04.05.1955
Sameinað þing: 56. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 410 í D-deild Alþingistíðinda. (2744)

31. mál, hagnýting brotajárns

Gils Guðmundsson:

Herra forseti. Mér þykir víssulega nokkuð miður, að hv. fjvn. skuli ekki hafa séð sér fært að leggja með samþykkt þeirrar till., sem hér er til umræðu.

Till. fer ekki fram á annað en það, að látin sé fara fram rannsókn á því, hvort hagkvæmt muni vera að hagnýta járn það, sem til fellur innanlands, og það er alls ekkert um það sagt í till., að ætlunin sé sú eða hugmyndin að koma hér á fót mjög dýru og stóru fyrirtæki, stálsteypufyrirtæki, sem eigi að framleiða allar mögulegar tegundir af járni eða stáli. Það er meira að segja á það bent í grg., að að líkindum sé ekki grundvöllur fyrir slíkri fullkominni stálsteypu hér, en hins vegar sé full ástæða til þess að athuga, hvort ekki megi koma hér upp járnbræðslu, eins og tíðkast allvíða erlendis, þar sem framleiddar eru eingöngu hinar einföldustu tegundir af járni, og er sérstaklega bent á steypustyrktarjárn í því sambandi.

Mér þykir það dálítið einkennilegt hjá hv. n., að þegar hún leitar álits eða umsagnar aðila um þessa þáltill., þá skuli hún eingöngu binda sig við járnsmiðafyrirtæki, en ekki leita til að mynda til Iðnaðarmálastofnunarinnar, þess fyrirtækis, sem þó er sett á stofn fyrst og fremst til þess að rannsaka möguleika slíka sem hér er um að ræða.

Hv. frsm. n. skýrði frá því, að þau fyrirtæki, sem hefðu fengið þessa till. til umsagnar, hefðu svarað á þá leið, að ekki mundi vera hér rekstrargrundvöllur fyrir járn- eða stálsteypu. Ég hef fengið að líta á þessar umsagnir, og ég get ekki séð, að umsögn forstjóra Landssmiðjunnar sé á þann veg, heldur telur hann, að full ástæða sé til þess, eins og við till.-menn leggjum til, að þetta mál sé athugað. Ég vil, með leyfi hæstv. forseta, lesa hér úr svari hans til hv. n. Hann segir svo:

„Vér teljum ekkert því til fyrirstöðu, að athugaðir séu möguleikar á hagnýtingu brotastáls innanlands. Slíkt er hægt án mikils tilkostnaðar með öflun tilboða í vélar og upplýsinga um rekstrarkostnað og verðlag framleiðsluvöru. Þar sem ekki er um mikið magn brotastáls að ræða, er hæpið, að framleiðsla steypustyrktarjárns, sem er í lægsta verðflokki stáls, sé arðvænleg. Mætti því jafnframt athuga, hvort grundvöllur væri fyrir rekstri stálsteypu í sambandi við bræðsluofninn, en stálsteypa er ekki til hér á landi nú.“

Landssmiðjan bendir sem sagt á það, að það kunni að vera hæpinn grundvöllur fyrir brotajárnsframleiðslunni einni saman, en telur ástæðu til þess að athuga fleiri möguleika. Mér virðist því, að umsögn Landssmiðjunnar styðji fremur en veiki ástæðurnar fyrir því, að till. verði samþykkt.

Það mun vera óhætt að fullyrða, að hér á landi séu engir menn til, sem hafi rannsakað þetta mál til verulegrar hlítar eða hafi aflað sér þeirrar þekkingar á rekstri fyrirtækis eins og hér er um að ræða, sem til þess þarf að gefa frá sér án sérstakrar rannsóknar rökstutt álit á því, hvort hægt sé eða skynsamlegt að koma slíku fyrirtæki upp. Ég held, að enginn Íslendingur hafi kynnt sér þetta mál til þeirrar hlítar, — enginn maður hér á landi, — að hann sé án sérstakrar rannsóknar fullfær um að gefa út einar eða neinar yfirlýsingar um þetta, sem byggjast á útreikningum, sem ætla má að geti staðizt. Þess vegna held ég, að það sé full þörf á því, að úr þessu fáist skorið, þar sem líka er auðsætt, að hér er ekki um svo víðtækt rannsóknarefni að ræða, að það þurfi að valda ríkissjóði mjög miklum kostnaði. Mér er tjáð af mönnum, sem þessu eru þó einna kunnugastir hér, að það að gera áætlun um rekstur slíks fyrirtækis hér mundi ekki vera nema tveggja, þriggja, kannske fjögurra mánaða verk fyrir verkfræðing, sem hefur sérþekkingu á þessum efnum, t. d. norskan eða sænskan verkfræðing, sem við járnvinnslu eða stálvinnslu hefur starfað, og það er því sýnt, að hér er um tiltölulega lítinn kostnað að ræða, sennilega fáeina tugi þúsunda króna.

Aðalröksemd hv. n. og þeirra aðila, sem hún hefur spurt álits og leggja heldur gegn því, að till. sé samþykkt, er sú, að hér sé of lítið hráefni fyrir hendi til þess að standa undir rekstri slíks fyrirtækis sem hér um ræðir, og enn fremur nefna sumir mikinn stofnkostnað. Eftir þeim upplýsingum, sem ég hef getað aflað mér um þessi mál, held ég, að þetta sé byggt á nokkrum misskilningi, — þeim misskilningi, að hér sé hugsað fyrir mjög stóru og fullkomnu fyrirtæki, kannske hliðstæðu því, sem Norðmenn hafa verið að koma upp hjá sér og kostar mörg hundruð milljónir króna. Það er ekki hugmyndin, að endilega sé bundið við það að rannsaka möguleika á slíkri stálsmiðju, heldur miklu minna fyrirtæki, sem fyrst og fremst væri við það miðað að hagnýta það brotajárn eða brotastál, sem hér fellur til. Það er og augljóst, að það hráefni, sem hér fellur til í þessu efni, mun fara vaxandi með auknum skipakosti landsmanna, — hann hefur aukizt mjög mikið á seinni árum og fer væntanlega enn verulega vaxandi. Það má líka benda á það, að síðustu 5 ár hefur verið flutt út járn eða stál, — brotajárn, sem kallað er nú í almennu tali — sem nemur um 3 þús. smálestum að meðaltali á ári. Nú er vel hugsanlegt og full ástæða til þess að athuga það, hvort ekki er auðvelt að kaupa nokkuð af slíku brotajárni eða brotastáli til viðbótar og flytja hingað til lands. Enn fremur hefur mér verið bent á, að það sé alls ekki nein fjarstæða, að einnig fari fram athugun á því, hvort ekki borgaði sig að flytja til viðbótar við okkar brotastál eitthvað af málmgrýti frá Svíþjóð. Þetta er eitt af því, sem kæmi til athugunar í sambandi við þetta mál.

Enn fremur má benda á það, að ef grundvöllur væri fyrir því að framleiða hér steypustyrktarjárn. þá er verð á því járni nú um 4 krónur kg. Framleiðsla til að mynda 3 þúsund smálesta á ári, eða þess magns. sem flutt hefur verið úr landi af brotajárni árlega, næmi því 12 millj. kr. að verðmæti.

Ég hef það fyrir satt, að stálsteypuverksmiðjur víðs vegar erlendis þykja yfirleitt góð fyrirtæki og hafa skilað verulegum arði. Ég sé því ekki, að neitt ætti að vera í hættu hjá hv. Alþ., þó að það samþykkti einfalda till. um það, að þetta mál verði athugað og fengist úr því skorið með nokkurri rannsókn, hvort ekki er möguleiki á því að hagnýta þetta hráefni hér.

Ég sagði áðan að enginn maður á Íslandi mundi hafa aðstöðu til þess nú í dag að skera úr um það, hvort skynsamlegt sé og hagkvæmt að koma upp slíku fyrirtæki sem hér um ræðir. Hins vegar veit ég til þess. að vestur í Kanada er maður af íslenzku bergi brotinn, Jón Ólafsson, sem hefur starfað mjög mikið að efnarannsóknum í stálverksmiðju þar, og hann hefur vakið athygli á því, að það sé hvarvetna talinn liður í iðnaðarþróun hvers lands, sem vill heita sæmilegt iðnaðarland að hagnýta allt það brotajárn, sem til fellur í landinu sjálfu, en flytja það ekki út, þar sem það er mjög verðlítið sem brotajárn. Þessi maður, Jón Ólafsson stálfræðingur, ritaði fyrir um það bil tveim árum mjög athyglisverða grein í íslenzkt blað, — grein, sem hann nefndi: „Hættið að senda brotajárn úr landi“. Mig langar til þess að lesa hér örstutta tilvitnun í grein þessa manns, sem vafalaust er miklu kunnugri þessum málum en aðrir menn af íslenzku bergi brotnir. Hann snýr sér til íslenzku þjóðarinnar og segir svo, með leyfi hæstv. forseta: „Hér verðið þið að horfa fram í tímann. Í öllum hamingjubænum hættið að henda brotajárni út úr landinu, þessu dýrmæta og ómissandi hráefni. Arðrænið ekki sjálfa ykkur. Fleygið ekki hráefninu í hendur erlendra manna, til þess að þeir fái allan hagnaðinn af að vinna úr því á ykkar kostnað. Það, sem aðrar þjóðir geta framkvæmt, það geta Íslendingar líka. Það hafið þið sýnt margsinnis og sannað. Íslendingar eiga ekki að kaupa fyrir dýrmætan gjaldeyri þá vinnu af öðrum þjóðum, sem þeir geta sjálfir leyst af hendi. Þið þurfið að koma ykkur upp stálsteypu og steinasmiðju. Byrjið í smáum stíl, ef með þarf, en byrjið þið, og fyrsta sporið í þessa átt er að hætta að henda brotajárni í útlendinga. Dragið allt ykkar brotajárn saman á einn stað, þar sem þið ætlið að reisa stálsteypuverksmiðju. Safnið þar saman öllum brotamálmi, sem þið getið, úr skipum, bílum, ónýtum vélum o. s. frv., því að innan skamms munuð þið skilja, að þið þurfið nauðsynlega að koma stálsteypunni á fót, og nóg hafið þið aflið í landinu sjálfu, þar sem rafmagnið er.“

Þetta voru orð hins sérfróða manns. Og þó að nokkrar járnsmiðjur hér, sem jafnvel hafa sérstakan hag af því, a. m. k. sumar hverjar, að flytja brotajárn úr landi, telji ekki sérstaka ástæðu til þess að rannsaka möguleika á því að koma hér upp slíkri steypusmiðju sem um ræðir í þáltill., þá hygg ég, að það sé hættulítið fyrir hv. Alþ. að samþykkja þessa till., sem aðeins fer fram á rannsókn málsins.

Hv. fjvn. leggur til, að þessari till. verði vísað til hæstv. ríkisstjórnar. Ef um það fengjust nú svör frá hæstv. ríkisstj., að hún hefði hug á því að láta athugun fara fram eins og þá, sem í till. greinir, þá mundum við flm. geta fallizt á þá afgreiðslu málsins, en að öðrum kosti leggjum við verulega áherzlu á það, að till. verði samþ. óbreytt.