20.10.1954
Sameinað þing: 4. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 536 í D-deild Alþingistíðinda. (2826)
22. mál, rányrkja á fiskimiðum fyrir Vestfjörðum
Jón Pálmason:
Herra forseti. Þetta er nú fyrri umr. um þessa till. og vafalaust fer hún til athugunar í n., eins og venjulegt er. En þrátt fyrir það þykir mér ástæða til að segja nú þegar nokkur orð, aðallega til athugunar fyrir þá þingnefnd, sem fær þessa till. til meðferðar.
Ég vil byrja á því að þakka hv. flm. fyrir það að hafa hreyft þessu vandamáli, því að vissulega er hér um stórkostlegt vandamál að ræða. En ég vil ítreka það, sem hér hefur verið nokkuð vikið að af öðrum hv. þm., að það eru ekki einasta Vestfirðir, sem eiga þarna hlut að máli, heldur líka Norðurland og þá fyrst og fremst Húnaflóahéruðin. Það eru nú orðin 4 ár, síðan landhelgislínan var ákveðin og færð út fyrir Norðurlandi, rúmlega 4 ár, og það ber öllum sjómönnum þar, a. m. k. í Húnaflóahéruðunum, saman um það, að það séu óeðlilega lítil áhrif, sem þetta hefur haft, eftir því sem enn er komið, og ég hygg, að það sé alveg rétt, sem fram er tekið í grg. þessarar till., að það sé vegna þess, að það sé beinlínis setið fyrir fiskigöngunum fyrir Vestfjörðum, og það gildir náttúrlega nákvæmlega sama um Húnaflóa, að það sé setið fyrir þeim af togaraflotanum.
Ég skal geta þess, að það er nú og var strax raunar allmikil óánægja meðal sjómanna og útvegsmanna í Húnavatns- og Strandasýslu yfir því, að þessi nýja landhelgislína liggur inn með Ströndunum í stað þess að vera tekin af Horni og bara miðuð við Horn og Skaga.
Nú skal ég segja það, að eins og allir hv. þm. sjálfsagt hafa heyrt, hef ég fengið upplýsingar um það, að fiskveiðafloti Breta hér við land hafi veitt s.l. ár 67% meira en næsta ár áður en landhelgislínan var færð út. Þetta er náttúrlega mjög glæsilegur og góður árangur, ef þetta væri allt því að þakka, að landhelgin hefði verið aukin. En ég fyrir mitt leyti er ekki svo bjartsýnn, að ég trúi því, að öll þessi veiði hafi verið veidd utan hinnar nýju landhelgi, því að bæði er nú það, að við vitum, að fyrr og síðar hefur Ísland ekki haft færi á því að hafa svo sterka landhelgisgæzlu, að hún dugi að fullu, og svo vitum við það, að eftir framkomu Bretanna er áreiðanlega víst, að þeir hafa enn meiri viðleitni sýnt — og þá sennilega ekki sízt fyrir Vestfjörðum og Norðurlandi — til þess að fara inn fyrir hin nýju takmörk, þegar ekki eru varðbátar á leiðinni. Þess vegna er það ekki sízt ástæða til, að sú n., sem hér er gert ráð fyrir að skipa, og þá ríkisstj. líka leggi meiri áherzlu á það en enn hefur verið, að landhelgisgæzlan á þessu sviði sé sem allra öruggust. Að öðru leyti skal ég nú ekki fjölyrða um þetta og ekki fara að tala um aukna togaraútgerð og slíkt, en hitt er vitaður hlutur, að í þeim kauptúnum og sjávarþorpum, sem eru fyrir Vestur- og Norðurlandi, er vandinn það mikill fyrir hendi, að það er þörf á því fyrir Alþ. að grípa þar fast í taumana.
Og svo vil ég að lokum gera eina sérstaka aths. við þessa till. og biðja hv. n. að taka hana til greina, og það er fyrst og fremst niðurlag till., því að þar segir, að n. skuli hafa skilað áliti til ríkisstj. fyrir 1. marz 1955. Ég mundi vilja leggja áherzlu á, að þessi n., verði hún skipuð, skili áliti svo fljótt, að þetta mál geti orðið tekið til meðferðar á þessu þingi og þær till., sem sú væntanlega n. kann að koma með. Það vitum við nú náttúrlega ekkert um, hvað þing stendur lengi. Það eru sumir, sem orða það, að því verði lokið fyrir jól, en ég er nú ekkert mjög trúaður á það. En ég álít, að þetta verði að færa fram a. m. k. það, að þessi n. hafi skilað áliti fyrir áramót.
Að öðru leyti skal ég svo ekki fjölyrða um þetta mál á þessu stigi.