13.04.1955
Sameinað þing: 51. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 275 í D-deild Alþingistíðinda. (2617)
55. mál, atvinnumál í Flateyjarhreppi
Frsm. (Pétur Ottesen):
Ég vil aðeins taka fram, að hv. þm. Barð. þarf ekki að koma neitt á óvart, að ætlun mín eða nefndarinnar hafi ekki verið að afhenda húsið kvaðalaust. Það vakti aldrei fyrir n. annað en það, að húsið yrði afhent með þeim skuldum, sem á því hvíla og ekki eru 2 millj. kr. eftir upplýsingum hv. flm., því að hann segir hér í grg., að það muni nú hvíla á því 1 millj. og 400 þús. kr., og er það náttúrlega ærið nóg upphæð. Hitt er svo vitanlega á valdi ríkisstj., að semja um það, með hvaða hætti hún að þessu leyti afhendir húsið, því að tilgangurinn með þessari till. er vitanlega sá að geta endurreist atvinnulífið í Flateyjarhreppi. Og ef það sýnir sig svo í meðferð þessa máls, að það verði ekki gert með því, að Flateyjarhreppur taki á sig allar skuldir, sem á húsinu hvíla, þá vitanlega verður að koma til mat ríkisstj. á því, hvað hreppurinn geti staðið undir mikilli upphæð, þannig að þeim tilgangi verði náð að endurreisa atvinnulífið í Flateyjarhreppi. Og mér þykir það undarlegt, ef hv. flm. vill halda því fram, að nokkuð hafi komið fram í okkar samræðum um þetta mál, sem sé í andstöðu við það, sem ég nú hef lýst.