16.03.1955
Sameinað þing: 46. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 243 í D-deild Alþingistíðinda. (2593)

156. mál, samvinnunefnd

Flm. (Karl Kristjánsson):

Herra forseti. Till. þessi, sem nú er tekin til umr. og flutt er af okkur hv. þm. A-Sk., er á þessa leið, með leyfi hæstv. forseta:

„Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að hlutast til um, að félagssamtök atvinnurekenda og verkalýðssamtökin í landinu skipi fulltrúa í samvinnunefnd, er hafi það hlutverk að afla upplýsinga frá ári til árs um afkomu atvinnuveganna og hag almennings, í þeim tilgangi, að leita megi álits nefndarinnar, þegar ágreiningur verður eða ætlar að verða um kaup og kjör.“

Það er mikill vandi að skipta tekjum þjóðarinnar, svo að hver fái þann hlut, sem honum réttilega ber. Hver og einn vill auðvitað ekki bera úr býtum minna en hann þarfnast handa sér og sínum, en fyrst og fremst á hann, þegar tekjunum er skipt, heimtingu á því sem hann hefur unnið fyrir á sómasamlegan hátt og löglegan. „Sá, sem ekki vill vinna, á ekki heldur mat að fá“, segir gamall íslenzkur málsháttur. Í stjórnarskrá Rússlands mun vera svipuð ályktun, og ætti sú skoðun hvergi að valda ágreiningi. En sá, sem ekki getur unnið, á hins vegar að fá „sína nauðsyn bætta“ með tillagi mannúðar af hlut hinna, sem eru vinnandi. Fyrir því er reynt að sjá með löggjöf um tryggingar og skyldur sveitarfélaganna. Fyrrum samdi hver einstaklingur um kaup sitt og vinnukjör. Látið var svo heita, að framboð og eftirspurn eftir vinnu réði verðlagi hennar. En í raun og veru réð vinnuveitandinn aðallega, hvað hann lét í té. Húsmóðirin skammtaði hjúinu matinn og húsbóndinn kaupið. Hvort tveggja var skorinn skammtur af vinnuveitendum og misjafnlega vel úti látinn. Með þeim hætti báru húsbændurnir auðvitað einir fulla ábyrgð á, að til væri matur á heimilinu í máltíðirnar og fé til þess að greiða kaupið. Hjúin báru alls enga ábyrgð í því efni. Síðan þetta ástand var á Íslandi, er ekki ýkjalangt og ekki lengra en margir hv. alþm. muna. En ástandið er orðið gerbreytt. Þegar litið er til baka, þá óar manni við því, hve sá, er seldi vinnu sína, var undirokaður og fékk litlu að ráða um kjör sín. Eðlilegt er, þegar á þetta er litið, að breytingarnar hafi orðið á eina leið. Kaupþegarnir máttu ganga svo langt sem þeir gátu komizt í kröfum sínum. Þeir komust ekki of langt þrátt fyrir það, enda voru þeir lengi vel sundraðir og ósamtaka. Nú horfir öðruvísi við. Vinnuhjú er nú ekki lengur að tala um, og verkafólkið hefur öflug samtök með sér, sem geta stofnað til allsherjarverkfalla til áherzlu kröfum sínum. Með þeim verkföllum getur kaupþeginn stöðvað framleiðslu þjóðarinnar að miklu leyti, rofið viðskiptakerfi landsmanna og samgöngur. Er þá svo komið í raun og veru, að aðstaðan til þess að skammta hefur flutzt frá húsbændunum, sem ég áðan nefndi, til þeirra, er selja vinnuna. En um leið hefur líka ábyrgðin á því, að búið beri sig og geti greitt það, sem krafizt er, flutzt að verulegu leyti á herðar kaupþegans. Atvinnurekendur geta að vísu einnig gert verkbönn og valdið truflunum í þjóðlífinu, ef ekki semur um kaup og kjör, en skilyrði þeirra til allsherjarsamtaka eru miklu minni en verkalýðsins. Þetta er staðreynd, sem sjálfsagt er að gera sér grein fyrir. Ekki sízt þarf verkalýðurinn að gera sér grein fyrir þessu. Ábyrgð hans í kaupgjaldsmálum og atvinnumálum er alltaf að þyngjast. Hann er — það verður að viðurkenna sem staðreynd — orðinn sá sterkari og verður þess vegna sjálfur að gæta hófsins, en getur ekki varpað áhyggju sinni í því efni lengur á það, að mótstaðan segi til, þannig að fyrr nemi staðar en of langt sé gengið. Það er þannig komið nú, að það er hægt að ganga of langt, heimta of mikið kaup af atvinnuvegunum, þótt það þurfi ekki um leið að vera of mikill eyðslueyrir fyrir þann, er kaupið fær. Og sé heimtað of mikið, séu heimtuð og tekin meiri laun en atvinnuvegurinn ber, sligast hann eins og hrossið, sem settar eru of þungar klyfjar á, eða báturinn, sem sekkur af því, að hann er ofhlaðinn. Launþeginn, sem gerir meiri kröfur en atvinnuvegurinn þolir, eyðileggur hest sinn og skip sitt. Þess vegna þarf nú orðið að finna, hvert gjaldþol atvinnuveganna er og hver er hinn rétti hlutur launþegans í tekjunum.

Réttur úrskurður í þessu efni fæst varla með aflraunum verkfalls og verkbanns. Fyrst og fremst er engin trygging fyrir því, að sá sterkari hafi rétt fyrir sér, og í öðru lagi eru verkföll og verkbönn of dýr fyrir þjóðlífið. Það er í raun og veru bæði skortur á skynsemi og bróðerni að beita slíkum aðferðum, sem eru aðferðir hnefaréttarins og nauðvörn ein réttlætir. Þjóðfélög eiga að einbeita sér til þess að vaxa frá þeim aðferðum, enda miðar líka í þá átt hér á landi, þótt vinnulöggjöf Íslendinga sé ung. Frestur verkfallsins 1. marz s.l. er vottur þessa og gefur góðar vonir um, að gera megi ráð fyrir heilbrigðri þróun í þessum málum á næstu árum.

Fyrsta lagasetning á Íslandi um vinnudeilur mun hafa átt sér stað 1925. Hér er því ekki um langa sögu að ræða í þeirri löggjöf. Aðrar þjóðir hafa yfirleitt miklu meiri reynslu og sumar margra alda. En vitanlega hefur íslenzka vinnulöggjöfin verið sniðin eftir aðfengnum fyrirmyndum, og þess vegna er hún alls ekki frumstæð löggjöf. Hins vegar hefur hún hvað eftir annað ekki getað komið í veg fyrir harða árekstra og mikið tjón af ófriði, sem hefur verið í kaupgjaldsmálum. Reiknað hefur verið út, að milljónatugir hafi þannig glatazt þjóðinni og ekkert komið í staðinn, nema þá reynslan, því að slík töp, sem hljótast af vinnudeilum, eru eins og eldsvoðatjón, þar sem engin er vátryggingin. En hví ekki að nota reynsluna og afstýra því, að aftur brenni? Hví ekki að athuga í bróðerni, hvað helzt mundi geta komið í veg fyrir vinnukjaraófrið og verkföll og verkbönn? Öllum er að verða ljóst, að ofríkið getur hefnt sín á hvora hliðina sem er.

Arðrán er ekki aðeins óréttmætt, heldur háskalegt, hvort sem vinnuþeginn eða vinnuveitandinn er arðrændur. Það þjóðfélag, sem lætur arðrán viðgangast, þjáist eins og maður, sem gengur með skæða meinsemd.

Þegar skipta á þjóðartekjunum með því að ákveða kaup og kjör, þá er það hagfræðilegt rökhyggjudæmi, sem reikna þarf og reikna rétt, ef vel á að fara, bæði reikna það rétt í vélinni og leggja rétt fyrir vélina. Þetta á að vera bæði skylt og hægt að gera í menningarþjóðfélagi, sem hefur byggt sig upp félagslega eins og íslenzka þjóðfélagið og heldur hagskýrslur.

Sumir halda því fram, að þennan útreikning eigi sérstakir dómstólar að annast og úrskurðum þeirra eigi skilyrðislaust að hlíta, verkföll og verkbönn eigi að banna með lögum. Telja þeir menn, að kjara- og kaupgjaldsmálaþrætum megi skera úr með dómum, eins og öðrum ágreiningi manna á meðal. Þeir benda á, að menn eigi frelsi sitt og æru sína undir dómsúrskurðum, og spyrja, hvort vandara sé um í fjárhagsmálum slíkum sem þessum. Ýmsar þjóðir hafa í löggjöf sinni gerðardóma í vinnudeilum, einkum ef mjög lengi dregst, að saman gangi í samningum, eða aðilar verða ásáttir um að leggja málið fyrir gerðardóm. Á Íslandi hefur verið gripið til gerðardóms með sérstökum lögum. Með till. okkar hv. þm. A-Sk. er alls ekki að slíku stefnt. Hún er miðuð við þá ríku þjóðfélagslegu nauðsyn að koma í veg fyrir það, að til ófriðar dragi í kaupgjalds- og kjaramálum, eyða ástæðum til verkfalla og verkbanna, afstýra því friðsamlega, að það ástand skapist, sem leiði af sér árekstrana og tjónin, sem af árekstrunum leiðir fyrir alla.

Hið venjulega er, að of seint er gengið til samninga, þegar kröfur hafa fram komið um breytingar, kröfurnar ekki gerðar af nákvæmni, heldur of miklu handahófi, gert ráð fyrir, að af þurfi að slá hvort sem er í stríði, og þannig ögrað til átaka, ekki setzt að samningaborði fyrr en hugir hafa hitnað um of.

Till. okkar er um, að Alþingi feli ríkisstj. að hlutast til um, að félagssamtök atvinnurekenda og verkalýðssamtökin í landinu skipi fulltrúa í samvinnunefnd, er hafi það hlutverk að afla frá ári til árs upplýsinga um afkomu atvinnuvega þjóðarinnar og hag almennings í þeim tilgangi, að leita megi álits nefndarinnar, þegar ágreiningur verður eða ætlar að verða um kaup og kjör.

Þessi till. er ekki flutt með sérstöku tilliti til þeirrar kjaradeilu, sem nú hefur á skollið, heldur vegna ókomins tíma lengra fram. Flm. hugsa sér, að þessi n., er skipuð sé að jöfnu af atvinnurekendum og kaupþegum, sé alltaf til og viðbúin, hún reikni — eða láti reikna á hæfilegum fresti og að gefnum tilefnum, hvaða breytingar sé eðlilegt að gera á kaupi eftir afkomu atvinnuveganna og þá sérstaklega framleiðslunnar, hún hafi ekki úrskurðarvald, en sé ráðgefandi. Af þeirri ástæðu er ekki heldur gert ráð fyrir oddamanni í n. Tillögumenn stinga ekki upp á, hve margir skuli vera í n. Þeir geta verið tveir, fjórir eða jafnvel sex. Ólíklegt er, að heppilegt sé, að þeir séu fleiri, en sanngjarnt, að talan fari eftir samkomulagi þeirra, er n. skipa.

Já, vel á minnzt, — hv. þm. muna sjálfsagt eftir hinni svonefndu sex manna nefnd, sem skipuð var 1943, og því samkomulagi, sem varð innan hennar um verðlagsgrundvöll landbúnaðarvara. Starf þeirrar n. leiddi af sér frið þann, sem verið hefur alla stund síðan um þau kjaramál, sem hún fjallaði um grundvöll fyrir. Sú reynsla styður sterklega þessa till., sem hér liggur fyrir.

Það er fullkomin ástæða til þess að álykta, að ef n., sem till. ræðir um, hefði verið skipuð, þótt ekki hefði verið fyrr en í fyrrasumar, þá hefði ekki sú deila, sem nú stendur yfir, komizt á það stig, sem hún er nú, hvað þá lengra. Blöð allra flokka hafa í sambandi við þessa deilu viðurkennt, að ófriður á þessum sviðum sé þjóðarböl, sem forðast beri af fremsta megni. Öll hafa þau einnig viðurkennt, að hagfræðilegir útreikningar séu það, sem gilda eigi. Sama hefur komið fram hjá öllum, sem á málið hafa minnzt hér á hinu háa Alþingi. Gerðir hafa verið hagfræðilegir útreikningar. En þeir eru vefengdir með skírskotun til, að ekki hafi verið teknir réttir liðir til útreiknings. Ef nú hefðu verið til niðurstöður útreikninga, sem fulltrúar beggja aðila í n. eins og þeirri, sem till. er um, hefðu áður með rólegri yfirvegun og ýtarlegri komið sér saman um hvernig leitað skyldi, þá hefði verið óþarft að deila, og lausn málanna fengin. Sé þetta ekki rétt ályktað, þá er ekki að marka þær yfirlýsingar um friðarvilja, sem ég hef vitnað í að komið hafa fram í blaðaskrifum og ræðum.

Í nefndina þurfa vitanlega að veljast góðir menn, réttlátir og glöggir. Enginn vafi er á því, að bæði atvinnurekendur og verkalýðs- og launþegasamtök hafa slíkum mönnum á að skipa, ef eftir er kallað og ef vilji er fyrir hendi hjá samtökum þessara stétta til þess að leysa vandann friðsamlega, og um viljann virðist ekki ástæða til þess að efast, eins og komið er í ljós í yfirlýsingum allra, er látið hafa til sín heyra, um nauðsyn vinnufriðar og rétt hvers og eins til þess að fá sinn hlut af tekjum þjóðarinnar svo sanngjarnlega mældan og réttlátlega úti látinn sem unnt er.

Ég legg til, að till. verði að lokinni þessari umr. vísað til síðari umr. og til hv. allshn.