25.03.1955
Neðri deild: 65. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 399 í D-deild Alþingistíðinda. (2723)

158. mál, aðbúnaður fanga í Reykjavík

Gunnar M. Magnúss:

Herra forseti. Ég vil þakka hv. allshn. og frsm. meiri hl. fyrir þá greinargóðu ræðu, sem hann flutti hér í tilefni þess, að allshn. fór í fangaklefana í Pósthússtræti og athugaði aðbúðina einnig á Skólavörðustíg 9. Ég vil einnig þakka minni hl. allshn., sem tekið hefur upp mína till. og mælir með því, að henni sé fylgt fram og hún samþykkt.

Í framsöguræðu hv. 3. þm. Reykv. kom mjög margt fram, sem studdi eindregið, að mín till. yrði samþykkt. Allt, sem ég hafði sagt í framsöguræðu minni, var þar undirstrikað og mælt mjög sterklega, vegna þess að þar voru kynnin fyrir hendi, en aftur á móti var gengið fram hjá öðrum aðalrökunum, sem ég lagði fram og ég skal koma að síðar.

Þegar ég lagði fyrst fram till. til þál. um rannsókn á aðbúð fanga hér í Reykjavík, flutti hæstv. dómsmrh. hér í d. ræðu um málið. Hann þakkaði þann góða hug, sem lægi að baki till., og viðurkenndi, að aðbúnaður fanga væri óviðunandi í lögreglustöðinni. En jafnframt gat ráðherrann þess, að nokkurs ókunnugleika um málið mundi gæta hjá flm. till., þar eð málið hefði verið rætt áður hér á þingi og margt þessu lútandi komið á góðan rekspöl. Las hann því næst upp tölur og tillögur, sem komið hefðu fram til úrbóta. Tölurnar um fjárveitingar til byggingar nýrrar lögreglustöðvar, sem hann las upp, voru að vísu ekki ókunnar, því að þær voru úr opinberum skjölum. Hann las einnig skýrslu frá lögreglustjóra Reykjavíkur um fangageymslurnar í Pósthússtræti, og þar kom berlega í ljós, að fangageymslan hefur verið óhæf frá upphafi, en hún var gerð 1941. Sagt var, að húsnæðið, ef húsnæði skyldi kalla, hefði þó verið endurbætt á undanförnum árum, en úr ýmsum ágöllum væri ókleift að bæta.

Ég þarf ekki að eyða um það mörgum orðum, að till. mín um rannsókn á aðbúð fanga í Reykjavík sé borin fram af ókunnugleika, að ég hafi ekki heyrt getið um þær fyrirætlanir, að byggð skyldi lögreglustöð í Reykjavík. Málið hefur verið svo oft kynnt á opinberum vettvangi, að ég veit, hvað stendur til í þeim efnum. Ég veit einnig um lögin um meðferð ölvaðra manna og drykkjusjúkra og um brtt. á þeim lögum, er legið hafa fyrir þessu þingi og verið ræddar.

Ég bar fram till. mína með þeim tveim meginrökum, að rannsaka þyrfti húsakynnin eða vistarverur fanganna, að hinu leytinu að rannsaka aðbúnað lögreglunnar og aðstöðu hennar við handtökur og geymslu fanganna. Með auknum húsakynnum, nýrri lögreglustöð, verður vitanlega bætt úr ýmsum og mörgum vandkvæðum þessara mála. En það mun hafa vakið athygli, að hæstv. dómsmrh. ræddi í svari sínu eingöngu um hús, um veggi, um nýja fangaklefa, fleiri fangaklefa. Út frá þeirri ræðu hans verður að álykta, að hann hafi aðeins haft í huga fleiri fangaklefa til lausnar þessum málum, og fengjust þeir nógu margir, þá væri málunum að flestu leyti borgið. Hitt atriðið, aðbúð fanganna sjálfra, minntist hann ekki á, en það er þó annað aðalatriði. Það hefur einnig verið litið rætt um þetta hér í d. síðar við umr. um þetta mál. En nú skal ég ekki væna hæstv. dómsmrh. um ókunnugleika í þessum efnum. Hann hefur fyrir margra hluta sakir haft manna bezta aðstöðu til þess að vita, hvernig málum er háttað á þessum ömurlegasta stað höfuðborgarinnar. Af einhverjum öðrum ástæðum sniðgengur hann umræður um aðstöðu lögreglunnar, hæfni hennar og undirbúning til þess að hafa sjúka eða brotlega menn undir höndum.

Ég legg enn, svo sem ég gerði í frumræðu minni um þessi mál, megináherzluna á, að reynt verði að létta bæði lögreglunni og hinum handteknu mönnum það hlutskipti, sem þeir hafa ratað í saman. Ég vil fá þeirri spurningu svarað, hvort þeir menn, sem hafa fangana undir höndum, hafi það skapferli, menningu og menntun, sem krefjast verður í menningarþjóðfélagi til þess að hafa samskipti við fangana, til þess að ekki verði af óbætanlegt tjón og hörmuleg atvik í lífi einstaklinganna. Ég vil fá úr því skorið, hvort frásagnir fanga um misferli í þeirra garð í sjálfri lögreglustöðinni séu á rökum reistar. Úr þessu verður ekki leyst með því að segja, að það verði byggð lögreglustöð. Úr þessu verður ekki leyst, nema með því að rannsaka hina hlið málsins.

Hv. allshn. hefur haft till. mína með höndum, eins og ég gat fyrr, og sent frá sér nál. Hún hefur einnig farið í lögreglustöðina til þess að skoða fangageymslurnar, og þakka ég n. fyrir þá röggsemi og vilja til þess að kynna sér málið af eigin raun. En í nál. meiri hl., því sem hér liggur fyrir, ber að sama brunni og fyrr, að það er aðeins litið á hina fúlu veggi, hina þröngu klefa, en ekki á hitt atriðið, hvað fer fram innan þessara klefa.

Nefndin gengur sem sé fram hjá því aðalatriði, sem ég hef nefnt hér fyrr. En séu nm. sammála um það, að eitthvað nauðsynlegt beri að gera í þessum efnum, sem skýrlega hefur komið fram, hvers vegna þá ekki að ræða hitt meginatriðið og taka það alvarlegum tökum í þetta skipti, þegar það er til umræðu nú í hv. Alþingi? Sáu nm. fanga í lögreglustöðinni, eða sáu þeir klefana tóma? Komu þeir í lögreglustöðina í fangaklefana að morgni dags, kl. 6–8, áður en föngunum er sleppt? Voru þeir á þeim tíma, sem líklegt var að allt væri komið í sem bezt lag, og voru þeir búnir að gera boð á undan sér? Þetta hefur nokkra þýðingu til þess að bæta ef til vill á þá mynd, sem hv. frsm. meiri hl. dró hér upp og frsm. minni hlutans endurtók að sumu leyti. Sé ekki talað við fanga og rannsakað, hvort framburður þeirra er á rökum reistur, sé ekki athugað, hvernig aðbúð þeirra er, meðan þeir eru þarna um nætursakir eða jafnvel sólarhring, þá er gengið fram hjá öðru meginatriðinu og því, sem mestu máli skiptir. Eins og ég hef tekið fram áður, er hægt að liggja eina nótt á bekk, hörðum bekk, án þess að líða ef til vill mjög mikið. En þar er ef til vill hægt að verða fyrir því hnjaski, að maðurinn bíði þess ekki bætur, ef hann hefur frá mannlegri veru á þeirri stundu, sem hann var særður að metnaði og sjúkur að öðru leyti, orðið fyrir því að snúast frá því áformi að ganga til betrunar og reyna að láta það ekki koma fyrir oftar, að hann lendi í þessum höndum, — ellegar snúast gegn þeim, sem tóku hann og hafa meðhöndlað hann á ýmsa vegu.

Ég vil að vísu ekkert fullyrða í þessum efnum hér á þessu stigi, en margar sögusagnir hafa gengið um málið. Mikið hefur verið um þetta rætt í blöðum og tiltölulega fátt af því hrakið. Og ég tel, að hv. Alþingi geti ekki gengið frá þessu máli þannig, án þess að þessi hlið málsins, sem ég hef rakið, fangarnir sjálfir, aðbúð þeirra og aðbúð lögreglunnar til að annast þá, sé tekin til rækilegrar athugunar.

Ég hef líka bent á það, að aðrar stéttir, sem fara með ýmsa einstaklinga í þjóðfélaginu og eru með þeim samvistum, stjórna þeim, segja þeim fyrir í ýmsu og hjálpa þeim, verða að hafa sína sérmenntun og sérmenningu til þess að geta umgengizt þá einstaklinga mennilega, sem þeir hafa undir höndum. Ég hef áður minnzt á kennarana og hjúkrunarkonurnar. Hafa lögregluþjónar verið búnir undir að taka mann í hinu versta ástandi, sem hugsazt getur, mjög fjarri því að vera sjálfráður gerða sinna, — eða mann, sem framið hefur verk óviljandi, en vildi gjarnan bæta fyrir það, þegar hann er kominn til ráðs, — hefur lögreglan fengið það uppeldi, að hún geti umgengizt þá, sem hún tekur höndum, á þann hátt, að það sé sæmandi menningarþjóðfélagi og sambærilegt öðrum greinum, sem okkar þjóðfélag er að reyna að færa til vegs og virðingar í uppeldismálum og siðgæðismálum? Ég legg þessar spurningar fram, og þó ekki alveg að tilefnislausu. En meðan þessu atriði er ekki sinnt og verði því ekki sinnt, heldur afgr. samkv. till. meiri hl. allshn., þá tel ég, að Alþ. gangi fram hjá því meginatriði, sem ég hef sérstaklega lagt áherzlu á, og það er frásögn þeirra, sem sjálfir verða fyrir því að lenda þarna í þessum klefum, sem áður hefur verið lýst.

Frsm. meiri hl. minntist á, að þessi fangagæzla, eins og hann orðaði, væri mannsaldri á eftir tímanum. Erum við þá ekkert á eftir tímanum í því, sem lýtur að aðbúðinni á annan hátt? Ég vil fá því svarað og einmitt með rannsókn, eins og ég hef lagt til.