20.04.1955
Sameinað þing: 53. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 253 í D-deild Alþingistíðinda. (2599)
156. mál, samvinnunefnd
Sigurður Bjarnason:
Herra forseti. Ég vil leyfa mér að lýsa yfir fylgi mínu við þá till., sem hér liggur fyrir. Til þess er alveg sérstök ástæða einnig fyrir mig, því að fyrir þremur árum flutti ég ásamt fjórum öðrum. flokksmönnum mínum till. hér á Alþ., sem hlaut samþykki og gekk mjög í sömu átt og sú till., sem nú er lagt til að hér verði afgreidd.
Ég vil aðeins láta í ljós óánægju mína með það, að sú till., sem samþykkt var um þetta efni fyrir þremur árum, skuli ekki hafa verið framkvæmd.
Það er góðra gjalda vert af hálfu hv. Alþ. að gera ályktanir um góð mál og skynsamleg. Hitt er þó töluvert meira virði, að þær séu framkvæmdar, þau góðu mál og skynsamlegu hugmyndir komist í framkvæmd.
Sú till., sem samþ. var 17. des. 1952 frá okkur 5 þm. Sjálfstfl., var um rannsókn á greiðslugetu atvinnuveganna í samvinnu við samtök atvinnurekenda og launþega, og hún var á þessa leið, með leyfi hæstv. forseta:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að láta fram fara rannsókn á greiðslugetu og afkomu aðalatvinnuvega þjóðarinnar með það fyrir augum að fá úr því skorið, hversu hár rekstrarkostnaður atvinnutækjanna megi vera, til þess að þeim verði haldið í gangi sem lengstan hluta hvers árs og þeir veiti sem varanlegasta atvinnu. Skal ríkisstj. leita aðstoðar og samvinnu við samtök launþega og atvinnurekenda um framkvæmd þessarar rannsóknar, er skal lokið fyrir 1. nóv.1953.“
Til þess að skýra örlítið nánar, án þess að lengja umr. um þessa till. um of, vildi ég leyfa mér að lesa hér tvo stutta kafla upp úr þeirri grg., sem fylgdi þessari till. Þar er komizt að orði á þessa leið, með leyfi hæstv. forseta:
„Rannsókninni er ætlað að sýna, hvern rekstrarkostnað hinar ýmsu greinar atvinnulífsins geta borið. Ef niðurstöðurnar sýna, að rekstrarkostnaður í sumum atvinnugreinum sé svo hár, að taprekstur sé óhjákvæmilegur, er eðlilegt, að látin sé, fara fram framhaldsrannsókn á því, með hverju móti taprekstri verði forðað, hvort unnt sé að lækka einhverja kostnaðarliði eða hverjar ráðstafanir aðrar séu tiltækilegar til þess, að tekjur hrökkvi fyrir útgjöldum. Ef rannsóknin á hinn bóginn sýnir, að um verulegan ágóða sé að ræða í atvinnugreininni, mundi eðlilegt, að hlutdeild vinnunnar í arði fyrirtækisins yrði aukin með kauphækkunum eða á annan hátt.“
Síðan er á það bent í grg., að það hafi oft orðið mjög til þess að auka á tortryggni í samskiptum atvinnurekenda og launþega, að allt hefur verið á huldu um afkomu einstakra atvinnugreina. Niðurstöður slíkrar rannsóknar, sem till. gerir ráð fyrir, ættu því, þegar þær lægju fyrir, að geta haft nokkur áhrif í þá átt að eyða óvild og tortryggni milli stétta og leggja grundvöll að varanlegum vinnufriði í landinu.
Loks segir í grg. þessarar þáltill., „að það ætti ekki að vera ágreiningsmál, að megináherzlu beri að leggja á það í efnahagsmálum þjóðarinnar, að atvinna megi vera næg og jöfn sem lengstan tíma af árinu. Slíkt verður þó ekki tryggt til lengdar, nema séð sé fyrir því, að ekki sé taprekstur í hinum mikilvægustu atvinnugreinum. Hafa ýmsar till. komið fram um það hér á landi og erlendis að finna einhvern grundvöll fyrir vísitölu, er sýndi afkomu þjóðarbúsins og atvinnuveganna, og yrði kaupgjald m. a. miðað við slíka vísitölu. Teljum við flm. þessarar till. eðlilegt, að í sambandi við rannsókn þá, er hér er um að ræða, sé einnig athugað, hverjir möguleikar væru á útreikningi slíkrar vísitölu og hvort hugsanlegt væri, að kaupgjald yrði að einhverju eða öllu leyti við hana miðað.“ „Að sjálfsögðu,“ segir í lok grg. „yrði um slíkt að hafa fullt samráð við hagsmunasamtök launþega og atvinnurekenda, enda er gert ráð fyrir, að fullt samráð sé við þau haft um fyrirkomulag og framkvæmd þessarar rannsóknar.“
Ég held, að það fari ekki á milli mála, að það, sem vakti fyrir flm. þessarar till., sem samþ. var með góðu samkomulagi á hv. Alþ. fyrir þremur árum, sé nokkurn veginn alveg það sama og vakir fyrir flm. þeirrar till., sem hér er til umr., og fyrir þeirri hv. n., sem skilað hefur áliti um hana og hv. 3. landsk. gerði glögga grein fyrir í ræðu sinni hér áðan. Formið er að vísu nokkuð annað á þeirri till., sem hér liggur fyrir, eins og hún nú er orðin. Þar er lagt til, að Alþýðusamband Íslands og Vinnuveitendasamband Íslands skipi hvort um sig fulltrúa í samvinnunefnd, sem hafi það hlutverk, sem báðar till. gera ráð fyrir.
Ég skal ekki fjölyrða um þetta. Ég vil aðeins ítreka þá skoðun okkar flm. till. frá 1952, að það er mál málanna í þessu landi, að vinnuveitendur og vinnuþiggjendur geti haft einhvern öruggan grundvöll til að standa á í samskiptum sínum, fullkomna vitneskju um það, hvað atvinnuvegirnir bera og hverjir möguleikar eru á hlutdeild vinnunnar í arði framleiðslutækjanna. Þetta er bókstaflega eitt grundvallarskilyrði þess, að þróun og uppbygging geti haldið áfram í okkar þjóðfélagi, og grundvallarskilyrði þess, að vinnufriður haldist.
Ég vil aðeins segja það að lokum, að ég vil láta þá ósk og von í ljós, að það takist betur til um framkvæmd þeirrar till., sem nú á að samþ. og ég tel skynsamlega og eðlilega, heldur en um framkvæmd þeirrar till., sem ég gat um og samþ. var fyrir þremur árum, því að eins og ég sagði áðan er lítið gagn í því að hrinda góðum og skynsamlegum málum og hugmyndum úr vör, ef við það eitt er látið sitja að ýta þeim á flot. Það þarf að róa í land aftur. Það þarf að framkvæma hinar skynsamlegu og góðu hugmyndir, þannig að það geti orðið almenningi í landinu, í þessu tilfelli vinnuveitendum og vinnuþegum og þjóðinni í heild að gagni.
Ég vil láta í ljós þá ósk, að samþykkt þessarar till. og framkvæmd þeirrar rannsóknar, sem hún gerir ráð fyrir, megi verða grundvöllur að auknum vinnufriði í landinu, bættri sambúð milli stétta, þannig að við þurfum ekki að horfa upp á það með tiltölulega stuttu millibili, að stórátök hefjist milli aðalstétta þjóðfélagsins til stórkostlegs tjóns fyrir þær og landsmenn alla.