30.03.1955
Sameinað þing: 49. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 382 í D-deild Alþingistíðinda. (2712)
154. mál, minning Jóns Þorkelssonar skólameistara
Frsm. (Karl Guðjónsson):
Herra forseti. Till., sem hér liggur fyrir, fjallar um það, að Alþ. beiti sér fyrir því, að heiðruð verði minning Jón Þorkelssonar skólameistara á 200. ártíð hans, sem verður 1959. Nefndin, sem um málið fjallaði, var sammála um það, að ekki hefði verið allt of mikið gert til þess að halda á loft minningu þessa mæta manns. Að frumkvæði stjórnarnefndar landsbókasafnsins kom þó út ritverk helgað honum árið 1910.
Er það ævisaga hans, upphaflega rituð af honum sjálfum á latínu, ýmsar ritgerðir hans og ljóðmæli, svo og skýrslur um Thorkilliisjóðinn, en svo nefnist sjóður sá, er hann gaf eigur sínar og verja á til styrktar og uppfræðslu fátækum börnum í Kjalarnesþingi. Rit þetta gáfu þeir út Jón Þorkelsson skjalavörður og Klemenz Jónsson, en Thorkilliisjóðurinn bar kostnaðinn.
Ekki mun nú rit þetta mjög vera í almennings vörzlu, og sumt er þar ekki við alþýðuhæfi, enda orti Jón skólameistari og ritaði mest á latínu.
Að riti þessu frátöldu mun fátt eitt hafa verið gert til þess að minnast þessa lærdómsmanns og brautryðjanda um alþýðufræðslu. Litur n. svo á, að það sé fullkomlega tímabært að vekja máls á því, að einmitt við það tækifæri, sem myndast árið 1959, sé vert að heiðra minningu hans með sérstökum hætti.
Hins vegar telur n., að það geti orkað tvímælis, hvort Alþ. eigi á þessu stigi málsins að taka frumkvæði um þetta efni, og telur, að allt eins gæti vel við átt, að undirbúningur þess yrði í höndum fræðslumálastjórnarinnar og svo þeirra héraða, sem frekast hafa notið þeirrar gjafar, sem Jón Þorkelsson skólameistari lét eftir sig. Þess vegna hefur n. lagt til, að málið verði að svo stöddu afgreitt með svofelldri rökstuddri dagskrá, með leyfi forseta:
„Í trausti þess, að fræðslumálastjórnin og byggðarlög þau, sem einkum njóta gjafar Jóns Þorkelssonar skólameistara, hafi forgöngu um að heiðra minningu hans með sérstökum hætti á 200. ártíð hans 1959, telur Alþingi, að á þessu stigi sé ekki tímabært að fá málið þingkjörinni nefnd, og tekur því fyrir næsta mál á dagskrá.“