04.11.1954
Sameinað þing: 11. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 373 í D-deild Alþingistíðinda. (2704)

58. mál, vantraust á menntamálaráðherra

Landbrh. (Steingrímur Steinþórsson):

Herra forseti. Góðir hlustendur nær og fjær. Ég ætla ekki að fara að spilla í neinu þeirri glansmynd, sem hv. síðasti ræðumaður brá upp af hæstv. menntmrh. og dómsmrh. Hún var að vísu geysi-glæsileg, en það er ekki neinn tími til þess að fara að rökræða það nú að öðru leyti. Því mun ég láta það eiga sig.

Þessum útvarpsumræðum um tillögu þeirra þm. Þjóðvfl., sem lýsa vantrausti á hæstv. menntmrh., er nú að verða lokið. Ég hef skamman tíma og mun aðeins segja fá orð. En ég hygg, að með framlagningu þessarar vantrauststillögu hafi verið slegið met hér á hinu háa Alþ. bæði fyrr og síðar í því, hve lágkúruleg og vesöl till. er og hve allur málflutningur flm. er aumur. Þessu hefur að vísu verið lýst áður í þessum umr., og hefur flm. að vonum orðið þungt um svör. Ég verð að segja það, að brtt. hv. 4. þm. Reykv., Haralds Guðmundssonar, um vantraust á alla ríkisstjórnina er þó að mínum dómi ólíkt karlmannlegri og um leið eðlilegri eftir öllum venjulegum þingræðisreglum, þótt mér virtist nú, að málflutningur hv. þm. væri óvenjulega aumur, eftir því sem þessum hv. þm. vanalega segist, þegar hann flytur ræðu. Einkum er það einkennilegt fyrir okkur, sem vorum á Alþ. 1950 og tókum þá þátt í meðferð mála, þegar gengi hinnar íslenzku krónu var lækkað, að heyra hv. 4. þm. Reykv. lýsa því nú yfir, hve ógurleg bölvun sú ráðstöfun hafi orðið íslenzkum atvinnuvegum og íslenzka þjóðfélaginu yfirleitt. En hvað var það, sem þá gerðist? Það var það, að þá brast Alþfl. þor til þess að standa með öðrum lýðræðisflokkum að þeirri ráðstöfun, sem ein gat bjargað þjóðinni frá ógurlegum hörmungum, stöðvun útflutningsatvinnuveganna og stórkostlegra atvinnuleysi en nokkru sinni hafði þekkzt áður. Það var þetta sem gert var á Alþ. 1950. En ég skil hitt vel, að form. Alþfl. svíði það, að þá skyldi honum og flokknum skjöplast jafnhrapallega og þá varð um það að taka ekki þátt í þeim viðreisnartillögum, sem þá voru hafnar. Það, sem gerðist, var, að Alþfl. missti þá af strætisvagninum, eins og því miður hefur allt of oft hent þann flokk bæði fyrr og síðar. Ég gleðst ekki yfir því, síður en svo, en þetta eru því miður staðreyndir.

Þá sný ég mér aftur að till. þeirra hv. þjóðvarnarmanna. Það er hér borið fram vantraust á hæstv. menntmrh. einan, þ. e. meðferð hæstv. ráðh. á menntamálunum. Nú fer, eins og allir vita, sami ráðh. með mörg önnur mál, þ. á m. dómsmál. Það er því aðeins hálft starf eins ráðh., sem vantrausti er beint gegn. Þar sem 6 menn eru í ríkisstjórninni, má því telja, að vantrauststill. sú, er hér er til meðferðar, taki til 1/12 hluta af störfum ráðherranna. Einhvers staðar segir: „Fjallið tók jóðsótt, og fæddist mús“, og má með sönnu segja um þessa vantrauststill. þeirra þjóðvarnarmanna, að svo hafi farið. Þeir hafa í blaði sínu, á fundum víðs vegar um land og hér á Alþingi borið ríkisstjórnina sökum og leitazt við að ata hana auri fyrir allt, sem hún hefur gert. En svo þegar þeir þykjast vera að prófa það, hvort stjórnin hafi traust meiri hluta Alþingis, þá treysta þeir sér ekki til þess að bera fram rökstuddar ásakanir nema á heiming af störfum eins ráðh. Ég efast um, að stjórnarandstöðuflokkur hafi nokkru sinni veitt nokkurri ríkisstjórn óbeint jafnmikið traust og hér hefur verið gert með þessari sýndartill., og það breytir engu í þessu efni, þótt þeir þjóðvarnarmenn og aðrir stjórnarandstæðingar hafi nú í þessum umr. leitazt við af veikum mætti að færa umr. yfir á víðara svið stjórnmálanna og á þann hátt leitazt við að hylja hvatvísi sína og klaufsku um meðferð málsins. Það gerðu flutningsmenn vantraustsins, þegar þeim varð ljóst, hve algerlega þeir hefðu króað sjálfa sig inni með þessari sýndarvantrauststill. og að í till. fælist raunverulegt traust á alla meginstjórnarstefnu núverandi ríkisstj., hvort sem um ræðir fjármál, atvinnumál, utanríkismál eða annað. Ríkisstj. sem heild má því sannarlega vel við una þann dóm, sem hv. stjórnarandstæðingar veita henni með þessu. Framsfl. lítur á tilvist þessarar vantrauststill. sem hlægilegan skrípaleik, enda hefur málsmeðferðin af hálfu flm. staðfest, svo að ekki verður um deilt, að svo er.

Hér hefur verið gert nokkuð að því að vitna í greinar í Tímanum, þar sem fundið er með rökum að nokkrum stöðuveitingum hæstv. menntmrh. Telja flm. vantraustsins þetta sönnun þess, að stjórnarrof hljóti að verða milli núverandi stjórnarflokka af þessum ástæðum. Ég veit ekki, hvort meira skal undrast fljótfærni þá, er lýsir sér í þessu, eða hvort það ber með sér, að þeir, sem þannig hugsa, eru algerlega horfnir frá réttum lýðræðisreglum. Ég vil leyfa mér að spyrja: Til hvers er skoðanafrelsi og prentfrelsi? Það mun ekki veita af að hlýða þeim hv. þm. Þjóðvfl. lítillega yfir um þetta efni. Að vísu mun það nú vonlítið og jafnvel vonlaust að reyna það, svo hafa þeir skipað sér þétt upp að kommúnistum og orðið gegnsýrðir af einræðis- og ofbeldiskenningum þeirra, og þeir, sem í því andrúmslofti hrærast, geta að sjálfsögðu ekki skilið það, að blöð séu frjáls og fái að túlka skoðanir sínar frjálst og óvægt, óháð því, sem ríkisstj. eða einstakir meðlimir hennar kunna að óska eftir. Það er þessi ofbeldishneigð í skoðunum, sem hraðbyri er að flytja foringja Þjóðvarnar beint í flatsæng kommúnismans. Málsmeðferð þeirra hér í kvöld hefur sýnt þetta áþreifanlega. Þetta er þjóðinni einnig að verða æ ljósara, og þess vegna hrynur fylgið nú af Þjóðvörn og kommúnistum. En hitt er svo aftur á móti allt annað mál og er óskylt þessu, að þegar fleiri flokkar mynda stjórn saman og hver ráðh. fer með sitt ráðuneyti og þau mál, er undir það heyra, þá hlýtur alltaf svo að fara, að ýmsar ráðstafanir og ákvarðanir einstakra ráðherra falli samráðherrum hans, a. m. k. sumum þeirra, ekki í geð. Mörg slík atvik hljóta að koma fyrir í hverri ríkisstj., sérstaklega auðvitað þar sem er um samstjórn fleiri flokka að ræða. Ef slíkt ætti í hvert sinn að valda stjórnarslitum, mundi aldrei fást vinnufriður til þess að vinna að meginverkefnum þeim, sem hver ríkisstjórn verður að fást við.

Margur slíkur ágreiningur hefur að sjálfsögðu komið fyrir hjá núverandi ríkisstj. og það á báða bóga, og ég get vel lýst því hér yfir, að ég er ekki ánægður eða samþykkur öllum ákvörðunum hæstv. menntmrh., enda væri það mjög ótrúlegt, að svo gæti verið um öll atriði. Hver ráðh. verður að sjálfsögðu að þola réttmæta gagnrýni gerða sinna, og í því er einmitt styrkur lýðræðis fólginn, styrkur þess lýðræðis, er byggir á félagafrelsi, prentfrelsi og almennu skoðanafrelsi. En einræðisflokkar, hverrar tegundar sem eru, geta að sjálfsögðu ekki skilið þetta eða vilja a. m. k. ekki skilja það, og það mega þjóðvarnarmenn vita, að það er ofmat á því, hverju þeir geti komið til leiðar, ef þeim dettur í hug, að þeir geti sagt Framsfl. fyrir verkum, ef þeir álíta, að þeir geti haft nokkur áhrif á það, hve lengi Framsfl. skipar stjórn með Sjálfstfl. Þá ákvörðun munum við framsóknarmenn sjálfir taka og það út frá allt öðrum hvötum en vakir fyrir þjóðvarnarmönnum, en þeirra megináhugamál er, eins og allir vita, að sundra og skapa sem mestan glundroða og hindra á þann hátt, að starfhæf ríkisstj. sé við stýrið.

Framsfl. gekk til samstarfs við Sjálfstfl. fyrir rúmu ári. Hann gerði það til þess að koma fram ýmsum mjög mikilsverðum áhuga- og hagsmunamálum fyrir þjóðarheildina. Vil ég þar nefna mál eins og raforkumálin, um rafvæðingu allra byggðarlaga landsins, að svo miklu leyti sem unnt er að framkvæma það, íbúðamál þéttbýlisins, að koma þeim málum í viðunandi horf, endurskoðun og umbætur á skattalöggjöfinni, greiða fyrir rekstrarlánum, koma á stofn áburðarverksmiðju og margt fleira. Það eru þessi verkefni, sem ríkisstj. fæst nú við og ætlar að leysa, en er vitanlega komin misjafnlega langt áleiðis til að ná því marki. En meðan áfram miðar með þessi og mörg önnur þjóðþrifamál, sem að er unnið, þá mun Framsfl. starfa áfram í núverandi ríkisstj. og telur sig á þann hátt þjóna þjóðinni bezt. Hvort það verður lengri eða skemmri tími, sem það stjórnarsamstarf varir, um það er ekki unnt að segja nú, en Framsfl. hefur ávallt látið málefnin ráða í þessum efnum, og svo mun hann enn gera.

Eitt er eftirtektarvert og þess eðlis, að hlustendur veiti því athygli. Hverjir eru það, sem mest torvelda eðlilegt stjórnarsamstarf á þann hátt að dreifa og sundra þeim öflum, sem ættu og þyrftu að vinna saman? Þessu er fljótsvarað. Það eru þeir, er starfa að myndun sem flestra smáflokka, sem hver um sig er algerlega máttlaus og áhrifalaus til nokkurra góðra hluta og getur ekkert annað en sundrað og dreift kröftunum.

Þjóðvfl. er eitt gleggsta dæmið um þetta. Hann er málefnalaus með öllu, eins og reynslan hefur glögglega leitt í ljós. Þau tvö ár, sem hann hefur starfað, er hið eina mál, sem hann hefur þótzt hafa á stefnuskrá sinni, varnarmálin og sambandið við varnarliðið hér á landi. Þetta mál hefur nú verið frá honum tekið og hvers vegna? Vegna þess, hve skelegglega hefur verið á þeim málum haldið af hæstv. utanrrh. og núverandi ríkisstj. Þjóðvfl. stendur því nú uppi málefnalaus með öllu, enda yfirgefa fyrri fylgjendur hans hið sökkvandi fley sem hraðast, en afgangurinn mun leita heim til föðurhúsanna, þ. e. í faðm kommúnistanna. En hitt munu fáir telja eftir þeim þjóðvarnarmönnum, þótt þeir nú í raunum sinum gamni sér við að bera fram vantraust á hálfan ráðh. í núverandi ríkisstjórn.

Nú mun komið að leikslokum, ræðutími minn á þrotum, og þar með verður þessum útvarpsumr. lokið. Ég vil þó aðeins leyfa mér að taka þetta fram: Ég vil beina því til hlustenda, og ég vona, að þeir séu sem flestir um allt land, að kynna sér sem allra bezt stefnu og málflutning stjórnmálaflokkanna, ekki einungis í þessum umr. hér í kvöld, þótt það út af fyrir sig geti verið mjög lærdómsríkt, heldur eins og þetta kemur yfirleitt fram í blöðum, á stjórnmálafundum og á Alþingi.

Ég hef áður nefnt það, að Framsfl. hafi allt frá upphafi haft að leiðarmerki að láta málefnin ráða. Honum einum stjórnmálaflokkanna íslenzku má treysta að fullu til þess að vera sverð og skjöldur hins sanna lýðræðis. Framsfl. byggir á úrræðum hins frjálsa félagsskapar almennings. Grundvallarstefna flokksins er samvinnan, hin frjálsu félagasamtök, eins og þau hafa þróazt hérlendis nú meira en í heila öld. Nefni ég þar fyrst og fremst samvinnufélög, búnaðarfélög og margvíslegan annan frjálsan félagsskap. Það er sá grundvöllur, er Framsfl. reisir starf sitt á, enda er það þessi frjálsi félagsskapur, sem þróazt hefur og starfað undir samvinnumerki, sem mest og bezt hefur lyft þjóð vorri úr örbirgð og kyrrstöðu og til þeirra framfara og almennu velmegunar, sem nú er hér yfirleitt.

Ég vil svo segja þetta: Hugleiðið það, að saga Framsfl. og barátta hans hefur verið og er í anda þessara félagssamtaka. Um sambandið þar í milli er svipað að ræða og þegar hönd styður fót og fótur hönd. Þess vegna er saga Framsfl. einnig saga mesta framfaratímabils íslenzku þjóðarinnar, og þess vegna á flokkurinn að njóta trausts þjóðarinnar umfram aðra flokka.