04.03.1955
Sameinað þing: 42. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 595 í D-deild Alþingistíðinda. (2927)
160. mál, læknabifreiðar
Flm. (Haraldur Guðmundsson):
Herra forseti. Í till. þessari er lagt til, að Alþ. heimili ríkisstj. að endurgreiða leyfisgjald af bifreiðum, sem innflutningsskrifstofan lýsir yfir að fluttar séu inn fyrir lækna til notkunar við störf þeirra. Þó er þetta bundið við það tímabil, sem sams konar heimildar er neytt til þess að fella niður þetta gjald af fólksbifreiðum til atvinnubílstjóra.
Bifreiðar eru læknum alveg nauðsynlegar, a. m. k. hér í Reykjavík og flestum hinum stærri stöðum, til þess að geta rækt sín störf. Á s.l. ári var lagður nýr skattur á bifreiðarnar, sem nemur 100% af fob-verði, til viðbótar 35% dýrtíðargjaldi, sem áður var á þær lagt. Þetta 35% dýrtíðargjald hefur svo ríkisstj. heimild til að endurgreiða fólksbifreiðarstjórum, sem nota bifreiðarnar í atvinnuskyni. Hér er því farið fram á, að læknarnir verði að þessu leyti látnir sitja við sama borð og atvinnubílstjórar, að þeir sleppi við 35% gjaldið, en greiði að sjálfsögðu 100% skattinn eins og aðrir, sem bílana flytja inn.
Ég skal geta þess, að læknarnir leggja mikla áherzlu á, að viðurkennd sé á þennan hátt nauðsyn þeirra til að hafa bifreið til að rækja störf sín, og það, að þessi heimild hefur ekki verið til, hefur auk annars valdið talsverðum erfiðleikum fyrir Sjúkrasamlag Reykjavíkur í sambandi við samninga um kjör læknanna og greiðslur til þeirra fyrir störf þeirra. Þeir hafa haldið því fram, að bæði bílaskatturinn og þetta 35% gjald auki þeirra kostnað við starfsemi sína og læknisvitjanir svo stórkostlega, að fyrir það þurfi þeir að fá mjög verulega hækkun á þeim greiðslum, sem samlagið hefur greitt þeim til þessa. Það er ástæðan til þess, að ég ásamt tryggingaráðsmanni, hv. þm. Ísaf. (KJJ), og ásamt hv. 2. landsk. þm. (BrB), sem er í stjórn Sjúkrasamlags Reykjavíkur, hef gerzt flm. að þessari till. Hér er ekki um neina verulega fjárhæð að ræða fyrir ríkissjóðinn. Það hæsta, sem gera mætti ráð fyrir að flutt yrði inn samkv. þessu, er eitthvað á milli tíu og tuttugu bifreiðar á ári, svo að um verulega fjárhæð getur ekki verið að ræða, en getur valdið talsverðu í samningum læknanna við sjúkrasamlögin og tryggingarnar og virðist auk þess réttlátt að viðurkenna fulla nauðsyn þeirra á að hafa bifreið til þess að geta rækt sitt starf.
Ég skal ekki hafa um þetta fleiri orð. Ég vildi gera að till. minni, að að lokinni umr. yrði till. vísað til hv. fjvn. til athugunar milli umræðna.