsmenn.
Ég væri því fylgjandi, ef hægt væri að breyta þessari till. í það horf, að það ekki einasta tryggði Ólafsfirðingum áframhaldandi atvinnu, heldur að sú atvinna verði tryggð alveg sérstaklega á þessu sama sviði, en verksmiðjan verði ekki tekin og breytt til þess að gera einhverja allt aðra hluti, óskylda, því að mér er alveg ljóst af þeirri litlu þekkingu, sem ég hef á þessum málum, að það er mjög mikil framtíð fyrir Íslendinga og ekki sízt mjög mikil atvinnubót fyrir marga af þeim mönnum, sem búa úti á landinu, ef hægt væri að koma niðursuðuiðnaðinum á öruggan grundvöll og tryggja örugga sölu á vörunni, þar sem við höfum, eins og hv. 3. landsk. tók fram, eitthvert það bezta hráefni að vinna úr, sem fæst í veröldinni. Ég vil því vænta þess, að hv. fjvn. taki þetta mál eins og öll önnur mál, sem til hennar er vísað, mjög alvarlega og ræði við þessa aðila um möguleika til þess að koma þessu í viðunanlegt horf.