13.04.1955
Sameinað þing: 51. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 280 í D-deild Alþingistíðinda. (2630)

98. mál, Geysir

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Ég er út af fyrir sig þakklátur, að ekki skuli í þessu felast gildra, sem eigi að leiða til falls ríkisstjórnarinnar. Sagt er, að þær séu nógar fyrir, þó að þessi bættist ekki við. Ég hygg hins vegar, að aths. þm. Borgf. byggist á því, að hann heyrði ekki ræðu hv. 1. þm. N-M. eða hefur þá ekki veitt henni athygli. Hv. 1. þm. N-M. sagði einmitt, að Geysisnefndin hefði verið alveg óvirk eða gagnslaus, af því að hana hefði vantað peninga, og þess vegna væri það eina, sem þyrfti nú að gera, að fá henni fjárráð, en hv. þm. Borgf. taldi óþarft að veita nokkra fjárveitingaheimild, úr því að þetta ætti að ganga til þessarar góðu nefndar. Þarna eru þeir gersamlega á öndverðum meiði, hv. flm. og hv. þm. Borgf., og kemur enn hið sama fram og í því máli, sem var rætt næst á undan, um frystihús í Flatey, að þar datt botninn úr öllu, þegar að því kom að ræða um fjárveitinguna. Þó að ég vilji ekki lasta hv. n., þá finnst mér, að hún hafi athugað sum mál betur en þau, sem liggja fyrir hv. Alþingi í dag.