27.10.1954
Sameinað þing: 7. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 562 í D-deild Alþingistíðinda. (2854)
62. mál, jöfnun raforkuverðs
Haraldur Guðmundsson:
Herra forseti. Það er alls ekki ætlun mín að fara að rökræða þetta stóra mál við hv. flm. till. á þessu stigi málsins. Það gefst án efa tækifæri til þess síðar, þegar málið er lengra komið á athugunarstigið en nú er. En út af því, sem hv. þm. sagði í einstökum atriðum, verð ég þó að segja nokkur orð.
Hv. þm. benti alveg réttilega á það, að það verður ódýrara að fá rafmagnið inn í húsin í fjölbýlinu en í strjálbýlinu, og það liggur að sjálfsögðu í hlutarins eðli, að það er ódýrara að taka úr taug hér í bæjunum en að leiða langar leiðir til afskekktra bæja úti um sveitir og þess vegna verði stofnkostnaðurinn við að fá rafmagn meiri fyrir strjálbýlið á hvern íbúa eða hvert heimili heldur en hér. Þetta er rétt. En Alþingi hefur líka á mjög myndarlegan hátt reynt að létta undir í þessum efnum. Sá styrkur, sem veittur er til að leggja veitur um hinar strjálbýlli sveitir, vegur mikið í þessu sambandi. Og ég tel alveg eðlilegt og hef verið því fylgjandi, að menn séu styrktir á þennan hátt, einmitt til þess að létta þeim stofnkostnaðinn og gera þeim auðveldara að fá rafmagnið heim til sín. En það er náttúrlega reginmunur á því, sem gert er í þessu efni, eða ef á að ákveða, eins og till. fer fram á, að verðið á rafmagninu sjálfu skuli vera hið sama hvar á landinu sem er, hversu mikill tilkostnaður sem er við að koma rafmagninu þangað, m. a. af því, að í öðru tilfellinu er nokkuð fyrirsjáanlegt, hvaða fjárútlát er um að ræða, þar sem er um nýbyggingar og stofnun veitna að ræða, en í hinu tilfellinu er torvelt að reikna út, hversu mikinn bagga menn binda sér með slíkum ákvörðunum, en alveg ljóst, að hann hlýtur að fara mjög vaxandi, eftir því sem meira er leitt út í strjálbýlar sveitir á landinu.
Hv. flm. vildi gera samanburð á niðurgreiðslu rafmagnsverðs og niðurgreiðslu á framleiðsluvörum bænda. Mér finnst þetta tvennt ekki sambærilegt, og ég er alls ekki sammála hv. flm. um það, að niðurgreiðslur á landbúnaðarafurðum séu einhliða styrkur við neytendurna í landinu. Ég hygg, að þetta sé fullkominn misskilningur af hálfu hv. flm. Samkv. gildandi reglum um vísitöluuppbætur ætti kaupgjaldið í landinu að hækka af sjálfu sér, um leið og verðlagið á landbúnaðarafurðum hækkar. Ég vil ekki segja, að það vegi alveg þar á móti, en samkv. anda laganna a. m. k. ætti það nokkurn veginn af sjálfu sér að vera bætt launþegum upp í hækkuðu kaupi. Ég hygg, að það sanna í þessu sé, að ástæðan til niðurgreiðslna sé fyrst og fremst sú að reyna að spyrna gegn þeirri aukningu framleiðslukostnaðar á útflutningsvörum, sem mundi leiða af því, ef kaupgjaldið hækkaði til jafns við það, sem útsöluverðið á landbúnaðarvörum hækkaði, og jafnframt og ekki síður, og því ætti hv. flm. ekki að gleyma, til þess að auðvelda og tryggja sölu á landbúnaðarafurðum innanlands, því að það er honum vel kunnugt um, að eftirspurnin eftir slíkum vörum og kaup almennings á þeim er að verulegu leyti við það bundið, hvert verðlag er á vörunum, og þarf ég ekki að rökstyðja það nánar. Ég hygg því, að það sé mjög rangt að telja niðurgreiðslu á verðlagi landbúnaðarafurða einhliða styrk til launþega og neytenda í landinu; því fer að minni hyggju víðs fjarri, að svo sé.
Hv. flm. viðurkenndi, sem mér þótti vænt um, að að nokkru leyti mætti jafna saman húsaleigu og gjaldi fyrir rafmagn að því er það snertir, hver áhrif það hefði á afkomu þeirra, sem kaupa þessar nauðsynjar. Hins vegar vildi hann draga í efa, fannst mér, að svo mikið misræmi væri í húsaleigugreiðslum í landinu sem ég taldi í minni ræðu. Hann sagði, að húsaleigan væri að verulegu leyti ákveðin í hlutfalli við tekjur manna og gjaldgetu. Ég hygg, að þetta sé hinn mesti misskilningur. Mér er kunnugt um það, að margt lágtekjufólk hér í Rvík og víðar í kaupstöðum býr við hin herfilegustu kjör að því er snertir húsaleigu fyrir þær íbúðir, sem það neyðist til að nota. Það er einfaldlega, hygg ég, á flestum þessum stöðum framboð og eftirspurn, sem ræður verðinu, og eins og nú er, er eftirspurnin eftir húsnæði margfalt meiri en framboðið, og það nota húseigendur sér yfirleitt.
Hv. þm. taldi, að bændum væru víða færðar til tekna framleiðsluvörur þeirra, sem þeir notuðu á eigin heimilum, með hærra verði en sambærilegar vörur, sem seldar væru. Mér kemur þetta furðulega fyrir eyru, ég verð að segja það, en skal ekki um það þræta við hann, að þessa finnist kannske einhver dæmi. En það breytir ekki því, sem er aðalatriðið í sambandi við þetta mál, sem hér er til umræðu, að þrátt fyrir þetta, þó að rétt væri það, sem hv. flm. segir, þá er þó það, sem kaupstaðabúar greiða fyrir þessar vörur, stórum hærra en það, sem framleiðendum sjálfum er reiknað það til neyzlu, eins og hann líka viðurkenndi, því að hann taldi, að það væri stórum meiri munur en æskilegt væri og jafnvel þyrfti að vera á milli útsöluverðsins á vörunum hér, sem neytendurnir greiða, og þess verðs, sem framleiðendurnir, bændurnir, fá heim fyrir afurðir sínar. Hann sagði, að það væri ekki bændanna sök, að þessi munur væri svona stór, óeðlilega stór. Ég hef aldrei sagt neitt slíkt, að það sé þeirra sök, en þá er að snúa sér að því að draga úr þessum mismun, fá hann niður í það, sem eðlilegt væri og óhjákvæmilegt að taka til þess að koma vörunum frá framleiðendum til kaupenda.
Ég skal ekki fara lengra út í að ræða þetta mál, sem hér liggur fyrir, því að til þess gefst tilefni síðar, en vildi aðeins vekja athygli á þessu í sambandi við ummæli hv. flm.