02.12.1954
Sameinað þing: 21. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 488 í D-deild Alþingistíðinda. (2802)

76. mál, frjáls innflutningur bifreiða

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Ég hafði upphaflega ekki ætlað mér að taka mikið til máls um þessa þáltill. á þessu stigi málsins, en mér heyrðist umr. á þeim degi, þegar það var rætt síðast, vera komnar inn í þann farveg, að það væri rétt að leggja orð í belg.

Ég held það hafi verið hv. 1. landsk. (GÞG), sem var kominn eitthvað inn á útflutningsmálin í sambandi við þessi innflutningsmál, sem hér liggja fyrir, og hæstv. forsrh. svaraði þar með allmiklum þjósti og skoraði á hv. þm. að endurtaka orðið „svindl“, sem hann hafði minnzt á. Rétt á eftir gerðist svo það, að hv. þm. Barð., sem oft er allhreinskilinn hér í umræðum, kom með nokkur dæmi, sem hann taldi um svindl, sem ætti sér stað, eða tilraun til svindls, sem jafnvel hefði mistekizt, og kom með eina setningu í þessu sambandi, sem mér finnst eiginlega nokkuð lærdómsrík. Það var þegar hann var að tala um innflutninginn nú og sagði, að til þess að stjórna innflutningsskrifstofunni væri einn maður frá Sjálfstfl. og einn maður frá Framsfl. Ég held, að það sé ástæða fyrir okkur til þess að hugleiða ofur lítið, hvert við erum komin í þessum efnum, sem þarna er verið að ræða um.

Hæstv. forsrh. og raunar fleiri orðuðu það, að ein ástæðan til þess, að þessi þáltill. væri flutt, væri sú, að það yrði að koma í veg fyrir allar grunsemdir um misbeitingu valdsins hjá valdhöfunum, — a. m. k. minnir mig, að það hafi verið orðað nokkurn veginn á þá leið, — ég held hann hafi sagt: að létta grunsemdum um misbeitingu valdsins af herðum valdhafanna.

Ég held, að það sé ekki úr leið fyrir okkur, einmitt með tilliti til þeirrar þróunar, sem orðið hefur hérna, að athuga þetta nokkru nánar. Hver er ástæðan til þess, að þessi þáltill. er komin fram? Hvernig stendur á því, að þetta mál um innflutning bílanna skuli yfirleitt vera rætt hér á Alþingi? Hvernig er það, þegar við reynum að fá einhver önnur mál rædd hér á Alþ., sem ekki snerta innflutning á bílum, ef við reynum að fá rætt hér á Alþ. um við skulum segja innflutning á olíu, innflutning á sementi, útflutning á saltfiski eða eitthvað annað þess háttar, hvernig gengur það þá? Þá gengur það mjög illa. Við fáum venjulega engar umræður um það. Og af hverju fáum við engar umræður um það? Vegna þess, að þá er venjulega búið að gera samkomulag milli stjórnarflokkanna um þessa hluti, þannig að það kemur ekki til kasta Alþingis. M. ö. o.: Ef það tekst samkomulag á milli núverandi stjórnarflokka um, hvernig þeir eigi að skipta á milli sín ákveðnum gróða af ákveðnum útflutningi eða innflutningi, þá kemur málið ekki til kasta þingsins. En svo framarlega aftur á móti sem þessir stjórnarflokkar tveir verða ósammála um einhvern hlut, þá kemur málið til kasta þingsins, og þá fáum við alls konar upplýsingar, eins og m. a. þær, sem fram komu í ræðu hv. þm. Barð., þá fáum við alls konar ásakanir á víxl um alls konar svindl og annað slíkt, sem við annars alls ekki fáum að heyra úr þessum stjórnarherbúðum nema í sambandi við kosningar. Ég held þess vegna, að það sé alveg nauðsynlegt, að Alþ. geri sér ljóst, hvernig ástandið er orðið í þessum efnum. Þeir tveir núverandi stjórnarflokkar haga sér í sinni afstöðu til þjóðarbúskaparins eins og tveir ræningjar. Ef þeir koma sér ekki saman um að skipta bráðinni, skipta þeim einkaréttindum, sem hagnýting ríkisvaldsins gefur þeim, þá koma þeir til þingsins og þá biðja þeir þingið um að skera úr. Hins vegar meðan þeir eru að úthluta á milli sín sem einkaréttindum því valdi, sem það að hafa ríkisvaldið með höndum gefur þeim, og meðan þessi einkaréttindi eru nothæf sem féþúfa, sem arðránstæki gagnvart alþýðu eða gagnvart þjóðfélaginu, meðan þeir koma sér saman um, hvernig þeir eigi að nota þetta tæki, þá þegja þeir gagnvart Alþ. Þá er það alveg sama, hvað er komið hérna fram með, þá steinþegja þeir.

Mér finnst satt að segja, að þróunin núna síðustu árin hjá Sjálfstfl. og Framsfl. sé sú, að þessir tveir flokkar séu að hætta að vera stjórnmálaflokkar, þeir séu að verða eins konar hlutafélög, þeir séu að verða flokkar, sem skoða það fyrst og fremst sitt verkefni að hluta á milli sín ríkisvaldinu og hluta ríkisvaldinu á milli sin með tilliti til þess, hvort hægt sé að nota ríkisvaldið sem féþúfu og hægt að nota það til þess að arðræna þjóðina eða þjóðfélagið í heild. Og meðan þeir koma sér saman um; hvernig eigi að hluta, hvernig eigi að skipta, þá fellur allt í ljúfa löð.

Þetta, að ríkisvaldið skuli yfirleitt geta gefið þetta, skuli geta veitt slík einkaréttindi, skuli geta orðið slík féþúfa, stafar einvörðungu af því, hvað ríkisvaldið hefur mikið að gera með allan okkar þjóðarbúskap. Þess vegna er það ekkert undarlegt, þó að það komist hér upp öðru hverju, og þá er það auðsjáanlega vegna þess, að innan stjórnarherbúðanna hafa ásakanirnar gerzt nokkuð háværar. Ég veit alveg fyrir víst, að hæstv. forsrh. hefur ekki farið að tala um, að hann vilji létta grunsemdunum um misbeitingu valdsins af herðum valdhafanna, bara vegna þess, að við værum eitthvað að skammast. Hann er svo vanur því, að hann kippir sér ekki upp við það. En þegar þeir eru farnir að skammast innan stjórnarinnar, þegar ráðherrafundirnir eru þannig, að þeir ásaka hver annan á víxl um, hvernig þeir hafi misnotað þessa aðstöðu og misnotað hina, þá stendur forsrh. ekki lengur á sama. Þá verður hann að sjá um, að Sjálfstfl. leggi það fyrir þingið. Þess vegna er þetta núna komið til okkar kasta, og þess vegna er rétt, að við tökum málið almennt til athugunar. Hv. þm. Barð. sagði í sambandi við þetta, — ég efast um, að nokkrir hafi hneykslazt á því, en þó gæti það nú verið, ef þeir fara að íhuga það, — hann sagði, að það sætu tveir menn í stjórn innflutningsskrifstofunnar, annar frá Framsfl. og hinn frá Sjálfstfl. Ja, fyrir svo sem 25 árum hefði þótt hneyksli að segja þetta. Það hefði þótt hneyksli að segja um tvo opinbera embættismenn, sem hafa með að gera eins veigamikil fjárhagsatriði og úthlutun á öllum þeim innflutningsleyfum, sem veitt eru til landsins, að annar þeirra væri settur frá öðrum stjórnarflokknum og hinn væri settur frá hinum stjórnarflokknum, í staðinn fyrir að segja, að þeir væru settir af ríkisstjórninni. Eftir lögunum eru þessir menn skipaðir af ríkisstj. Það er alveg nákvæmlega sama hneykslið að segja það, að annar þeirra sé settur af Framsfl. og hinn af Sjálfstfl., eins og ef við segðum: Ja, þessi dómari hérna er nú settur af Framsfl. eða hann er settur af Sjálfstfl. — og í orðunum lægi: þar með er ætlazt til þess, að hann passi upp á hlut framsóknarmanna fyrir dómstólunum, eða ef hann er settur af Sjálfstfl., að hann passi upp á hlut sjálfstæðismanna fyrir dómstólunum. — M. ö. o. liggur í þessum orðum: Þessir tveir menn eru ekki settir af ríkisstj., ekki af ríkisstj. Íslands, nei, annar af Sjálfstfl., hinn af Framsfl., og auðsjáanlega er hugmyndin, sem á bak við liggur hjá þessum flokkum: Þeir eru að sjá um hagsmuni þessara flokka. Það er hugmyndin. Og þetta er komið inn í meðvitund jafnágætra manna og hv. þm. Barð., og það mikið inn í meðvitund ekki aðeins meginsins af þingheimi, heldur meginsins af þjóðinni, að það er farið að líta á þetta sem sjálfsagt. Og við skulum athuga, hvað það er, sem liggur á bak við í þessari þróun. Ástandið í dag er þannig, að ríkisstj. álítur sjálfsagt að setja tvo menn til þess að sjá um úthlutun innflutningsleyfa fyrir allri vöru, sem kemur til landsins. Það er álitið sjálfsagt á Alþ., að þeir séu settir sinn af hvorum stjórnarflokknum, auðsjáanlega til að passa upp á hagsmuni hvors stjórnarflokksins um sig, þannig að ekki hallist á.

Þegar upphaflega var byrjað á því, að ríkisvaldið tæki eitthvað slíkt í sínar hendur eins og innflutning til landsins, datt mönnum slíkt alls ekki í hug. Ég býst við, að t. d. hæstv. fjármálaráðherra, þegar hann átti hlut að máli um slíkt fyrir 20 árum, hefði fundizt það næstum því ósvífni, ef hann hefði verið ásakaður um það, að það væri verið að draga taum sérstakra flokka með skipun þáverandi gjaldeyrisnefndar. Hugmyndin, sem þá var, og hugmyndin, sem var haldið fram og jafnvel stundum er haldið fram enn þá, var sú, að ríkisvaldið væri eitthvert vald, sem væri ofar flokkum og jafnvel hlutlaust gagnvart þjóðinni, og mundi það gæta réttlætis og annarra slíkra dyggða. Meira að segja fyrir 10–15 árum hefði það fundizt rétt og sjálfsagt í flestum nefndum, að annaðhvort flestallir flokkar þingsins eða einhverjar þær stofnanir í þjóðfélaginu, sem þarna ættu hagsmuna að gæta, ættu allar þarna fulltrúa, allt með það fyrir augum, að þarna væri gætt réttlætis, það væri ekki hægt að misnota, það væri ekki hægt að misbeita þessu valdi. Og nefndirnar voru skipaðar með það fyrir augum að létta öllum grunsemdum um misbeitingu valdsins af herðum valdhafanna, svo að ég noti orð hæstv. forsrh. Og þá var enn þá hugmyndin þetta: Ríkisvaldið er yfir öllum, það á ekki að vera tæki neins sérstaks. — En hvað er það, sem nú er orðið með þetta? Ríkisvaldið hefur að vísu verið tæki á undanförnum árum. En það er ekki fyrr en nú, að þessir tveir stjórnarflokkar í þessari stjórn treysta sér til þess að kasta svo allri blygðun í þessum efnum, að þeir gera opinbert, að ríkisvaldið sé hagnýtt á þennan hátt, setja það inn í lög og ræða það á Alþ., að ríkisvaldið sé vald þessara tveggja flokka og að þessir tveir flokkar skipi mennina í þýðingarmestu störfin út frá sjónarmiðum flokkanna til þess að varðveita hagsmuni flokkanna, og allir aðrir, allir þeir, sem eru utan við stjórnarflokkana, allir aðrir almennir þegnar þjóðfélagsins hafi raunverulega ekkert að segja annað en að þola það, sem þessir skammta þeim. Það er þetta, sem er eftirtektarvert í þessu sambandi. Það er búið að kasta blygðuninni í þessum efnum. Það er búið að gera ríkisvaldið blygðunarlaust að tæki fyrir þá, sem hafa hrifsað það til sín, fyrir þá, sem hafa hremmt það. Og þeir nota það eins og ræningjar. Og þeir skipta ránsfengnum á milli sín, og á meðan þeir koma sér saman um það, þá fæst ekki einu sinni upplýst hér á Alþ., hvernig farið er að við skiptinguna. En svo framarlega sem þeir koma sér ekki saman, þá er farið að rífast hér, og þá kemur margt fram, og þegar þeir þurfa að skilja sambúðina fyrir kosningar, þá rífast þeir og þá afhjúpa þeir hvor annan. En með meginið af öllum þeim hlutum, sem gerast í sambandi við innflutning og útflutning, er það svo, að það hafa ekki aðrir aðgang að þeim hlutum en þeir, sem með innflutninginn og útflutninginn hafa að gera, þannig að það, hvað raunverulega gerist og hvernig þarna stendur, hafa menn ekki sérstaklega mikla aðstöðu til þess að vita.

Það er þetta í fyrsta lagi, sem ég vildi vekja eftirtekt á í sambandi við þá þróun, sem orðið hefur á þessum málum. Og ég vakti eftirtekt á þessu hér á Alþ., þegar það í fyrsta skipti gerðist, að slíkt var tekið upp. Það var raunverulega tekið upp utan þingsins. Það var í sambandi við úthlutun smáíbúðalánanna, þegar það gerðist, að af ríkisstj. voru skipaðir tveir menn, annar formaður framsóknarfélagsins í Reykjavík, hinn formaður sjálfstæðisfélagsins í Reykjavík, til þess að úthluta lánum úr ríkissjóði. Það þótti ekki fært að setja það í neinn banka, í neina stofnun, sem átti að hafa eitthvert yfirvarp hlutleysis, vegna þess að flokkarnir þurftu að nota það. Og það var kastað allri blygðun. Síðan er haldið áfram á þessari sömu braut.

Hæstv. forsrh. mun líklega hafa tekið upp eftir hv. 1. landsk. orðið „svindl“. Hann hefur líklega notað það, og hæstv. forsrh. kippti sér mjög upp við það og vildi helzt fá hann til að endurtaka það utan þingsins. Það getur alltaf verið spursmál um, hvaða orð eigi að nota í þessu sambandi. Verknaðurinn, sem mér sýnist vera að verða hinn almenni í sambandi við beitingu ríkisvaldsins í sambandi við útflutning og innflutning, er skipulögð féfletting á almenningi og þjóðfélaginu með aðstoð og fyrir tilverknað ríkisstjórnarinnar, sem notar ríkisvaldið í þessum tilgangi.

Það, sem auðmagn er í mörgum öðrum löndum, auðmagn, sem sett er í fyrirtæki ti1 þess að geta grætt á þeim, það er ríkisvaldið meira og meira að verða hér. Ríkisvaldið er að verða uppspretta gróðans, uppspretta fjár og auðs. Það að hafa ríkisvaldið með höndum er að hafa aðganginn að þessari uppsprettu og geta ráðið henni og geta beint henni í þann farveg, sem hún eigi að fara, geta virkjað hana. Og ég veit, að stjórnarflokkarnir gera sér svo ljóst, hvað þetta er satt, að hvorugur þeirra og líklega sízt af öllu Framsfl. muni geta hugsað sér að eiga að vera utan ríkisstjórnar, af því að svona er komið.

Það var út af saltfisksölunni, sem hæstv. forsrh. fór sérstaklega að ræða og tók djúpt í árinni. Ég álít, að einokunin viðvíkjandi saltfisksölunni hafi eins og önnur slík einokun einstakra aðila verið skipulögð féfletting frá upphafi vega. Hún tekst misjafnlega, en hún er rétt eins og olíuinnflutningurinn núna, eins og sementsinnflutningurinn og eins og öll þessi einokunaraðstaða, sem einstökum fésýslufyrirtækjum er sköpuð, skipulögð féfletting á almenningi. Hvenær fáum við hins vegar eitthvað að vita um slíka féflettingu? Jú, við fáum að vita um það t. d., ef einokunarkaupmönnum á Ítalíu kemur ekki saman við einokunarkaupmenn á Íslandi, eða við fáum eitthvað að vita um það, ef einhver, sem er í þjónustu einokunarinnar á Íslandi, fer að rífa sig eitthvað, og þá er hann náttúrlega settur af, og þeir, sem hann ásakar, eru svo sýknaðir seinna vegna skorts á sönnunum. Og við fáum að vita um þetta, ef Sambandið og S. Í. F. koma sér ekki saman. Þá kemur Framsfl., og þá afhjúpar hann. Þá segir Sambandið: Ja, þetta er eitt ógurlegt svindlfyrirtæki, þetta S. Í. F. — jafnvel þótt framsóknarmenn sitji í stjórn þess. Og S. Í. S. heimtar af fullum krafti frelsi og frelsi og frelsi, og svo semur Samband íslenzkra samvinnufélaga við Sölusamband íslenzkra fiskframleiðenda — og svo steinþagnar S. Í. S., þegar það er búið að fá sinn hluta, við skulum segja markaðsaðstöðu viðvíkjandi Esbjerg eða eitthvað þess háttar. Þá steinþagna þeir. Þá er skiptingin komin á, helmingaskiptareglan komin fram. Þá er þagað. Svona ganga hlutirnir fyrir sig.

Við skulum minnast á einn hlut í þessu sambandi, og það eru fragtirnar á öllu því, sem flutt er til og frá Íslandi, fragtirnar, sem teknar eru fyrir saltfiskinn, sem fluttur er út, eða freðfiskinn, og teknar fyrir það, sem flutt er hingað inn til Íslands. Það eru upphæðir, sem skipta hundruðum milljóna á ári. Og það er ekkert smáræði, sem grætt er á þessum frögtum. Og þeir, sem ráðstafa þessum frögtum, eru þeir sömu sem hafa einokun um innflutninginn og útflutninginn. Þegar t. d. Sjálfstfl. og Framsfl. þurfa að standa í kosningaslag, þá tala þeir aldeilis um þessar fragtir og hvernig þær séu og hvað sé grætt á þeim. Og þá fær þjóðin ofur litla innsýn í þetta. Þess á milli er 100% samkomulag um að halda áfram að láta fragtirnar til Íslands vera þrefalt hærri en fragtir á flestöllum samsvarandi svæðum í heiminum, vegna þess að aðilarnir, sem sjá um innflutninginn til Íslands, koma sér saman um að halda frögtunum hátt.

Hæstv. forsrh. veit ég að segir venjulega, þegar minnzt er á fisksöluna: Ja, útgerðarmennirnir eru ósköp ánægðir með þetta, þeir segja ekki neitt. — Þeir segja ekki neitt, en þetta er bara ekki einkamál útgerðarmanna eða fiskútflytjendanna. Ég veit ekki betur en ríkið stuðli að því, að það séu settar hundruð milljóna kr. til sjávarútvegsins, til útflytjendanna, til þess að styrkja þá. Maður má líka fá að vita, hvernig farið er með þetta fé. Þetta eru hlutir sem sannarlega eiga að leggjast fyrir og við eigum að geta fengið einhverja aðstöðu til þess að líta eitthvað inn í.

Þetta var út af því, sem kastaðist hér í kekki viðvíkjandi útflutningnum. En við skulum þá hverfa að tveim atriðum í innflutningnum, — tveim atriðum, sem ég hef minnzt á hérna hvað eftir annað og aldrei getað fengið neitt að vita um. Það er olían, og það er sementið. Ríkið kaupir þetta hvort tveggja inn, bæði olíuna og sementið, eins og það leggur sig. Það þarf ekkert einstaklingsframtak, ekki að sýna neinn dugnað í því að útvega olíu eða sement. Það gerir ríkisstj., hún sýnir þá framtakssemi. Það þarf enginn aðili að taka á sig neina áhættu við innkaupin eða annað slíkt, því afstýrir ríkisstj. Það er ekki þarna um að ræða, að það þurfi að vera einhver ofsagróði á þessum hlutum, vegna þess að það sé verið að berjast í þeirri harðvítugu frjálsu samkeppni, þar sem menn geti búizt við alls konar verðlækkunum, viðskiptastríði og öðru slíku. En við fáum ekki orð að heyra um þetta. Af hverju? Af því að þessum innflutningi er skipt jafnt á milli framsóknar- og íhaldsfélaganna. Þarna kvartar hvorugt þeirra, og þeir, sem hafa bezta aðstöðuna til þess að vita um, hvernig þetta stendur, virðast koma sér tiltölulega vel saman. Ég nefndi hér dæmi í fyrra, sem ég fékk viðvíkjandi sementinu þá, og það er hollt að rifja það upp, þegar byggt er meira á Íslandi en líklega hefur verið byggt nokkurn tíma áður. Þá kostaði sementið 200 kr. smálestin fob. í erlendri höfn. Þá var fragtin á einu tonni 130 kr., og þá kostaði þetta sama sement, sem eftir því kostar 330 kr. hérna komið í höfn, yfir 530 kr. í útsölu hér. 200 kr. voru lagðar á það fyrir kostnaði og álagningu hér heima, eða sama og sementið kostar sjálft erlendis.

Mér er nú spurn: Er það virkilega svo, að það þurfi til þess að flytja sement hingað til Íslands að fá greiðslu fyrir það, sem er meiri en nemur helmingnum, næstum því 2/3 af verðmæti sementsins erlendis, — eða t. d. þegar hraðfrysti fiskurinn er fluttur út, er nauðsyn að taka í flutningsgjald fyrir hann 10 sterlingspund á tonnið eða sem samsvarar, að það sé tekinn helmingurinn af öllum þeim launum, sem íslenzku sjómennirnir fá fyrir að afla þessa fisks, þegar það er tekið sem heild?

Það er ósköp gott samkomulag um fragtirnar eftir rifrildið um árið fyrir kosningar. Það er ósköp gott samkomulag núna, og ég tek eftir t. d., að S. Í. S. byggir hvert skipið á fætur öðru. Ég veit ekki, hvort það fær lán til þess eða hvort gróðinn er bara svona mikill. Það er talað um dýrtíð og dýrtíð, og það heyrist aldrei neitt viðvíkjandi því, að það megi lækka þessa hluti. En það er sköpuð einokunaraðstaða með innflutningnum og útflutningnum til hagnýtingar á þessum frögtum, og fragtirnar eru hagnýttar, settar svo hátt, að þjóðin er látin borga tugum milljóna, ef ekki hundruð milljónum kr. meira en þyrfti fyrir allar fragtirnar til landsins. Þetta er skipulögð féfletting, sem þarna á sér stað á almenningi, á þjóðfélaginu, með svona hagnýtingu á ríkisvaldinu.

Hæstv. forsrh. minntist á, að hv. 1. landsk. ætti að endurtaka utan þings það, sem hann hefði sagt. Ég vil segja það, ekki sízt ef hann skyldi nú beina þeirri áskorun til mín, að mér mundi ekki detta í hug að gera slíkt. Við skulum athuga, hvernig viðhorfið er í þessum efnum, sem hér er um að ræða, sem sé hvernig verðmyndunin fer fram í landinu, hvernig stendur á því, að allar vörur hér á Íslandi, sem seldar eru út til fólks, eru þrefalt dýrari en erlendis. Verðmyndunin á þessum hlutum þarf að rannsakast frá rótum. Það er hægt að gera sér hugmyndir um þetta, það er hægt að gizka á þetta. Það er hægt að slá fram fullyrðingum um þetta. En maður er ekki í þeirri aðstöðu að sanna þetta, og maður kemst ekki í aðstöðu til þess að sanna þetta, nema því aðeins að ná í þá aðstöðu frá hálfu stjórnarvaldanna til fullkominnar rannsóknar á þessum hlutum. Stjórnarskráin hefur einmitt gert ráð fyrir því, að svona ástand gæti myndazt, að einungis hér á Alþingi væri hægt að segja sannleikann um þessa hluti, og þess vegna er það ákvæði í stjórnarskránni, að þm. skuli ekki skyldugir til þess að standa við það opinberlega, sem þeir segja hér, nema þingið geri sérstakar ráðstafanir til þess. Það á hér á Alþingi að vera möguleiki til þess að segja sannleikann, þegar þeir, sem fremja afbrotin, sitja einir með sannanirnar. En þá skapar stjórnarskráin um leið aðra möguleika í þessum efnum. Hún skapar þann möguleika, að í hvorri d. um sig er hægt að setja niður rannsóknarnefnd til þess að rannsaka þessa hluti, til þess að ganga úr skugga um þessa hluti, og slík rannsóknarnefnd hvorrar deildar þingsins hefur aðstöðu til þess að yfirheyra embættismenn og aðra menn um þessa hluti. Þegar svona staðhæfingar koma hér fram, eins og bæði frá hv. 1. landsk. og frá mér, og þegar hæstv. ríkisstj. segir: Viljið þið standa við þetta frammi fyrir dómstólunum? — þá mundi ég vilja bjóða hæstv. ríkisstj. upp á að setja slíka rannsóknarnefnd hér í þinginu, þar sem stjórnarandstaðan hefur sína möguleika líka til þess að hafa menn í, og rannsaka þetta allt saman. Það er engin ástæða til þess, að mér né öðrum haldist það uppi ár eftir ár að vera að koma með ásakanir í þessum efnum, ef þær eiga ekki við rök að styðjast. Það er engin ástæða til annars en að þeir menn, sem verið er að ásaka, fái þannig aðstöðu til þess að geta hreinsað sig. En það er ekki til neins að leggja slíkt fyrir íslenzka dómstóla, eins og þeir eru núna. Dómstólarnir eru meira eða minna verkfæri og undir áhrifum ríkisstj. sjálfrar. Og það er þar að auki þannig, að svo framarlega sem sagt er eitt einasta orð um embættismann á Íslandi, jafnvel þó að það sé satt, þá þýðir það um leið, að menn eru dæmdir fyrir það. Þannig er það „praktiska“ málfrelsi utan þingveggjanna hjá okkur. Ef við eigum að geta gengið úr skugga um þessa hluti, þá eigum við þess vegna að rannsaka þetta alveg til hlítar.

Og nú er hér þáltill. um frjálsan innflutning bíla. M. ö. o.: Það hefur orðið ósamkomulag í ríkisstj. Hún hefur ekki komið sér saman um þetta, nema það hafi gerzt síðan seinast, og nú vill hún, að Alþingi segi til. Sem stendur er það nefnd stjórnarflokkanna, sem úthlutar bilunum, og það kveður svo rammt að, eftir því sem þeir segja sjálfir, að þeim finnst þetta vera alveg óþolandi, stjórnarflokkunum sjálfum. Till. er kennd við frjálsan innflutning bíla. En ég held, að raunverulega sé till. um að flytja úthlutunina úr tveggja manna n. stjórnarflokkanna uppi á Skólavörðustíg niður í millibankanefndina í Austurstræti. Ég skal náttúrlega ekki ræða sérstaklega mikið um frelsið. Það er kannske ekki rétt að nota það orð allt of mikið í sambandi við þetta. Stjórnarflokkarnir hafa hér á víxl verið að reyna að gefa okkur ofur litla hugmynd um, hvernig þetta frelsi væri, en ég er nú samt ekki fjarri því, að þetta sé framför. Ég held, að það sé framför að flytja það úr stjórnarnefnd Framsfl. og Sjálfstfl. niður í millibankanefnd ríkisbankanna í Austurstræti. Ég held það sé framför, og ef ríkisstj. væri nú á því að stíga þetta framfaraspor, þá held ég, að hún ætti líka að athuga, hvort hún ætti ekki að stíga eitthvert svipað framfaraspor viðvíkjandi smáibúðalánunum. Skyldu þau ekki líka eiga heima í bönkunum þarna í Austurstræti frekar en í flokksskrifstofum stjórnarflokkanna? Væri það ekki viðkunnanlegra, ef þetta væri nú gert viðvíkjandi bílunum, að leyfa smábýlunum að fylgjast með? En svo er mér nú spurn: Hvernig verður svo frelsið? Við skulum segja, að það væri nú samþykkt. Það verður náttúrlega 100% gjald, eða hvað það nú er, á bílana, áður en menn fá að flytja þá inn. En verður svo ekki svona 80–90% „rembourse“, áður en þeir, sem panta bíla, fá leyfi til þess að panta þá hjá bönkunum? Mér skilst vera komin sú hefð á hjá bönkunum nú að heimta, að menn borgi fyrir fram til bankanna, jafnvel allt upp í 100% af verðmæti þess hlutar, sem á að flytja inn. Það er orðið ákaflega „próblematiskt“, það frelsi til innflutnings, sem þannig er. Hvað þýðir slíkt frelsi? Með tilliti til hvers eru þessar ákvarðanir settar? Ég veit ekki, hvort þær kæmu til með að gilda viðvíkjandi bílum, en ég veit, að það gildir um heilmikið af nauðsynlegum vörum. Hvað þýðir það? Hvað þýðir það að vera að borga þetta mikið fyrir fram, um leið og menn panta vöruna? Það þýðir, að annaðhvort verða menn að vera ríkir, að eiga mikið fé, eða þá að menn verða að hafa aðstöðu til þess að fá lán. Hvað þýðir það hins vegar? Það þýðir, að með þessu eru sköpuð einkaréttindi, sumpart fyrir þá ríkustu, sumpart fyrir þá, sem hafa bezta aðstöðu til þess að fá lán. M. ö. o.: Það eru máske einkaréttindi — í sambandi við innflutning — á leyfum, sem stjórnarflokkarnir hafa sérstök tök á eða umráð yfir, en svo er þarna verið að skapa einkaréttindi — og það virðist vera í vaxandi mæli — fyrir þá, sem ríkastir eru, eða fyrir þá, sem bezta lánsaðstöðu hafa hjá bönkunum. Það þýðir líka misrétti. Það þýðir ekki frelsi. Það er ekki frelsi, ekki heldur verzlunarfrelsi, að skipuleggja það að brjóta niður alla þá smáu eða gera samtökum þeirra, sem eru fátækir, erfitt fyrir, en gefa einkaréttindi þeim, sem eru ríkir, og þeim, sem hafa mikið auðmagn, eða þeim, sem hafa sérstaka möguleika til þess að fá lán. Þetta vil ég biðja menn að athuga. Það er farið að misnota það mikið hugtökin í þessu sambandi.

Ég vildi út af því, sem fram var komið í umr. um þetta seinast, láta þessar hugleiðingar koma fram. Það er sjálfsagt með allt, sem horfir í einhverja frelsisátt, að athuga það vel og gaumgæfilega, hvort eitthvað sé hægt að gera almennilegt úr því. En það er bezt að gera sér um leið ljóst, hve takmarkað er meira að segja það frelsi, sem stjórnarflokkarnir vilja veita okkur, þá sjaldan sem þeir koma sér ekki saman um að svipta okkur frelsinu.