20.10.1954
Sameinað þing: 4. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 535 í D-deild Alþingistíðinda. (2825)

22. mál, rányrkja á fiskimiðum fyrir Vestfjörðum

Flm. (Sigurður Bjarnason):

Herra forseti. Ég skal ekki lengja þessar umr. Ég vil aðeins þakka hv. þm., sem hér hafa talað, fyrir mjög góðar undirtektir undir mitt mál og þá till., sem hér liggur fyrir. Ég vil sérstaklega taka undir það, sem hv. þm. Ak. (JR) sagði nú, er hann talaði síðast, að það verður að gera kröfu til þess, að nokkur hluti þess greiðsluafgangs, sem verður hjá ríkinu á þessu ári, verði notaður til þess að koma í veg fyrir, að til hruns og vandræða komi í ýmsum þróttmiklum framleiðslubyggðarlögum úti um land.

Það kom fram smávægilegur misskilningur hjá tveimur hv. þm., sem hér töluðu, hv. 3. landsk. þm. (HV) og hv. 2. þm. Reykv. (EOl). Þeir töldu, að ég hefði flutt þetta mál sem nokkurs konar andstæðu við frekari friðunaraðgerðir fiskimiða fyrir Vestfjörðum. Þetta er ekki rétt. Því fer víðs fjarri, að ég sé slíkum ráðstöfunum mótfallinn. Ég tel þvert á móti, að stefna beri að því, eins og gert hefur verið, að landgrunnið allt, ekki aðeins fyrir Vestfjörðum, heldur umhverfis allt landið, verði friðað og að ýtrustu tilraunir verði gerðar til þess að mæta vanda Vestfirðinga nú með frekari útfærslu fiskveiðitakmarkanna. En ég hef aðeins lýst því yfir, að ég óttast, að sú viðleitni beri ekki nægilega skjótan árangur til þess að snúizt verði við vanda þessa landshluta nú. Ég sagði, að sú óbilgjarna klöpp, sem þær ráðstafanir, sem við þegar höfum gert, hafa lent á, bendi til þess, að þungt yrði undir fæti um enn frekari ráðstafanir í bili. En þetta þýðir að sjálfsögðu ekki það, að þessi till. sé flutt í einhverri andstöðu við viðleitni til þess að færa fiskveiðitakmörkin frekar út fyrir Vestfjörðum. Við flm. þessarar till. reynum aðeins að líta raunsætt á málin. Við flytjum till. um ráðstafanir, sem við teljum að hægt sé að gera nú þegar og geti borið árangur svo að segja strax. Þess vegna er það, sem við viljum mæta hinum aukna ágangi innlendra og erlendra togara á fiskimið vélbátaflota Vestfirðinga með því að fá Vestfirðingum sjálfum hliðstæð tæki í hendurnar, til þess að þeir geti sótt björg í bú eins og aðrir á sín eigin mið á stórum og fullkomnum skipum og unnið afla þeirra í þróttmiklum fiskiðjufyrirtækjum í landi.

Þetta er kjarni þessarar till., en eins og að líkum lætur alls ekki hitt, að flm. hennar vilji ekki freista þess, að allt sé gert, sem unnt er, til þess raunverulega að friða mið vestfirzka vélbátaflotans.

Ég skal ekki fara að ræða við hv. 3. landsk. þm. um öll þau ágætu mál, sem hann kvaðst hafa flutt hér á undanförnum árum. Í hans munni hlýtur það að vera hól um okkar till., þegar hann segir, að hún sé að „efni, anda og formi“ sniðin eftir sínum viturlegu og framsýnu till. á liðnum árum. Ég segi: Þarf þá nokkuð frekar vitnanna við um þessa till. að hans áliti, fyrst hún er þannig að efni, anda og formi? En annars álít ég, að við, sem þekkjum, hvar skórinn kreppir að í þessum efnum, eigum ekki að vera að deila um formsatriði í þessu sambandi. Við eigum að reyna að fara þær leiðir, sem líklegastar eru til þess að leysa vandræði þess fólks, sem við erum fulltrúar fyrir. Þess vegna álít ég það ekki tímabært, að ég og hv. 3. landsk. förum hér inn á kappræður um ríkisútgerð togara eða ekki ríkisútgerð togara. Við þurfum að fá stærri og betri skip til þess að gera út á Vestfjörðum, og þá leysist vandinn. Það er nógur tími til þess að deila um það, hvert formið á að vera á útgerð þeirra. Ég get aðeins sagt það sem mína skoðun, að ég álít síður en svo, að það sé nokkur fjarstæða að ræða um ríkisútgerð togara, og ég álít, að þó að horfið væri að slíkum rekstri, þá þýddi það ekki neina allsherjar þjóðnýtingu í þessu landi.

Ég álít hins vegar, að hitt formið sé skynsamlegra, að einkaframtakið og einstök byggðarlög leysi atvinnuvandamálin saman með þeim stuðningi, sem nauðsynlegur er af hálfu ríkisins. Ég álít, að þar sé ekki um að ræða annað en nauðsynlega og eðlilega tilfærslu á fjármagni, og það er það, sem raunverulega hefur þegar verið gert með aðstoð ríkisins við togarakaup í fjölmörgum kaupstöðum og kauptúnum landsins.

Ég vil svo endurtaka þá ósk mína, að þessu máli verði vel tekið, till. fái skjóta afgreiðslu og komist sem allra fyrst í framkvæmd.