13.04.1955
Sameinað þing: 51. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 279 í D-deild Alþingistíðinda. (2628)
98. mál, Geysir
Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):
Herra forseti. Mér finnst nauðsynlegt, að það komi hér fram, hver munur sé á brtt. hv. n. og till. frá flm.
Ég verð að játa, að mér finnst brtt. vera harla óákveðin í orðum, að það á að rannsaka, hvað gera megi til þess, að Geysir haldi sérstöðu sinni sem náttúrufyrirbæri. Mér finnst þetta vera býsna loðið og það sýnu ákveðnara, sem lagt er til í sjálfri frumtill. Þar eru talin upp ákveðin atriði, sem ætlazt er til að framkvæmd séu.
En látum það vera. Meginmunurinn liggur þó í niðurlagi till., að eins og hv. 1. þm. N-M. (PZ) og hv. 2. þm. Árn. (SÓÓ) bera till. fram, þá er tekið fram berum orðum: „Kostnaður við rannsóknirnar greiðist úr ríkissjóði“. En þetta er fellt niður í till. hv. n., og ef Alþingi fellir beinlínis úr till. heimild til fjárgreiðslu, þá verð ég að telja, að eftir almennum skýringarreglum sé sú heimild ekki fyrir hendi. Ef fara á eftir óskum hv. fyrra flm., hv. þm. N-M., um að verja nauðsynlegu fé úr ríkissjóði til þessara rannsókna, þá þarf skýrari heimild til þess en er í till. eins og hv. fjvn. leggur til að hún sé, þar sem berum orðum er felld niður heimildin til fjárgreiðslu.