07.12.1954
Sameinað þing: 22. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 210 í D-deild Alþingistíðinda. (2568)

115. mál, Kötlusvæði

Flm. (Jón Kjartansson):

Herra forseti. Ég hef leyft mér að flytja þáltill. á þskj. 218 um rannsókn Kötlusvæðis.

Sumum þm. kynni ef til vill að þykja, að hér væri í mikið stórræði ráðizt að ætla sér að rannsaka eldfjall, sem er falið einhvers staðar undir jökli. En svo þarf þetta ekki að vera, ef nánar er að gætt.

Katla er án efa eitt hættulegasta eldfjall hér á landi, sem stafar af því, að Kötlugosi fylgja jafnan einhverjar þær stórfenglegustu náttúruhamfarir, sem gerast hér. Gos og hlaup koma svo skyndilega, að t. d. í síðasta Kötlugosi, 1918, hafði hlaupið náð hámarki á skemmri tíma en einni klukkustund. Slíkar hamfarir hafa oft valdið miklu tjóni og veitt mönnum þungar búsifjar.

Ýmsir hafa spurt mig og aðra Skaftfellinga, sem búa í námunda við Kötlu: Hvenær gýs Katla? Að sjálfsögðu getum við ekki svarað þessu, en gossaga Kötlu gefur hér nokkrar vísbendingar. Það má segja, að til séu öruggar heimildir um gos Kötlu frá því um miðja 16. öld. Á þessu tímabili hefur Katla gosið átta sinnum. Katla gýs 1580, svo verður goshlé í 95 ár. Svo kemur gos 1625 og goshlé 35 ár, gos 1660 og goshlé 61 ár, gos 1721, goshlé 34 ár, gos 1755, goshlé 68 ár, gos 1823 og goshlé 37 ár, gos 1860 og goshlé 58 ár, gos 1918, og það er síðasta Kötlugos.

Á þessu má sjá, að lengsta goshlé Kötlu hefur verið 68 ár, en hið stytzta 34 ár. Og enn er það að athuga, að síðasta goshlé var langt og núverandi goshlé ætti því að vera stutt, ef reglan helzt. 36 ár eru liðin frá síðasta gosi. Það er einu ári skemmra en hið lengsta af stuttu goshléunum og níu árum styttra en það stytzta af löngu hléunum.

Út frá þessari sögu má þá draga þá ályktun, að Kötlugos geti orðið hvenær sem er.

Ég hef leyft mér að flytja þessa þáltill., og með henni er stefnt að því að reyna, ef unnt er, að segja fyrir með einhverjum fyrirvara, hvenær ætla megi, að Katla gjósi. Tækist það, þá væri hægt að afstýra eða draga úr þeirri hættu, sem nálægum byggðum stafar af Kötluhlaupi.

En nú kynnu menn að spyrja: Er hér nokkuð hægt að gera? Ég hef rætt þetta við dr. Sigurð Þórarinsson jarðfræðing, sem án efa er allra fróðasti Íslendingur á þessu sviði, og hann hefur gefið mér upplýsingar um það, hvað tiltækilegt sé að gera. Ég hef leyft mér að prenta það sem fskj. með grg. þáltill.

Dr. Sigurður bendir fyrst og fremst á kortagerð og hallamælingar. — Ég vil í þessu sambandi geta þess, að árið 1943 hófu þeir Steinþór heitinn Sigurðsson og Jón Eyþórsson rannsókn á Kötlusvæði. Þeir athuguðu árlega úrkomu á svæðinu, og þeir gerðu kort af því. Nú er talið nauðsynlegt að fá miklu nákvæmara kort af þessu svæði en þeir höfðu færi á að gera og talið bezt að gera það kort með ljósmyndun úr lofti og væntanlega einhverjum þríhyrningamælingum. Tæki til slíkrar ljósmyndunar er til hér á landi, svo að þar er ekki miklu til kostað að láta þessa ljósmyndatöku fara fram.

Þá telur dr. Sigurður æskilegt að gera nákvæmt kort af efri hluta Mýrdalssands og hallamælingar til þess að sjá, hvernig sandinum hallar, og af því mætti ef til vill ráða eitthvað um það, hvaða stefnu hlaupið tæki, eftir því hvar það kæmi fram úr jöklinum. Ef t. d. reyndin yrði sú, að Mýrdalssandi hallaði til suðausturs aðallega, þá er stefnan beint á Álftaver og sú sveit í mikilli hættu og þá einnig vesturhluti Meðallands, næsta sveitin við Kúðafljót. Hún liggur mjög lágt, og hún gæti þá verið einnig í hættu og ekki síður ef til vill en Álftaverið. Ef hins vegar kæmi í ljós, að Mýrdalssandi halli til vesturs, og telja mætti, að gosið tæki stefnu vestur, þá gæti Víkurkauptún verið í hættu. Það er lítið þorp, eins og kunnugt er, og byggðin að langmestu leyti á sandinum niðri við sjóinn.

Þá nefnir dr. Sigurður dýptarmælingar á Kötlusvæðinu og Höfðabrekkujökli. Það er talið mjög mikilsvert að fá vitneskju um það, hvernig landslag er þarna undir jöklinum á Kötlusvæðinu, og með því mætti ef til vill sjá nokkuð, hvaða stefnu gosið tæki, og einnig og máske ekki síður væri mikilsvert að fá vitneskju um það, hvort vatn sé farið að safnast þarna undir í Kötlugjá eða á þessu svæði. Ef mikið vatn er farið að safnast þarna fyrir, þá bendir það vitanlega til þess, að það bráðni, að það sé einhver hiti neðan frá, og þá eru líkur til þess, að gos sé að nálgast. En með bergmálsmælingum er hægt að finna þetta hvort tveggja, bæði hvernig landslagið er þarna undir og einnig hvort vatn sé farið að safnast fyrir, og það er ákaflega mikilsvert atriði, eins og ég nefndi áðan. Slíkt tæki sem hér þyrfti með er ekki til hér á landi, en svo vill til, að það mun vera hægt að fá erlendan sérfræðing með þetta tæki og algerlega að kostnaðarlausu að öðru leyti en því að greiða ferðakostnað hans. Ég tel slíkt svo mikið kostaboð, að það væri óforsvaranlegt að hafna því. Það mun vera meiningin, að hann framkvæmi líka þykktarmælingu á Vatnajökli.

Þá nefnir dr. Sigurður jarðskjálftamælingar. Ég vil í þessu sambandi geta þess, að fyrsta gosdaginn 1918 kemur mjög snarpur jarðskjálftakippur í Vík í Mýrdal, sem er í næsta nágrenni Kötlu, kl. 1 eftir hádegi þennan dag, en kl. 3 kemur jökulhlaupið, gosið, með öllum þeim ógnum, sem því fylgdu. Nú er ekki nokkur vafi á því, að smávægilegar jarðhræringar hafa verið þarna áður, — maður veit ekki fyrir hvað löngu, — en einhvern tíma áður, enda þótt fólk hafi ekki orðið þess vart. Þess vegna telur dr. Sigurður Þórarinsson, og er vafalaust alveg rétt hjá honum, að það væri mjög æskilegt að hafa jarðskjálftamæli einhvers staðar í nánd við Kötlu, þar sem allar hræringar kæmu fram, og þá er hægt að staðsetja nákvæmlega, hvaðan þær koma. Og dr. Sigurður bendir á líklegasta stað til þessa Kirkjubæjarklaustur, og ég býst við, að það sé rétt athugað hjá honum eins og annað.

Dr. Sigurður nefnir þarna einnig aðrar jarðfræðilegar mælingar, hallamælingar, sem ég skal nú ekki fara nánar út í, — getur þess undir 4. atriðinu. Og loks í fimmta lagi getur hann um, að nauðsynlegt sé að fylgjast mjög vel með breytingum, sem úrkomur valda þarna á þessu svæði, en þær eru geysilega miklar, sem kunnugt er, síðustu árin og undanfarna áratugi.

Þetta er það helzta, sem dr. Sigurður hefur bent á. Og nú spyr máske einhver: Kostar þetta ekki gífurlegt fé, svo að það séu ekki tiltök að gera neitt í þessu? En eins og dr. Sigurður hefur bent á, er aðalkostnaðurinn við þykktarmælingarnar, þar sem svo vill til, að við getum fengið erlendan sérfræðing með tæki algerlega að kostnaðarlausu, nema greiða ferðakostnað mannsins, og hann telur, að þessi kostnaður mundi nema um 15 þús. kr. Annar kostnaður yrði ekki mikill, hygg ég, af því að þetta verk þarf að vinnast fyrst og fremst í sjálfboðavinnu. Og ég vil í því sambandi óska þess, ef þessi till. verður samþ. hér á Alþ., að Jöklarannsóknafélaginu yrði falið að rannsaka þetta mál, vegna þess að þar starfa áhugamenn og vinna í sjálfboðavinnu. Þetta er ákaflega mikilsvert í þessu sambandi.

Ég vil svo að lokum leggja til, að þegar þessari umr. er lokið, verði till. vísað til hv. fjvn.