04.11.1954
Sameinað þing: 11. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 365 í D-deild Alþingistíðinda. (2702)
58. mál, vantraust á menntamálaráðherra
Haraldur Guðmundsson:
Herra forseti. Síðasti hv. ræðumaður talaði um helmingaskipti milli stjórnarflokkanna. Þeir deildu gróðanum jafnt, stöðunum jafnt, völdunum, virðingunni og fé jafnt. Ég er ekki alveg viss um, að þessi hv. þm. hafi farið alveg rétt með. Ég hygg, að í þessari stjórnarsamvinnu hafi reynslan orðið sú, að íhaldsmennirnir hafi sýnt sig vera betri „forretningsmenn“ en framsóknarmennirnir. Íhaldsmenn hafa sinn fugl í hendi, þeir hirða gróðann jafnóðum. Framsóknarmennirnir eiga sína fugla að nokkru leyti í skógi, og það er alltaf óvíst nokkuð, hvernig gengur að handsama þá. Enn þá eru „rafmagnsplönin“ ekki annað en áætlanir. Þau ganga því aðeins fram og verða að veruleika, að horfið verði frá núverandi stjórnarstefnu í efnahagsmálunum. Og enn þá er óséð, því miður, hversu mikill verður tekjuauki landbúnaðarins vegna þeirra fjárveitinga, sem honum hafa verið veittar á undanförnum árum, og hinnar nýju tækni, sem þar er tekin upp.
Mér er ekki kunnugt um, að hæstv. ríkisstj., sem nú hefur setið við völd í fjögur og hálft ár, tel ég, hafi nokkrar ráðstafanir gert enn þá til þess að tryggja, að sú framleiðsluaukning, sem hlýtur að leiða af aukinni tækni, auknu fjármagni og bættum vinnubrögðum í landbúnaðinum, komist í verð. Ef svo er, að hæstv. ríkisstj. hafi einhverjar ráðstafanir gert í þessu efni, væri gott, nauðsynlegt, skylt að gefa upplýsingar um það. Mér er ekki kunnugt um það. Ég hygg, að allt sé enn þá í fyllstu óvissu um tekjuauka landbúnaðarins vegna hinna stórfelldu framkvæmda og hins mikla fjár, sem í hann er lagt.
„Góðæri“ tveggja undanfarinna ára, gróðaárin, sem ég kalla, stafar af því, að hundruð milljóna króna hafa bætzt við venjulegar tekjur landsmanna vegna dvalar setuliðsins hér. Allt þetta fé hefur orðið beinn eyðslueyrir undir stjórn hæstv. núverandi ráðh. Slíkur óvæntur, óvenjulegur og óeðlilegur tekjuauki átti að sjálfsögðu að bindast að miklu leyti, að bindast til ákveðinna framkvæmda, framkvæmda í þá átt að efla þær atvinnugreinar og treysta, sem fyrir eru í landinu, og skapa aðrar nýjar, til þess að hægt verði að vísa því fólki, sem nú nýtur vinnu í sambandi við dvöl varnarliðsins, til arðvænlegri og arðbærari starfa, þegar þeirri vinnu er lokið.
Ekkert, bókstaflega ekkert, hefur hæstv. ríkisstj. aðhafzt í þessu máli. Hún hefur látið reka á reiðanum, unað við góðæri gróðaáranna og talið sér trú um, að allt sé í himnalagi. Ríkisstj. hefur lofað mörgu fögru. Hún hefur lofað því, að stórfellt átak skuli verða gert — látið skrifa um það í blöð sín — til þess að bæta úr húsnæðisleysi kaupstaðanna. Það er senn liðinn mánuður af starfstíma þessa þings. Ég minnist þess ekki, að ég hafi séð eina einustu till. eða frv. frá stjórninni eða flokkum hennar um fjárframlög í þessu skyni eða aðrar aðgerðir. Hitt veit ég, að það er rígneglt fyrir dyrnar í bönkum og öðrum lánsstofnunum, þegar þangað er leitað um lán til íbúðabygginga. Það veit hæstv. viðskmrh. án efa líka.
Fyrir fjórum og hálfu ári var því lofað með lagasetningu, í gengislögunum sjálfum, að sparifjáreigendur, sem ekki var hægt að neita að voru hart leiknir með gengislækkuninni, skyldu fá nokkra uppbót á innstæður sinar, alls 10 millj. kr. Enn er engan eyri farið að borga af þeim uppbótum. Hverjar þær verða, hvenær þær koma, veit enginn maður. En á meðan ganga menn biðjandi til peningamangara til þess að fá nokkur þúsund krónur. Bankarnir, sem geyma þetta fé, eru lokaðir.
Ég sagði, að hundruð milljóna rynnu til milliliða og gróðamanna í þjóðfélaginu. Að sjálfsögðu er skylt að renna nokkrum stoðum undir þessar fullyrðingar. Ég skal fyrst minna á skrif sjálfra stjórnarblaðanna og ummæli þeirra um flokkana, hvorn um sig, um hinn stórfellda gróða, sem hafi verið á olíuflutningum og olíuverzlun hér í landinu. Á einum einasta farmi átti ólöglegi gróðinn að vera, að sögn íhaldsins, um 1 millj. og 700 þús. kr., og hagnaður á leigu eins flutningaskips átti að nema 700 þús. kr. Því var svarað af framsóknarmönnum, að þetta væri dropi í hafið, samanborið við gróðann hjá hinum olíufélögunum.
Ég hef fengið ýtarlega skýrslu hjá verðgæzlustjóra um álagningu á ýmsar vörur, eftir því sem verðreikningar sýna, sem teknir voru á innflutningi í maí í vor. Mér er sagt, að sykur, sem er algeng nauðsynjavara, — og fjmrh. segir að sé tollfrjáls, — sé í lægsta álagningarflokki. Samkv. þessari skýrslu kostaði hvorki meira né minna en kr. 84.90 að koma innihaldi eins 100 kg poka af sykri frá pakkhúsi á hafnarbakkanum og til neytendanna. Það kostaði ekki minna en 6 stunda vinnu fyrir Dagsbrúnarmann að skipta þessum 100 kg poka. Þetta er lægsta álagningarvara, þetta er ekki nema 31%. Á haframjöl, sem er flutt inn í pökkum, svo að ekki þarf annað en að taka pakkann og rétta hann fram á borðið, er álagning hvorki meira né minna en 56%. Við þessa, athugun mína á skýrslu verðlagsstjóra hefur eitt sérstaklega vakið athygli mína. Með samkomulaginu frá 1952 var ákveðið að lækka álagningu á nokkrar einstakar vörutegundir, þ. á m. léreft, sirs og nokkrar fleiri vefnaðarvörutegundir. Samkvæmt skýrslu verðgæzlustjóra er í maí í vor álagningin á þessar vörutegundir að meðaltali, í þeim flokkum, sem hann tók, frá 8% og upp í 15%, og þori ég ekki að fullyrða, hvort það er í samræmi við samkomulagið, en þetta er niðurstaðan, sem verðgæzlustjóri fær. Á öðrum vefnaðarvörum, sem eru ekki bundnar slíku samkomulagi, er niðurstaðan hins vegar sú, að heildsöluálagning að meðaltali hefur reynzt 17.7%, eða fullkomlega tvöfalt hærri en á þeim vörum, sem samkomulag var um álagninguna á. Smásöluálagningin er einnig hærri á þessum vörum. Þetta gefur nokkra hugmynd um, hvað hæstv. ríkisstj. gæti gert, ef hún vildi gera eitthvað til þess að halda verðlaginu niðri. Til þessara aðgerða, sem ég nú nefndi, að samningsbinda álagninguna á þessar vörutegundir, þurfti þriggja vikna verkfall hjá félögunum hér í Reykjavík. Það er hart, að ríkisstjórn eins lands skuli vera svo rígbundin við hagsmuni milliliða, heildsala og gróðamanna, að það þurfi að knýja hana til þess að nota vald sitt til að lækka nauðsynjar almennings.
Herra forseti. Góðir tilheyrendur. Minn tími er þrotinn. Ég hef reynt að sýna fram á það, að stefna ríkisstj., að minni hyggju, getur ekki til annars leitt en vaxandi ófarnaðar hjá okkur. Fyrirhyggjuleysi fullkomið, nánast líkt hugsað og hjá Loðvík sáluga Frakkakonungi: „Það lafir, meðan ég lifi“. Mér virðist einkunnarorð stjórnarinnar vera að njóta gróðans, góðærisins og láta að öðru leyti reka á reiðanum. Eigi að skipta hér um, er það alveg bersýnilegt, að fyrsta ráðstöfunin, eina ráðstöfunin, sem líkleg er til árangurs, er að veita hæstv. ríkisstj. lausn í náð.