10.05.1955
Sameinað þing: 58. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 509 í D-deild Alþingistíðinda. (2811)

76. mál, frjáls innflutningur bifreiða

Frsm. (Bernharð Stefánsson):

Herra forseti. Eins og menn muna, var þetta mál rætt mikið við fyrri hluta umr. snemma í vetur, og þó að menn greindi þá á um ýmislegt, virtust allir á einu máli um það að gefa innflutning bifreiða að meira eða minna leyti frjálsan.

Við þessar umr. kom ýmislegt fram, sem ég skal ekki rekja. Þar á meðal var það, að sumir hv. þm. beindu því til þeirrar nefndar, sem málið færi til, að rannsaka ýmislegt, sem þeir óskuðu upplýsinga um. Það hefur nú lítið orðið um það hjá nefndinni að rannsaka þessi atriði, sem þá var óskað eftir, enda var sumt af því þannig vaxið, að til þess hefði þurft að skipa sérstaka þingnefnd í deild samkvæmt — að því er ég ætla — 39. gr. stjórnarskrárinnar. En eitt af því, sem hv. þm. Barð. minntist þá á, hefði ég getað upplýst þá þegar að nokkru, ef ég hefði tekið til máls.

Hann vildi halda því fram, að einn sérstakur bílainnflytjandi mundi fá upplýsingar hjá innflutningsskrifstofunni um, hverjir fengju leyfi, og það yrði honum til hagsmuna, því að með því gæti hann tryggt sér viðskipti. Ég sótti sjálfur um bíl í haust eða seint í sumar. Ég átti ekki von á að fá leyfi fyrir honum frekar en áður; ég hef oftar sótt um slíkt. En svo var það hér í vetur, um það leyti sem þessi till. var til umr., að ég fór að fá einkennileg bréf. Þau voru frá bílaumboðum, og í þessum bréfum voru verðlistar og annað slíkt. Þá fór mig að gruna, að ég mundi fá innflutningsleyfi. Þessi bréf voru ekki frá einum innflytjanda, heldur fleiri. Ég festi kaup á bíl hjá einum þessum innflytjanda, og það var ekki sá innflytjandi, sem hv. þm. Barð. sjálfsagt fyrir fram hefði búizt við að ég verzlaði við, og þykist ég þó vera góður samvinnumaður.

Eftir hinar miklu umr. var svo till. þeirri, sem hér liggur fyrir á þskj. 101, vísað til allshn. Sþ. Nefndin tók till. fljótlega til meðferðar og ræddi hana á nokkrum fundum. Fyrir jólin ákvað hún að senda till. gjaldeyrisbönkunum, þ. e. Landsbankanum og Útvegsbankanum, til umsagnar. Útvegsbankinn hefur enga umsögn sent, en Landsbankinn svaraði með bréfi 11. marz, og mælir hann þar frekar á móti og eiginlega alveg á móti samþykkt þessarar till. af gjaldeyrisástæðum og tekur alveg sérstaklega fram, að hann mælir á móti brtt. frá hv. þm. V-Húnv. á þskj. 139. Ég hefði nú lesið hér upp bréfið, ef meiri tími hefði verið fyrir höndum.

Þrátt fyrir það að allshn. metur að sjálfsögðu álit Landsbankans mikils, er þó jafnframt á það að líta, að almennur áhugi virðist vera fyrir því, að innflutningur bifreiða verði gefinn frjáls, og þá ekki síður á hitt, að stuðningur ríkisins við togaraútgerðina samkvæmt lögum nr. 114/1954 byggist á innflutningi fólksflutningabifreiða. Yrði lítið úr stuðningi við togaraútgerðina á þennan hátt, ef innflutningur þeirra bifreiða, sem togaraskatturinn er lagður á. væri takmarkaður. Virtist nefndinni því rétt að leyfa frjálsan innflutning þeirra bifreiða og mælir því með till. að því leyti. Hins vegar er það vafalaust, að ef innflutningur allra bifreiða yrði gefinn frjáls, þá mundu menn forðast að flytja inn þær bifreiðar, sem hinn hái togaraskattur er á lagður, og bjargast í staðinn við aðrar bifreiðategundir, sem hægt er að breyta í sæmilegar fólksflutningabifreiðar, eins og t. d. jeppa, en þá er hægt að gera að hinum sæmilegustu farartækjum. Með því móti mundi án efa draga mjög úr þeim skatti, sem togaraútgerðinni er ætlaður til stuðnings. Af þessum ástæðum gat nefndin ekki mælt með till. óbreyttri, þó að hún eða a. m. k. sumir nefndarmenn, þar á meðal ég, hefðu helzt viljað það, heldur leggur hún til í nál. sínu á þskj. 486, að hinn frjálsi innflutningur nái aðeins til þeirra bifreiða, sem togaraskatturinn er lagður á.

Síðan nefndin afgreiddi málið, hefur verið lögð fram brtt. á þskj. 505, þannig, að við till. bætist:

„Jafnframt sé veittur frjáls innflutningur á vörubifreiðum, sem eru 3 tonn og þar yfir að burðarmagni. Enn fremur á jeppabifreiðum til landbúnaðarins handa þeim bændum, sem hafa ekki fengið leyfi til kaupa á jeppum næstliðin 7 ár. Það skilyrði sé sett, að ef jeppabifreið er seld eða látin af hendi á einhvern hátt til annarra en bænda á næstu 7 árum eftir að hún var innflutt, skuli greiða gjald af bifreiðinni samkvæmt lögum nr. 114 1954.“

Nefndin hefur rætt þessa brtt. á tveimur fundum. Vill meiri hl. nefndarinnar mæla með efni till., en þó bæta í hana frekari varúðarráðstöfunum en þar eru gegn því, að frjáls innflutningur á landbúnaðarjeppum verði misnotaður með því, að bændur kaupi jeppa að forminu til, en láni þá svo til afnota í kaupstöðum eða kauptúnum. Leggur meiri hl. n. því til að umorða till., og er þar bætt við því skilyrði fyrir frjálsum innflutningi landbúnaðarjeppa, að þeir verði hvorki leigðir né lánaðir til afnota í kaupstöðum eða kauptúnum. Í þeim meiri hl. nefndarinnar, sem vill samþykkja till. þannig breytta eða umorðaða samkvæmt þskj. 525, eru auk mín hv. þm. V-Ísf., hv. 2. þm. Skagf., þ. e. aðalþingmaðurinn Jón Sigurðsson, sem þá var hér á þingi og átti sæti í nefndinni, og hv. þm. Snæf.

Þessi till. eins og meiri hl. n. vill ganga frá henni, kemur ekki í bága við álit nefndarinnar á þskj. 486, því að vörubifreiðum yfir 3 tonn er ekki hægt að breyta í venjulegar fólksflutningabifreiðar, og frjáls innflutningur landbúnaðarjeppa með þeim takmörkunum og ströngu skilyrðum, sem till. kveður á um eftir till. nefndarinnar, mundi ekki verða til þess að draga úr innflutningi venjulegra fólksflutningabifreiða, sem togaraskattur er greiddur af, því að bændur kaupa lítið sem ekkert slíkar bifreiðar. Hitt segir sig svo sjálft, að verði þessi till. samþ. og framkvæmd, þá þarf ríkisstj. að setja nánari reglur um þennan innflutning. Það þarf t. d. að setja reglur um það, að bændur, sem flytja inn jeppa, verði að sanna, að þeir hafi ekki fengið leyfi til kaupa á jeppum næstliðin 7 ár. Ákveða verður og, fyrir hverjum eigi að sanna þetta og um eftirlit með þessum málum. Ekki sá nefndin þó ástæðu til að gera till. um þessi framkvæmdaratriði, heldur álítur, að það sé ríkisstjórnarinnar að setja reglur um þetta.

Um aðrar brtt., sem fluttar hafa verið við þessa till., — ég hef nú ekki aðrar hjá mér og eru kannske ekki aðrar en brtt. á þskj. 172 frá Bergi Sigurbjörnssyni og Gylfa Þ. Gíslasyni um, að við till. bætist, að veittur verði frjáls innflutningur á byggingarefni og ýmsum öðrum nauðsynjum, — er það að segja, að nefndin áleit þetta mál svo óskylt því, sem hún var að fjalla um, sem eingöngu var um innflutning bifreiða, að hún telur, að ekki eigi að blanda því máli hér saman við, og mælir alls ekki með þeirri till. og ekki heldur með till. á þskj. 139 frá hv. þm. V-Húnv.

Allshn. afgreiddi þetta mál í byrjun verkfallsins, en þó verð ég að játa það, að hún hafði verkfallið ekkert í huga í sambandi við þetta mál. En auðvitað er það, að þær verðbreytingar, sem verða vegna verkfallsins, og það tap á gjaldeyri, sem af verkfallinu leiddi, getur leitt til þess, að hæstv. ríkisstj. sjái sér ekki fært að framkvæma slíka till., þótt samþ. yrði hér, jafnrækilega og verið hefði á þeim tíma, þegar nefndin afgreiddi málið.