27.10.1954
Sameinað þing: 7. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 559 í D-deild Alþingistíðinda. (2852)

62. mál, jöfnun raforkuverðs

Haraldur Guðmundsson:

Herra forseti. Mér finnst varla hægt að láta þessa till. fara umræðulaust til athugunar hjá n. Hér er um mjög stórt mál að ræða og að ýmsu leyti, að minni hyggju, varhugavert í þeim búningi, sem það er klætt í í þessari till.

Samkv. till. er ætlazt til þess, að Alþingi feli ríkisstj. að undirbúa ráðstafanir til þess, að raforka til almenningsnota frá rafveitum í opinberri eigu verði seld á sama verði um land allt. Nú er ekki neitt á það minnzt í till. eða grg., með hverjum hætti slíkt jafnaðarverð skyldi fundið og framkvæmt, hvort það yrði gert með þeim hætti, að þeir staðir, þar sem rafmagnið raunverulega kostar meira, fengju mismuninn greiddan af opinberu fé til þess að halda verðinu því sama og á öðrum stöðum, eða hvort til þess er ætlazt, að fjölbýlið beri kostnaðinn eða hallann af lágu rafmagnsverði í strjálbýlinu, þar sem framleiðslukostnaður á einingu hlýtur að verða miklu hærri. Hvor af þessum tveimur leiðum sem farin er virðist mér krefjast mjög mikillar athugunar, áður en nokkuð er ákveðið í þessum efnum.

Það er augljóst mál, að ef hið opinbera, hvort sem það eru ríkisveiturnar eða annað, ætti að bera hallann af því að selja rafmagnið mjög undir kostnaðarverði í strjálbýlinu, þá mundi það leiða til þess, að minna fé væri aflögu til annarra aðgerða í rafmagnsmálunum, minna fé til nýrra virkjana, minni styrkur til þess að koma veitunum á stofn, sé ekki um ótakmörkuð fjárráð að ræða, sem ég hygg að menn geri ekki ráð fyrir. Sé hins vegar gert ráð fyrir því, að tilætlun flutningsmanna sé sú, að jafnaðarverð sé fundið og ákveðið, sem miðist við það, að stærri staðirnir, þar sem fjölbýlið er meira, greiði hærra fyrir rafmagnið en það raunverulega kostar og því yrði varið til að bera hallann af veitunum í strjálbýlinu, þá er augljóst, að það hlyti að verða til þess að hækka rafmagn í fjölbýlinu, mundi draga úr notkun rafmagnsins, sérstaklega til iðnaðar og til uppbyggingar. Það mundi því einnig með þessari aðferð vera hætt við því, skilst mér, að það mundi draga úr framkvæmdum í raforkumálunum, draga úr virkjununum, draga úr byggingu stöðva og rafveitna. Ég vil því segja það, að mér finnst fyllsta ástæða til þess að gæta mikillar varúðar í lagasetningu í þessu efni, og þótti rétt, að það kæmi fram þegar nú við þessa fyrri umr. Auk þess er á það að líta, að ef Alþ. tekur upp þá stefnu, sem nokkuð hefur að vísu örlað á hér nú þegar, að jafna verð á mikilvægustu nauðsynjum um land allt, þannig að neytendum eða notendum sé tryggt sama verð án tillits til þess, hver kostnaður er við þjónustuna eða öflun vörunnar á hverjum stað, þá hlýtur það að sjálfsögðu að hafa sínar afleiðingar, því að það er engin minnsta sanngirni í því, að það séu einstök héruð eða einstakar vörutegundir eða þjónusta, sem slíkt yrði látið ná til, heldur yrði það að ná til sambærilegrar þjónustu eða vöru eða hluta á öðrum sviðum. Ég fæ ekki séð með minni beztu athugun, að stórum ríkari ástæða sé til þess að jafna verðlag á rafmagni úti um land allt, þar sem það er vitað, að það getur kostað tífalt meira á einum staðnum en á öðrum að fá rafmagnið, heldur en t. d. að jafna húsaleigu, sem er einhver mikilvægasti þátturinn í kostnaði fólksins við að lifa og getur alveg ráðið úrslitum um það, hver afkoma þess verður. — Það mætti lengra fara í þessum samanburði. Ef slíkri jöfnun á að koma á um landið allt að því er snertir einstaka framleiðslu, einstaka þjónustu eða vörutegund, þá er eðlilegt og sanngjarnt, að kröfur um sams konar jöfnun komi einnig á öðrum sviðum. Ég hef hér aðeins nefnt eitt atriði eins og húsaleiguna, sem hlýtur að blasa við hvers manns augum, ef á þetta er litið. Húsaleigan er ekki tífalt hærri í sumum stöðum en öðrum, heldur sennilega 20–30 sinnum hærri. — Það mætti fara lengra með þetta. Sá munur, sem sveitafólk, sem framleiðir sjálft vöru sína, eins og kjöt og mjólk og aðrar landbúnaðarafurðir, raunverulega geldur fyrir þetta og því er reiknað það til tekna í framleiðslunni, — munurinn á því verði og því, sem neytendur í kaupstöðum borga, er svo gífurlegur, eins og allir vita, að það ójafnar mjög lífskjör þessa fólks. Ef þetta mál er tekið upp í alvöru og sú stefna hugsuð til frambúðar að jafna verðlagið á þessari mikilvægu nauðsynjavöru eða þjónustu fyrir landsmenn, þá hlýtur óhjákvæmilega að verða tekin til athugunar jöfnun á fleiri sviðum, og það verður Alþ. að gera sér ljóst, áður en það tekur fullnaðarákvörðun um afgreiðslu þessa máls.

Þetta þótti mér rétt að láta koma fram nú þegar við þessa umr., en mun að sjálfsögðu fylgja því, að málið fái athugun í nefnd.