10.11.1954
Sameinað þing: 13. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 456 í D-deild Alþingistíðinda. (2785)
76. mál, frjáls innflutningur bifreiða
Viðskmrh. (Ingólfur Jónsson):
Herra forseti. Það eru örfá orð í tilefni af ræðu hv. þm. V-Húnv. (SkG). Hann var að tala hér fyrir brtt., sem hann hefur flutt við till. þá, sem talað var hér fyrir áðan um frjálsan innflutning bifreiða. Ég kannast við þessa till., því að hún er alveg eins eða samhljóða þeirri till., sem hann flutti munnlega á s. l. sumri, þegar rætt var um frjálsan innflutning bifreiða í ríkisstj. Ég man ekki, hvort ég sagði þessum hv. þm., sem þá var fjmrh., að þessi till. eða skoðun hans kæmi fram vegna þess, að hann vildi ekki frjálsan innflutning bifreiða. Ég hef alveg sannfærzt um það síðan, hafi ég ekki verið alveg viss um það í sumar, að þessi hv. þm. vill ekki frjálsan innflutning bifreiða, og það er eina skýringin á þessari till., sem hann nú flytur, og á þeim rökum, sem hann nú ber hér fram.
Hvers vegna hefur ekki þessi hv. þm. komið með svipaðar eða sams konar till. áður, þegar rætt hefur verið um að taka ýmsar vörur á frílista? Ég minnist þess ekki, að þessi hv. þm. kæmi með svipuð rök um það leyti, sem frílistinn var fyrst myndaður eða þegar við hann hefur verið bætt. Þá þótti þessum hv. þm. ekki ástæða til að bera fram till. í þessu formi eða fá yfirlýsingu frá bankastjórunum um það, að þeir mundu hverju sinni tafarlaust yfirfæra fyrir þeim vörum; sem eru á frílista. En eins og getið hefur verið um hér, hefur yfirfærsla fyrir frílistavörum gengið mjög vel. Það hefur komið fyrir, að menn hafi þurft að bíða eina viku, tvær vikur, ef til vill þrjár vikur. Þannig gæti það einnig orðið með bílana, eftir að þeir eru komnir á frílista, en vitanlega gengi þetta eðlilega, eftir því sem yfirfærslubeiðnirnar kæmu.
Það er þess vegna ekki nokkur munur á því að setja bifreiðar á frílista og ýmsar aðrar vörur, sem á frílista eru komnar, hvað það snertir, að vitanlega mundi verða yfirfært fyrir þeim, eftir því sem yfirfærslubeiðnirnar berast og eftir því sem ástæður eru fyrir hendi hverju sinni. En að láta sér detta í hug, að bifreiðar hafi forgang um yfirfærslu, þótt þær séu komnar á frílista, er meira en ég hafði látið mér detta í hug að hv. þm. V-Húnv. léti sér til hugar koma. Ég hef látið mér detta það í hug og tel reyndar sjálfsagt, að um leið og bifreiðar eru komnar á frílista, séu þær jafnréttháar og aðrar vörur, en ekki rétthærri.
Að ég mæli með því, að bifreiðar séu teknar á frílista, stafar af því, að ég hef sannfæringu fyrir því, að það mundi ekki valda meiri gjaldeyriseyðslu en með því fyrirkomulagi, sem við nú höfum. Það er alveg rétt, sem fram var tekið hér áðan, að haftafyrirkomulagið á bifreiðainnflutningi getur valdið gjaldeyrissóun, og sú tregða, sem hefur verið á því að endurnýja bifreiðarnar á undanförnum árum, hefur gert þjóðinni beinan skaða gjaldeyrislega séð. Þarf ekki annað en að fletta upp í innflutningsskýrslum til þess að sjá, hversu innflutningur á varahlutum hefur aukizt ár frá ári í samræmi við það, sem bifreiðarnar hafa elzt. Og hvernig stendur á því, að yfirleitt þeir menn, sem gera sér einhverja grein fyrir því, hvað fjármál eru, telja sig alls ekki hafa efni á því að eiga eða reka gamla bíla? Þeir hafa alltaf einhver ráð á að endurnýja þá eða kjósa þá heldur þann kostinn að vera bifreiðalausir en að gera út gamla bíla. Og það er alveg eins óhagstætt fyrir þjóðarbúið að gera út gamla bíla og halda þeim við eins og það er óhagstætt og óhollt fyrir hvern einstakling.
Það má reikna með, að 13–14 hundruð bifreiðar verði fluttar til landsins á þessu ári, og til þess þarf rúmar 30 millj. kr. Má gera ráð fyrir, að það séu rúmlega 3% af innflutningnum til landsins á þessu ári. Það, sem hér er því farið fram á, er það að auka frílistann um 3%. Ef til vill finnst sumum það gáleysi, og ef til vill finnst öðrum, að gjaldeyrisástandið sé ekki þannig, að þetta sé unnt, en eins og áður er fram tekið, er ekki hér um það að ræða, að gjaldeyrisástandið verði verra eða betra, þótt við hættum að úthluta bifreiðaleyfum eins og við höfum gert núna, því að um leið og bifreiðarnar eru frjálsar, mun það reynast hér eins og reynzt hefur annars staðar, að eftirspurnin minnkar og þeir einir, sem virkilega hafa þörf fyrir bíla, munu láta sér detta í hug að kaupa þá.
Í Noregi eru innflutningshöft á bifreiðum. Í Danmörku eru innflutningshöft á bifreiðum. Í Svíþjóð voru einnig innflutningshöft á bifreiðum, en nú er innflutningur á bifreiðum frjáls þar. Og reynslan sýndi í Svíþjóð, þegar höftin voru afnumin af bifreiðunum, að innflutningurinn minnkaði næsta ár á eftir, að eftirspurnin þverraði. Mannlegt eðli er það sama í Svíþjóð og á Íslandi, enda erum við skyldir. Og niðurstaðan mundi verða eitthvað svipuð hér og þar, að um leið og menn hafa það á tilfinningunni, að þeir geta eignazt bifreið, þegar þeir þurfa þess með og hafa efni á að kaupa hana, þá mun eftirspurnin minnka.
Það er nauðsynlegt að breyta um skipulag í þessum málum, og það er sjálfsagt að gera það. Við höfum haft ágæta menn til þess að skipta þessum gæðum á milli mannanna, en þessir ágætu menn geta það ekki, svo að vel sé, frekar en einhverjir aðrir, sem við mundum vilja velja og sumir segðu að væru ef til vill betri. Og ef það væri rétt, sem sagt var hér áðan, að allt að 15% af leyfunum færu á svartan markað, þá sjáum við, að slíkt ástand í viðskiptunum er óheilbrigt og nauðsynlegt að uppræta.
Þegar um er að ræða að skipta 1300 bílum á milli kannske 5000 manna, þá verður ákaflega erfitt að finna út, hverjir hafa þörfina, hverjir hafa sótt um virkilega með það fyrir augum að eiga bílinn og nota hann sjálfir og hverjir hafa sótt um leyfi til þess að fá leyfið í hendurnar til að hagnast á því beinlínis og til þess að selja það. Á meðan útgefið leyfi fyrir bifreið gildir sama sem ávísun á tugi þúsunda króna, sækja menn um leyfi, þótt þeir ætli ekki sjálfir að kaupa bíl. Þeir sækja um leyfi til þess að geta selt leyfið öðrum. Þess vegna eru þessar umsóknir allar enginn mælikvarði á hina eiginlegu þörf, og þess vegna er þessum ágætu mönnum okkar uppi á Skólavörðustíg gert svona erfitt fyrir með að vinna, að þeir þekkja ekki alla umsækjendurna. Þeir geta ekki gert sér fulla grein fyrir því, hverjir ætla að selja leyfin og hverjir ætla raunverulega að nota bifreiðina sjálfir.
Ég býst nú við, að þessi till. verði samþ., að meiri hluti þm. og ef til vill flestir séu því samþykkir að gera bifreiðainnflutninginn frjálsan, þannig að bifreiðarnar verði settar á frílista jafnréttháar öðrum frílistavörum, og ég vænti þess, að engum öðrum en hv. þm. V-Húnv. detti í hug, að bifreiðarnar eigi að hafa forgang með yfirfærslu, ganga á undan matvöru og öðru því nauðsynlegasta.
Ég býst við, að það geti flestir verið sammála um það, að rétt sé í leiðinni að athuga, hvort það séu ekki ýmsar fleiri vörur, sem ættu að vera á frílista, en eru það ekki. Timbur og sement er ekki á frílista, en er í reyndinni frjálst að því leyti til, að það væri ekki flutt inn meira magn af timbri og sementi, þó að það væri á frílista. En það er ekki hægt að kaupa sement og timbur frá öllum löndum. Það er ákveðið í viðskiptasamningum, að sementið skuli keypt frá Rússlandi og að timbrið skuli keypt frá Finnlandi. Þannig er viðskiptunum beint til ákveðinna landa í gegnum viðskiptasamninga, en magnið er ekki takmarkað. Þannig er það með fleiri vörur, og þess vegna er ekkert því til fyrirstöðu að athuga það í leiðinni, enda þótt bílarnir hafi alveg sérstöðu, því að með því að setja þá á frílista tekst að uppræta óheilbrigða verzlunarhætti og útiloka þá óánægju, sem er meðal almennings með það ástand, sem hefur gilt og að vísu er ekki verra núna en það hefur verið. Má segja, að það sé mun betra, en ekki í lagi.
Hv. þm. V-Húnv. talaði um, að það væri einkennilegt, að stjórn sjálfstæðismanna á árunum 1944–46 skyldi ekki gera bifreiðainnflutninginn frjálsan þá, enda þótt gjaldeyrisástæður væru góðar í landinu á þeim tíma. En þess ber þó að geta, að á árunum 1945 og 1946 var flutt inn mikið af bifreiðum, og hafa landsmenn fram að þessu búið að þeim bifreiðainnflutningi. En ég hygg, að sá vitri maður, Pétur heitinn Magnússon, sem þá var viðskmrh., hafi ekki á því stigi talið rétt að gefa bifreiðainnflutninginn alveg frjálsan vegna þess, hversu bifreiðarnar voru ódýrar þá miðað við kaupgetuna í landinu. Nú er allt öðru máli að gegna. Nú eru bifreiðarnar ekki eins ódýrar, og nú er meginhlutinn af þeim bifreiðum, sem fluttar eru inn, skattlagður um 135%, og hlýtur það að draga mikið úr eftirspurninni. Hinu verður svo ekki neitað, að Pétur heitinn Magnússon og stjórn sjálfstæðismanna á þessum árum jók bifreiðainnflutninginn um mörg hundruð prósent, sbr. það, að eitt árið var flutt inn á þriðja þúsund bifreiða, og þótti sumum nóg um á þeim tímum.
Ég þarf ekki að mótmæla því, sem hv. þm. sagði hér áðan, að við sjálfstæðismenn hefðum aldrei í sumar gert neina raunhæfa till. um það að gera bifreiðainnflutninginn frjálsan, þar sem við höfum ekki viljað gera ráðstafanir til þess að tryggja yfirfærsluna. Ég hef raunar tekið það fram áður, að þessi hv. þm. hafi viljað, að ég færi niður í banka og fengi yfirlýsingu frá bankastjórunum um, að alltaf skyldi verða yfirfært fyrir bílum, sem sagt, að þeir hefðu forgang. Þá ferð vildi ég ekki fara og datt reyndar ekki í hug að fara, vegna þess að ég vil, að bílarnir hafi sama rétt til yfirfærslu og aðrar vörur, en ekki forgang.
En ég endurtek það, sem ég sagði hér í byrjun, að hv. þm. V-Húnv. vill hafa haftakerfið áfram, og það er vegna þess, að hann hefur búið lengi við það. Hann var forstöðumaður fyrstu haftanefndarinnar hér, og þá kynntist ég þessum hv. þm. fyrst og man hann nú reyndar alltaf síðan. — Ég hafði vonað það, að löngunin til haftanna væri nú upprætt hjá honum, en mér finnst, að till. í sumar og sú till., sem hann nú hefur borið fram, beri vitni um það, að haftalöngunin sé enn þá honum í brjóst borin.