09.02.1955
Sameinað þing: 34. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 425 í D-deild Alþingistíðinda. (2758)
93. mál, lækkaðrar dýrtíðar
Bernharð Stefánsson:
Herra forseti. Ég ætlaði nú að sjálfsögðu að leiða hjá mér þessar umræður eins og ég er vanur að gera um þau mál, sem ekki snerta mig sérstaklega, en það er eins og hv. þm. Borgf. (PO) hafi alveg sérstakan áhuga fyrir því að koma málum til allshn. þingsins, sem ég fæ a. m. k. ekki séð að eigi þar heima. M. a. er það mér minnisstætt, að í fyrra vildi hann ekkert annað — og fékk það fram — en að hreinu utanríkismáli væri vísað til allshn. þingsins, sem beinlínis samkvæmt þingsköpum á að vera í utanrmn., og nú leggur hann til, að þessu máli, sem ég sé ekki betur — — (Gripið fram í: Það var flm., sem lagði það til.) Flutningsmaður? Ja, hv. þm. Borgf. benti honum á það. Flm. var auðsjáanlega og auðheyranlega í vafa, en þá gaf hv. þm. Borgf. honum hugmyndina.
Mér sýnist þetta mál, hvernig sem á er litið, vera algert fjárhagsatriði og fjárhagsmál, og þess vegna vildi ég nú leggja til, að till. yrði vísað til hv. fjvn. Eins og till. liggur fyrir, mætti ef til vill segja, að hún snerti ekki hag ríkissjóðs beinlínis, þar sem hér er lagt til að fela ríkisstj. að leita samninga við ýmsa aðila um að lækka verðlag. En eftir þeirri reynslu, sem fengin er m. a. frá verkfallinu í desembermánuði 1952, er ákaflega hætt við, að lítið vinnist á í þessu efni öðruvísi en að ríkissjóður annaðhvort leggi beinlínis fram fé til þess að fullnægja till. ellegar þá hitt, að hann afsali sér tekjum, sem hann hefur nú, sem er nokkurn veginn það sama. Það kann að vera, — ég skal ekki fullyrða neitt um það, — að ýmsir þeir, sem vörur selja og aðra þjónustu, gætu staðizt það að lækka verðlag, og væri ekki nema gott við því að segja, ef ríkisstj. gæti komið því til leiðar, að svo yrði gert. En ég hygg þó, að það yrði aldrei svo stórkostlega, að það mundi fullnægja þeim kröfum, sem nú eru gerðar svo mjög, að þau verkföll, sem boðuð eru frá næstu mánaðamótum, féllu niður fyrir það, því að það virðist allt stefna að því nú á dögum, að ríkissjóður eigi að taka á sig allar kröfur, sem gerðar eru. Það er sjálfsagt að fullnægja öllum kröfum. Allir vilja fá meira en þeir hafa, enginn vill borga til almennra þarfa eins mikið og honum ber samkv. gildandi lögum, og ríkissjóður á að taka á sig greiðslurnar, sem krafizt er, og hann á líka að sleppa tekjum til þess að lækka gjöld á almenningi. Ég skal játa, að ég skil ekki þessa pólitík, sem flestir eru farnir að reka nú.
Ég ætlaði, þegar ég kvaddi mér hljóðs, ekkert að segja hér annað en að gera grein fyrir því, að ég fellst ekki á þessa till. um nefndarskipun; mér finnst það vera fráleitt að vísa slíkri till. sem þessari til allshn. þingsins, heldur vitanlega fjvn. En úr því að ég stóð nú upp á annað borð, þá eru það aðeins eitt eða tvö atriði, sem ég ætla að minnast á úr ræðu hv. flm. þessarar till.
Hann nefndi verkfall verkfræðinganna sem dæmi um það, hvað kauphækkanir væru knýjandi. Dettur honum eða öðrum í hug, að verkfræðingarnir hafi ekki haft nægilegt til að lifa á, áður en þeir fengu kauphækkunina? Ég held, að engum detti það í hug. Krafa verkfræðinganna var ekki byggð á því, að þeir hefðu ekki nægilegt kaup, til þess að þeir gætu lifað góðu lífi efnahagslega, heldur var hún byggð á öðru. Hún var byggð á því, að það væru orðnar svo miklar kauphækkanir hjá öðrum launastéttum, t. d. verkalýðnum. Og hann nefndi það, þegar formaður stéttarsambands opinberra starfsmanna gekk á fund ríkisstj. og krafðist launabóta fyrir opinbera starfsmenn. Ég hygg, að það hafi alls ekki verið sökum þess, að opinberir starfsmenn gætu ekki lifað eða teldu sig ekki geta lifað á launum sínum, a. m. k. í öllum hærri launaflokkunum, heldur var krafan byggð á því, að laun hefðu hækkað hjá öðrum launþegum og aðallega þá hjá verkalýðsfélögunum.
Þannig er það, að ef einn fær launauppbót, þá vilja aðrir fá hana, og svo er þetta í smáhópum, sem menn gera kröfurnar. Það er t. d. kunnugt um verkfallið, sem varð hjá matsveinum og þjónum á kaupskipaflotanum. Þeir munu nú hafa sæmilegt kaup og ekki lakara en hásetarnir. Ég geri ráð fyrir, að ef að þeirra kröfum væri gengið nú, þá kæmu kyndararnir næst og heimtuðu kauphækkun og gerðu svo verkfall. Svo þegar kyndararnir fengju einhverju framgengt af sínum kröfum, þá kæmu stýrimennirnir, svo hásetarnir o. s. frv. Ég held það þurfi að taka fleiri hliðar á þessu máli til athugunar en þessi till. fjallar um, og sumar þær hliðar gætu heyrt undir allshn. að fjalla um, þó að till. eins og hún liggur fyrir heyri ekki undir þá nefnd.