25.03.1955
Neðri deild: 65. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 393 í D-deild Alþingistíðinda. (2720)

158. mál, aðbúnaður fanga í Reykjavík

Frsm. meiri hl. (Björn Ólafsson):

Eins og sjá má af fram komnum þskj., hefur n. ekki orðið sammála um afgreiðslu till., og tala ég fyrir meiri hl. nefndarinnar.

Till. sú, sem hér liggur fyrir, gerir ráð fyrir skipun nefndar til rannsóknar á aðbúð fanga í Reykjavík. Það, sem tillögumaður mun aðallega eiga við, er, að rannsakaður sé húsakostur fangageymslunnar, þar sem því hefur ekki verið haldið fram mér vitanlega, hvorki af honum né öðrum, að ástæða sé til að rannsaka aðbúð fanga að öðru leyti eða meðferð þeirra af hendi þeirra embættismanna, sem um þessi mál fjalla.

Við 1. umr. málsins gaf hæstv. dómsmrh. ýmsar upplýsingar um aðstöðu fangagæzlunnar og einnig það, að fyrirhuguð væri ný bygging fangageymslu fyrir lögregluna í Reykjavík þegar á þessu ári, í stað þeirrar geymslu, sem nú er í lögreglustöðinni, og mundi það þá að sjálfsögðu bæta mjög úr því öngþveiti, sem nú er ríkjandi í þessum málum. En svo virðist sem hv. flm. hafi ekki að öllu leyti verið kunnugt um þessar framkvæmdir, sem nú eru í undirbúningi til þess að koma fangagæzlunni í viðunandi horf, a. m. k. að því er snertir fangagæzlu lögreglustöðvarinnar.

Hins vegar er það ljóst, að ekki verður bætt úr því ófremdarástandi, sem nú er um fangageymsluna, nema með nýjum og bættum húsakosti, sem fullnægir kröfum tímans. Eins og málið stendur nú, verður því ekki flýtt fyrir breytingu til batnaðar í þessu efni með því einu, að skipuð sé rannsóknarnefnd til þess að athuga aðbúð fanganna. Málið liggur mjög ljóst fyrir, og er sízt reynt á nokkurn hátt af þeim embættismönnum, sem hér eiga hlut að máli, að draga fjöður yfir það ástand, sem nú er ríkjandi í þessum málum og segja má að sé í senn hörmulegt og niðurlægjandi. Ekki hefur heldur hæstv. núverandi dómsmrh. reynt að dylja ástandið í þessu máli. Hann hefur hvað eftir annað á undanförnum þingum reynt að fá fjárveitingar til byggingar nýrrar lögreglustöðvar í því skyni að bæta úr því öngþveiti, sem hér er til umræðu. Hann hefur því sízt dregið fjöður yfir þá nauðsyn, sem á því er, að aðbúð fangagæzlunnar sé bætt. En Alþ. sjálft hefur farið sér hægt í þessu máli, og lítur út fyrir, að þm. hafi gert sér lítið far um að kynnast þeirri nauðsyn, sem hér kallar að.

Allshn. taldi því rétt að kynna sér þær vistarverur, sem hér eru notaðar til fangagæzlu í bænum, enda er sjón sögu ríkari, og átti hún því tal við lögreglustjóra og sakadómara um þessi mál og skoðaði þær vistarverur, sem notaðar eru hér í bænum við gæzlu fanga.

Fangageymsla lögreglunnar er, eins og kunnugt er, í kjallara lögreglustöðvarinnar, og er þar þröngt mjög og lágt til lofts og geymslan öll hin óvistlegasta. Þarna eru klefar fyrir tíu menn, sem að vísu hefur verið reynt að bæta, sérstaklega með umbótum á loftræstingu og öryggisútbúnaði. En aðstaðan er svo erfið í þessum lága og þrönga kjallara, að þar verður aldrei hægt að útbúa fangagæzlur, sem segja má að séu siðuðu þjóðfélagi sæmandi. En ekki er það þó vegna þess, að lögreglustjóri hafi ekki haft áhuga á því að bæta úr þessum málum, því að ég hygg, að hægt sé að fullyrða, að engir finni betur til þess en þeir menn, sem að þessu starfa, hversu mikil nauðsyn er á því, að hér verði einhver breyting á.

Lögreglustjóri gaf þær upplýsingar, að fangageymslan í hinni væntanlegu nýbyggingu, sem gert er ráð fyrir að verði reist í sumar, mundi verða útbúin samkv. hinum beztu erlendu fyrirmyndum. Verður því fastlega að vænta, að þessi bygging verði nú reist á þessu ári, því að við þetta ástand er ekki hægt lengur að búa. Auk þess hlýtur hverjum manni að vera ljóst, að það getur verið erfitt fyrir lögregluna að halda uppi lögum og reglu í 60 þús. manna bæ með aðeins tíu fangaklefum. Hin fangageymslan, sem hér er í bænum, er að Skólavörðustig 9, í hinu forna fangahúsi, sem er undir umsjón sakadómara. Þar er hægt að hýsa 27 fanga í 12 herbergjum, en auk þess er þar eitt sjúkraherbergi. Þessar vistarverur taka mjög fram vistarverum lögreglunnar, þó að fangageymsla þarna sé alls óviðunandi og ófullnægjandi. Fangahúsið var byggt fyrir 80 árum og er enn þá notað í sinni upphaflegu mynd, og veit ég ekki til, að nokkrar breytingar hafi verið á því gerðar nema þær að hækka til helmings þá múra, sem í kringum þessa byggingu eru, og er það að líkindum eina viðbótin, sem gerð hefur verið síðan húsið var byggt fyrir um 80 árum. Húsinu hefur verið haldið furðanlega vel við, og þrifnaður virðist þar vera óaðfinnanlegur.

Þetta er eina fangahús bæjarins, og eru þarna geymdir fangar um stundarsakir, sem afplána minni háttar afbrot eða taka út dóm fyrir ölvunarsekt eða brot gegn bifreiðalögunum. Í sumum af þessum herbergjum verða að dvelja 3–5 menn, og er ljóst, að slík samvist er ekki ætíð holl fyrir óharðnaða unglinga, sem þarna þurfa að vera nokkra daga eða um stundarsakir fyrir minni háttar yfirsjónir, enda hygg ég, að menn séu þeirrar skoðunar, að komið hafi í ljós, að unglingar hafi orðið fyrir mjög óhollum áhrifum einmitt við þessa samvist, sem húsakosturinn gerir nauðsynlega. Engar vistarverur eru þarna sérstakar fyrir kvenfanga, og enginn kvenfangavörður er þarna til þess að sinna þeim, en að sjálfsögðu kemur það mjög oft fyrir, að konur verða að dvelja í þessu fangahúsi. Gat sakadómari þess, að þetta sérstaklega væri með öllu óviðunandi.

Menn eru þarna og settir í varðhald, og þeir verða að dvelja með mönnum, sem hafa fengið dóm. Í sambandi við þá menn, sem eru í varðhaldi og bíða yfirheyrslu, má geta þess, að í húsinu er mjög hljóðbært, svo að það kemur iðulega fyrir, að fangar kallast á og talast við á milli klefa. Slíkt er að sjálfsögðu undir þeim kringumstæðum alveg óviðunandi og ótækt.

Sakadómari taldi húsið mjög ófullnægjandi fyrir það hlutverk, sem því væri ætlað að inna af hendi, enda engin furða, þar sem þetta fangahús hefur litlum eða engum breytingum tekið í þau 80 ár, sem liðin eru síðan það var reist. Sagði hann því, að það væri mjög aðkallandi að byggja fangahús í útjaðri bæjarins, sem fullnægði þeirri þörf, sem nú væri, og yrði að sníða stærð þess að sjálfsögðu eftir þeim fólksfjölda, sem nú væri í bænum. Fangahúsið var á sínum tíma byggt af meiri stórhug en menn hafa nú í þessum málum, því að þegar þetta hús var byggt, að vísu fyrir allt landið, þá hafa hér í bænum verið 2–3 þús. manns, að líkindum.

En niðurstaðan af þessum athugunum er sú, að fangageymslan í bænum er mannsaldri á eftir tímanum. Húsakosturinn er gersamlega óviðunandi, og verður varla annað sagt en að fangageymslan af þeim sökum sé bæði landinu og höfuðstaðnum til vansa. Alþ. kemst varla hjá því að sinna þessum málum meira en gert hefur verið, og sú þörf er mjög aðkallandi, að byggðar séu fangageymslur hér í bænum í samræmi við kröfur nútímans.

N. hefur, eins og ég gat um í byrjun, samt sem áður ekki talið ástæðu til að samþykkja till. um, að skipuð sé sérstök rannsóknarnefnd í þessu efni. Málið liggur alveg ljóst fyrir, og leggur meiri hl. n. til, að till. sé vísað til ríkisstjórnarinnar.