17.11.1954
Sameinað þing: 15. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 468 í D-deild Alþingistíðinda. (2791)
76. mál, frjáls innflutningur bifreiða
Flm. (Jóhann Hafstein):
Herra forseti. Mig furðar að mörgu leyti á því, sem fram kemur í þessum umræðum og sérstaklega hjá hv. þm. V-Húnv. Það er alkunnugt, að hann er einn meðal þeirra, sem fremstir standa í því að vilja viðhalda höftum og bönnum í þessu þjóðfélagi. Það kom greinilega í ljós hér í fyrra, þegar samþykkt voru lögin um skipun innflutnings- og gjaldeyrismála, fjárfestingarmála o. fl. Ríkisstj. hafði þá á sinni stefnuskrá að leggja niður fjárhagsráð, auka athafnafrelsið í landinu, og samráð urðu um það innan ríkisstj., milli ráðherra Framsfl. og Sjálfstfl., að stíga það skref, sem stigið var með þessum lögum, þegar ríkisstj. lagði fram þetta frv. Ég hygg, að við höfum allir þm. Sjálfstfl. verið óánægðir yfir því, að ekki var hægt að ganga lengra og ákveðnar í þá átt til aukins frjálsræðis. Samt sem áður fögnuðum við þeim árangri, sem náðist, þegar þetta frv. var lagt fram, og vissulega hefur orðið mikill árangur af þessari löggjöf. En þá var einn hv. þm. hér, sem hélt mjög eftirminnilega ræðu, sem einkenndist aðallega af harmagráti yfir andláti fjárhagsráðs. Og það var þessi sami hv. þm. V-Húnv. sem nú talar hér, að vísu með svo mikilli skinhelgi, að hann hefur ekki einurð til þess að segja, að hann sé á móti því að setja bifreiðarnar á frílista, en siglir hér undir fölsku flaggi og segir: Ég vil ekki setja þær á frílista eins og aðrar frílistavörur, heldur vil ég, að það sé tryggt, að þær hafi forréttindi og séu algerlega frjálsar og frjáls gjaldeyrisverzlun með bíla. — Ja, það er til afskaplega kunnugt og almennt orð yfir þetta á íslenzku máli. Þetta er kallað hræsni. Og það er kallað að vera hræsnari, þegar maður kemur fram á þennan hátt, að flytja brtt. við till. um frjálsan innflutning, sem gengur miklu lengra en sú till. til frjáls innflutnings, sem flutt er, en hv. þm., eftir því sem fram er komið, inn á sér er algerlega á móti. En gagnvart sínum kjósendum og einhverjum öðrum ætlar þessi hv. þm. að draga upp þá helgimynd af sér með gloríu á, að þegar lagt hafi verið til að setja bifreiðar á frílista eins og aðrar frílistavörur, þá varð ég ekki með því, nema tryggt væri, að þær hefðu aðra aðstöðu en allar aðrar frílistavörur. Ég, þm. V-Húnv., er þess vegna, eins og gefur að skilja, langmesta frelsiskempan, sem nú situr á þingi.
Annars sést bezt, ef þessi mál eru athuguð niður í kjölinn, hversu haldlaus eru þau rök, sem tilraun er gerð til að flytja í þessu máli hjá þessum hv. þm. og raunar fleirum. Hv. þm. V-Húnv. kemur að efninu, þegar hann segir: Það er ekki gerður frjáls innflutningur á bílum með því að flytja úthlutunina frá innflutningsskrifstofu og niður í bankana. — Ja, þarna kom að því, sem hv. þm. sagði nú ekki í sinni fyrri ræðu, en vitað var að hann hafði haldið mjög á lofti í sumar innan ríkisstjórnarinnar, meðan hann sat í ráðherrastóli, að af tveimur haftakerfum, sem hann vildi halda fram að um væri að ræða, vildi hann þó heldur hafa það, sem er, en annað og það, sem falið væri bönkunum. Þess vegna er þetta ekki frjálst, segir hann, fyrr en það er öruggt og yfirlýsingar liggja fyrir um það, að menn geti viðstöðulaust fengið gjaldeyri fyrir innflutningi bifreiða. Ja, hvernig er þessum málum háttað? Hvernig er háttað með þær vörur, sem nú þarf að sækja um gjaldeyrísleyfi fyrir? Menn koma með gjaldeyrisleyfin. Er það örugglega víst, að menn fái viðstöðulaust gjaldeyrinn fyrir þau? Það er ekki örugglega víst, með þeirri skipan mála, sem er í dag. Það fer eftir gjaldeyrisaðstöðunni á hverjum tíma. Samt sem áður hefur það gengið misfellulítið, að menn hafi fengið gjaldeyrisyfirfærslur fyrir frílistavörum. En eins og bankarnir geta samkv. lögunum í dag dregið að yfirfæra gjaldeyri fyrir frílistavörum, þá geta þeir eins dregið að yfirfæra gjaldeyri fyrir vörum, sem gjaldeyrisleyfi hafa verið veitt fyrir.
En við skulum svo líta á aðstöðuna í dag. Það er búið að gefa út leyfi eða er verið að gefa út leyfi fyrir um 1300 bílum. Nú er það ekki þar með sagt, að menn fengju neinn gjaldeyri fyrir þessum leyfum. En í sannleika sagt hafa bankarnir viðstöðulaust yfirfært gjaldeyri fyrir bilunum og tekið á sig þá skuldbindingu að yfirfæra gjaldeyri fyrir öllum þessum bílum, og það er meira bílamagn en með nokkrum skynsamlegum rökum er hægt að búast við að flutt verði inn, þó að frjáls innflutningur væri á næsta ári. Það, sem ég meina í þessu sambandi, er það, að bankarnir hafa tekið innborganir hjá hverjum manni, sem hefur komið með bílaleyfi sitt, innborganir fyrir fob-verðinu. Og það, að bankarnir hafa tekið á móti innborgunum fyrir gjaldeyrisverðmæti bílanna, samsvarar tryggingu fyrir gjaldeyri af hálfu bankanna.
Samkv. þessu og þeim viðhorfum, sem eru í gjaldeyrismálunum og ég skal koma nánar að síðar, og þeim líkum, sem eru um bifreiðainnflutning á næsta ári eftir þetta mikla innflutningsmagn, þá er ekki skynsamlegt og ekki ástæða til þess að ætla, að það muni stranda á yfirfærslum til bifreiðainnflutnings, þó að bifreiðar væru á frílista á næsta ári. Og má ég svo loksins spyrja: Hví má ekki reyna þetta? Við skulum reyna þetta, og ef þetta er með svo miklum ókjörum sem sumir hv. þm. vilja vera láta, ja, þá kemur hv. Alþ. saman að nýju, og það mætti þá gera tilraun til þess að flytja bifreiðarnar aftur af frílista og í það sama horf sem nú er, ef einhver hefur löngun til þess þá. Hvað skyldi vera mikil áhætta fyrir hv. þingmenn að gera tilraun með að setja bifreiðar á frílista ?
Samkv. lögunum, sem gilda í dag um skipun innflutnings- og gjaldeyrismála, er þetta meginstefnan samkv. 1. gr.: „Stefna skal að því að gera allan innflutning til landsins frjálsan.“ Að þessu hefur hæstv. ríkisstj. unnið, og þessi lög hafa verið samþ. með atkv. beggja stjórnarflokkanna. Og stefnan er þá í þessum málum sú að bæta við vöruflokkum á frílista, eftir því sem gjaldeyrisaðstaðan leyfir á hverjum tíma. Það er sú stefna, sem núverandi stjórnarflokkar hafa markað með setningu þessara laga á s.l. Alþingi.
Nú er því haldið fram af mér og öðrum flm. þessarar till., að haftakerfið við bílainnflutninginn, sem í dag er, leiði í mörgum tilfellum til gjaldeyrissóunar, sem hægt sé að komast hjá, og við það að setja þessar vörur á frílista séu ekki líkur fyrir því, að við getum ekki yfirstigið það frá gjaldeyrissjónarmiði séð, og ef svo er með jafnumfangsmikinn vöruflokk eins og bifreiðar eru, þá á samkv. núgildandi lögum, sem núverandi stjórnarflokkar hafa sett, að setja þennan vöruflokk á frílista.
Ég tók fram í minni framsöguræðu, að ég gerði ráð fyrir því, að ef gjaldeyrisþoli þjóðarinnar í dag væri ekki ofboðið með þeim skammtaða innflutningi bifreiða, sem ákvarðaður hefur verið, þá væru engar líkur til þess, að því væri ofboðið á næsta ári, þó að innflutningurinn væri frjáls.
Hv. 1. landsk. talaði hér nokkuð langt mál um gjaldeyrisaðstöðuna í dag. Ég verð að segja alveg eins og er, að ég fann ekki betur en að í öllum veigamestu atriðum væru þær tölur og upplýsingar rangar, sem hv. þm. fór með um gjaldeyrisaðstöðu þjóðarinnar. Ég hef að vísu ekki hjá mér hér þær skýrslur, sem fyrir liggja um þetta, og get þess vegna ekki á þessu stigi málsins tekið af skarið í þessu sambandi. En ég sé ekki betur en að þær séu rangar og það að verulegu leyti, eftir því sem mig rekur minni til, samkv. síðustu skýrslum. Ég hygg, eftir því sem ég bezt veit, að inneign okkar í gjaldeyri frá öðrum löndum en clearing-löndum og vöruskiptalöndunum hafi verið hagstæð um síðustu mánaðamót um 80 millj. kr., og þegar allar skuldbindingar okkar og greiðsluloforð væru með tekin, hvort sem væri í clearing-löndum eða öðrum, væri a. m. k. hagstæð í heild um 25 millj. kr. En mér skildist, að hv. 1. landsk. vildi halda því fram, að gjaldeyrisaðstaðan væri óhagstæð, að viðbættum B-leyfum, sem hann taldi vera eitthvað um 40 millj., um rúmar 50 millj. kr. Ef við tökum þá B-leyfin frá, væri hér sambærileg tala eitthvað 10–12 millj. óhagstæð gjaldeyrisaðstaða, sem ég vil meina að sé, þegar öll greiðsluloforð og greiðsluskuldbindingar eru með teknar, um 25 millj. kr. hagstæð aðstaða. Þetta vil ég láta nægja um þetta á þessu stigi málsins, því að eins og ég segi, þá þarf ekki um þessa hluti að deila, heldur leiða fram í dagsljósið þær tölur, sem fyrir liggja, og hafði ég þær ekki við höndina, en mér komu mjög ókunnuglega fyrir sjónir þær upplýsingar, sem hv. þm. gaf í þessu sambandi. Hins vegar leiddi hann athygli að því, að gjaldeyrisaðstaðan væri þó sízt verri og kannske betri nú en í fyrra, og styður það þá það, að ekki sé þess að vænta, ef menn búast við minni bílainnflutningi, eftir að þessari miklu lotu núna er lokið, að ekki sé ástæða til þess að örvænta um það, að við höfum nógan gjaldeyri til að sinna þessum innflutningi.
Hv. 1. landsk. sagði, að verið hefði ljót lýsing mín á framkvæmd þessara mála á undanförnum árum og ég hefði verið að tala um, að 15% af leyfunum hefðu á undanförnum árum verið á svarta markaðinum. Við þetta er nú að athuga það, að ég var einmitt ekki að tala um framkvæmd þessara mála og tók sérstaklega fram í minni ræðu, að það væri alveg tilgangslaust að sakast við þá menn, sem til þess hefðu verið settir að úthluta bifreiðum með því fyrirkomulagi, sem við hefðum haft. Það væri ekki á valdi neinna einstakra manna að úthluta bílaleyfum, þegar þau samsvöruðu því að úthluta háum peningaupphæðum til einstakra manna; kerfið væri þannig í sjálfu sér, að það væri óframkvæmanlegt, og þó að þeir settu tvo engla til þess að úthluta þessum bílum, þá mundi það áreiðanlega standa í þeim góðu verum líka. En í öðru lagi sagði ég alls ekki, að 15% af leyfunum hefðu verið á svarta markaðinum að undanförnu, heldur fullyrti ég, að það væri sennilegt, að um 15% af þeim leyfum, sem út hafa verið gefin í ár, fyrir þessum nýja bifreiðainnflutningi, væru þegar komin á svartan markað. En það er miklu hærri tala af þeim leyfum, sem út hafa verið gefin á undanförnum árum. Og þetta var alveg eins, meðan fulltrúi Alþfl. hafði oddaaðstöðu í fjárhagsráði. Ég skal ekkert segja um, hvort það hefur verið betra eða verra, af því að það skiptir ekki máli, hvort það situr þarna Pétur eða Páll; en það var alveg sama sagan þá. En það er fullvíst, að á undanförnum árum hefur miklu meira en 15% af leyfunum á hverjum tíma verið á svörtum markaði, annaðhvort leyfunum beinlínis sjálfum eða bílunum, þegar þeir hafa komið inn til landsins. En eftir viðtölum mínum við bílainnflytjendur núna — og ég taldi, að það væri rannsóknarefni þeirrar n., sem fær þetta mál til meðferðar — hef ég áætlað, að það væri þegar komið á svarta markaðinn nálægt 15% af þeim leyfum, sem út hafa verið gefin. Og það liggur þannig í því, að það er hægt að fá nokkra vitneskju um þetta, vegna þess að menn hafa beinlínis komið til bílainnflytjenda og annarra og boðið þeim sín leyfi til ráðstöfunar handa öðrum fyrir 18–20 þús. kr., sem er að vísu heldur lækkun á svartamarkaðsverðinu, vegna þess að önnur gjöld hafa komið ofan á. Svona er þetta. Ég veit ekki, hvernig hv. 1. landsk. hefur fengið sinn bíl. Mér er sagt, að hann keyri hér í nýjum bíl, Austin-bíl frá Englandi. Það hefur nú verið alveg sérstaklega erfitt að fá þá. Ég vona, að hann hafi ekki þurft að borga 15–20 þús. kr. fyrir leyfi fyrir honum.
Um ræðu hv. 1. þm. N-M. vil ég segja það, að honum fór, fannst mér, nokkuð líkt og hv. þm. V-Húnv. Hann saknaði haftakerfisins; hafði, sagði hann, sjálfur útvegað 200 leyfi fyrir AGAeldavélum, en eftir að forustu hans í því máli þraut, hefðu sem sagt naumast nokkrar AGA-eldavélar verið fluttar inn til landsins. Þess vegna taldi hann, að það væri aðeins orðaleikur, hvort vara væri á frílista eða ekki, og hann vildi ekki vera með í því að slá ryki í augu fólksins. Nú veit ég, að kjósendur þessa hv. þm. hafa í mörgum tilfellum fundið, að það er mikill munur á því, hvort vara er á frílista eða hvort hún hefur verið leyfum bundin eins og á undanförnum árum, og á ég þar t. d. við hinar nauðsynlegu dráttarvélar og önnur verkfæri, sem bændur hafa þurft til afnota og hafa aukið svo mjög notkun á á undanförnum árum. Það var gífurleg eftirspurn eftir dráttarvélum og erfitt að fullnægja á tímabili eða gefa út leyfi nokkuð í samræmi við það, sem menn báðu um. Þessi vara var svo sett á frílista. Ég tók það fram í minni fyrstu ræðu og tek það enn fram, að það hefur stundum staðið á því, að viðstöðulaust væri yfirfærður gjaldeyrir, t. d. fyrir dráttarvélum, sem eru á frílista. Samt sem áður hefur þetta gengið án þess, að verulegir annmarkar hafi verið á, og til stórra hagsbóta og hagræðis fyrir þá menn, sem hafa notið innflutningsins. Og svo mikið er víst, að þegar menn halda því fram, að það sé ekki nema orðaleikur, hvort varan er á frílista eða ekki, það sé bara verið að flytja innflutninginn eða úthlutun innflutningsins úr innflutningsskrifstofunni og niður í bankana, þá vildi ég meina, að það er einkennileg tilviljun, að í þessi rúm tvö ár, sem ég hef gegnt bankastjórastarfi í öðrum bankanum, minnist ég ekki nema í eitthvað þremur eða fjórum tilfellum, að til mín sem bankastjóra hafi komið umkvartanir yfir því, að staðið hafi á yfirfærslu á gjaldeyri fyrir greiðsluheimildum, sem menn hafa haft, eða frílistavörum. Og það má mikið vera, ef þetta er svo slæmt, að það sé enginn munur á því eða hvort það á að sækja um leyfi til innflutningsskrifstofunnar, — það má mikið vera, að maður skyldi þá ekki hafa heyrt í fleirum. Á sama tíma hefur maður a. m. k. heyrt æði margar umkvartanir í sambandi við innflutning bifreiða og ýmissa annarra vöruflokka, sem leyfisveitingum hafa verið háðir. Þó að sem sagt lögin geri ráð fyrir því í dag, að það sé í höndum bankanna að verzla með gjaldeyrinn, og þeir hafa einkarétt til þess samkv. gildandi lögum, þá held ég, að það verði ekki hrakið, að engar verulegar misfellur hafi átt sér stað í því, að frílistavarningurinn væri raunverulega frjáls, sem þó hefur verið vefengt. Nú véfengi ég ekki og hef ekki aðstöðu til þess að segja, að það sé rangt, sem hv. 1. þm. N-M. segir, að það hafi ekki tekizt að fá innfluttar AGA-eldavélar, sem séu á frílista. Ég hef enga aðstöðu til þess að segja það. Um þetta hef ég ekkert heyrt fyrr en núna. Þetta er sjálfsagt að sé athugað nánar. Og það kemur þá í ljós, í hverju þetta liggur og hvernig þessi vöruflokkur hefur skorið sig svo sérstaklega úr, — ég segi: skorið sig svo sérstaklega úr, — og skal ég engum getum að því leiða.
En aðalefni málsins er þó það, að ef menn vilja ekki flytja bifreiðainnflutninginn á frílista frá því haftakerfi, sem hann er nú bundinn í, vegna þess að það þýði bara að flytja úthlutun leyfanna frá höndum tveggja manna í innflutningsskrifstofu til tveggja manna í bönkunum, þá er að gera sér grein fyrir því og leita upplýsinga um það, og það ætti sú hv. n., sem fær þetta mál til meðferðar, að fá upplýsingar um, hvernig í framkvæmd hefur til tekizt um hinn frjálsa innflutning eða frílistavöruinnflutninginn, sem við höfum nú notið góðs af á undanförnum árum, og leyfi ég mér enn einu sinni að staðhæfa, að á því hafa ekki verið miklar misfellur. Og undarlegt er það, að aldrei hefur maður heyrt neinar opinberar kvartanir, — ja, ég segi fyrir mitt leyti, neinar opinberar kvartanir, og í tveggja ára bankastjóratíð minni hef ég naumast heyrt nokkrar umkvartanir í þessu efni, og mætti þó ætla, ef mönnum fyndist, að þeir væru miklum órétti beittir í þessu af hinni svokölluðu millibankanefnd, þ. e. a. s. einum fulltrúa frá hvorum banka, að þeir leituðu til bankastjóranna til að fá réttan hlut sinna mála.
Ég vil svo aðeins að lokum segja það, að ég vék að því í minni fyrri ræðu, að ég teldi eðlilegast, að brtt. frá hv. þm. V-Húnv. væri orðuð eitthvað á þá leið, að það væri tryggður gjaldeyrir fyrir bílum eins og fyrir öðrum frílistavörum, að hann væri til með sömu skilyrðum og fyrir aðrar frílistavörur. Það getur vel verið, að það þurfi ekki að taka neitt fram um þetta. Það stendur í brtt., að það sé tryggt, að menn fái gjaldeyri. Enginn hefur þó dregið í efa, að bankarnir hér gætu sett ýmis almenn skilyrði fyrir úthlutun gjaldeyrisins, og er það í fullu samræmi við það, sem tíðkast í okkar nágrannaviðskiptalöndum. Það er það, sem gert er í dag með bílana, og það mundi ekki verða öðruvísi, þó að bifreiðainnflutningurinn væri frjáls. Ég staðhæfi hiklaust, að það mundi ekki verða gengið lengra en gengið er í dag, að bankarnir létu borga gjaldeyrinn um leið og beðið er um hann. Það er í raun og veru verið að biðja um gjaldeyri, þegar komið er í bankann og sýnt leyfi fyrir innflutningnum og borgað inn andvirði fob-verðsins, og með því að taka á móti þessu hafa bankarnir fallizt á að veita öllum, sem eru með leyfi fyrir bílum í dag, gjaldeyri, ef þeir borga gjaldeyrinn út um leið og þeir biðja um hann, og á þessu hygg ég að verði engin breyting, svo að ef til vill má samþ. þessa brtt. og ná þeim tilgangi, sem hv. þm. stefnir að, án þess að gera á henni nokkra breytingu, og væri það náttúrlega langsamlega skemmtilegast. Þá gætu allir orðið sammála í þessu mikilsverða máli.