15.12.1954
Neðri deild: 31. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 132 í B-deild Alþingistíðinda. (258)

13. mál, aðstoð við togaraútgerðina

Gunnar Jóhannsson:

Herra forseti. Út af ummælum, sem hæstv. forsrh. hafði hér áðan, vil ég leyfa mér að upplýsa eftirfarandi: Samkvæmt sameiginlegu áliti beggja aðila í samninganefnd um kjör togarasjómanna voru þær kjarabætur, sem fengust til togarasjómanna, taldar nema tæpum 400 þús. kr., miðað við þær upplýsingar, sem fyrir lágu. Eftir var þá og er enn að semja um kjör og kjarabætur til yfirmanna á togaraflotanum. Hvað sú upphæð nemur hárri upphæð, er ekki hægt að fullyrða neitt um, fyrr en þeim samningum hefur verið lokið, en ekki er varlegt að áætla þær kjarabætur lægri en 100–150 þús. kr. Eftir þessu eru upplýsingar, sem hv. 11. landsk. gaf hér áðan, réttar um þetta mál. — Ég vil svo að lokum bæta því við, að þessi útreikningur liggur fyrir, og getur hver fengið að sjá hann sem vill.