16.03.1955
Sameinað þing: 46. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 596 í D-deild Alþingistíðinda. (2934)
164. mál, vinnudeila
Flm. (Gils Guðmundsson):
Herra forseti. Í þáltill. þeirri, sem hér liggur fyrir, er lagt til, að ríkisstj. verði falið að skipa nefnd fimm alþm., eins frá hverjum þingflokki, til að greiða fyrir lausn kaup- og kjaradeilu þeirrar, sem nú stendur yfir.
Ekki þarf að fjölyrða um nauðsyn þess, að allt sé gert, sem hægt er, til að greiða fram úr þeim vanda, sem hér hefur að höndum borið, ef það mætti firra þjóðfélagið því tjóni, sem ævinlega hlýzt af langvarandi og víðtækri vinnustöðvun, sem kæmi til með að lama allt atvinnulíf þjóðarinnar. Það mun og flestum ljóst, að eins og nú er háttað í íslenzku þjóðfélagi, eru ekki mjög miklar líkur til þess, að núverandi kaup- og kjaradeila leysist með einhliða samningum verkalýðsfélaga og atvinnurekenda, án þess að tilhlutan hins opinbera komi til á einhvern hátt.
Það virðist því á engan hátt óeðlilegt, þótt Alþingi telji ástæðu til að fylgjast vandlega með þessu máli og telji skyldu sína að gera það, sem í þess valdi stendur, til að flýta fyrir farsælli lausn þess. Með þetta í huga var lögð fram þáltill. sú, sem hér um ræðir. Hún er fram komin fyrir fullum hálfum mánuði, og þrátt fyrir nokkurn eftirrekstur hefur orðið á því helzt til langur dráttur, að till. kæmi hér til umræðu. Ég verð að telja það miður farið, því að við það hefur glatazt tími, sem ef til vill hefði mátt nota til að greiða fram úr vandamálum í sambandi við lausn yfirstandandi kaupdeilu.
Nú hefur það gerzt í þessu máli, að fyrir tveim dögum eða svo skipaði hæstv. ríkisstj. sáttanefnd í þessari vinnudeilu. Ég hefði að vísu talið á margan hátt eðlilegra og vænlegra til árangurs, að Alþingi hefði staðið að þessari nefndarskipun, en hæstv. ríkisstj. hefur þótt annar kostur aðgengilegri. Ég veit ekki, hvað því veldur, en óneitanlega dettur manni í hug, að það kunni að hafa átt einhvern þátt í þessari ákvörðun, að hæstv. ríkisstj. hafi ekki viljað fara þá leið, sem stjórnarandstöðuflokkur hafði bent á, svo og hitt, að með sinni aðferð hefur hæstv. ríkisstj. tekizt að útiloka einn þingflokkinn, Þjóðvarnarflokkinn, frá aðild að þessari nefnd. En hvað sem þessu liður, þá er hins að vænta, að árangur af störfum hinnar stjórnskipuðu nefndar verði bæði skjótur og góður. Málið er þó enn á því stigi, að enginn veit, hvort samningar takast eða hvort verkfall verður skollið á innan tveggja daga. Þrátt fyrir nefndarskipun hæstv. ríkisstj. er það að sjálfsögðu á valdi Alþingis, hvenær sem því sýnist, að hafa afskipti af þessum málum, hvort heldur sem væri með nefndarskipun, eins og hér er lagt til, eða með setningu löggjafar um verðlagsmál, er kynni að greiða fyrir lausn þessarar kaupdeilu. Ég sé því ekki ástæðu til að draga til baka þá till., sem hér um ræðir, till. á þskj. 425 um nefndarskipun af hálfu Alþingis.
Tillagan er þess eðlis, að ég tel ekki þörf á að vísa henni til nefndar, en þar sem hæstv. forseti hefur ákveðið tvær umr. um till., get ég fallizt á, að hún verði athuguð í nefnd milli umræðna, ef það þykir eðlilegra. Vildi ég þá mjög eindregið mega vænta þess, að sú athugun tæki skamma stund, svo framarlega sem ekki takast nú hina næstu daga samningar í yfirstandandi kaupdeilu. Fari svo, að á skelli viðtækt verkfall, tel ég með öllu óverjandi, að Alþingi haldi algerlega að sér höndum og hafist ekkert að.
Að svo mæltu æski ég þess, að till. verði að lokinni þessari umræðu vísað til síðari umræðu.