10.11.1954
Sameinað þing: 13. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 658 í D-deild Alþingistíðinda. (3003)
207. mál, sparifjáruppbætur
Viðskmrh. (Ingólfur Jónsson):
Herra forseti. Mér finnst eðlilegt, að það sé vakin athygli á þeim drætti, sem orðið hefur á greiðslu uppbóta, sem gert er ráð fyrir samkv. lögum, eins og rætt var um hér áðan. En það er ástæðulaust að vera með stóryrði, um leið og upplýsinga er leitað í þessu efni, — ég kalla það stóryrði að tala um það, að ríkisstj. hlýði ekki þeim lögum, sem sett hafa verið, og að þessi dráttur sé þegar orðinn óhæfilegur. Ég hygg, að það megi færa fram skýr rök fyrir því, að þessi dráttur, enda þótt nokkuð langur tími sé liðinn, sé að mestu leyti eðlilegur, og kemur þar margt til greina.
Eins og hv. fyrirspyrjandi gat um, var stóreignaskatturinn ekki innheimtur fyrr en í árslok 1952. Áður en það hafði verið, var vitanlega ekki unnt að útbýta þessum 10 milljónum til hinna mörgu sparifjáreigenda, sem áttu kröfu á uppbót. En það varð snemma á árinu 1953, sem innköllun til sparifjáreigenda um lýsingu kröfu um uppbætur á sparifé var gefin út. Kröfulýsingarfrestur var til 25. okt. það ár. Að þeim fresti liðnum komu fram allmargar umsóknir, sem ekki höfðu borizt í tæka tíð. Varð þá að ráði, að Landsbankanum og innlánsstofnunum skyldi heimilt að taka við umsóknum til ársloka 1953. Alls bárust tæplega 12 þús. umsóknir. Við athugun innlánsstofnana reyndust rúml. 11 þús. þeirra réttar, að því er snerti innstæðufjárhæð í árslok 1941 og í lok júnímánaðar 1946. Innstæðufjárhæðir samkv. þessum rúml. 11 þús. umsóknum námu alls rúml. 28 millj. kr. Athugun á innstæðufjárhæðum í innlánsstofnunum var ekki lokið fyrr en í apríl s.l., og hygg ég, að það hafi eigi að síður verið unnið vel að því að athuga þetta.
Það var skilyrði til bóta, að innstæðufjárhæðin hefði verið talin fram til skatts. Var því skattstofunni í Reykjavík og ríkisskattanefnd falið að sannreyna þetta skilyrði. Voru umsóknir sendar þessum aðilum í maímánuði s. l. til að taka hverja umsókn og bera hana saman við framtal umsækjanda. Þar sem þetta er mikið verk, þótti ekki tiltækilegt að fara yfir framtöl manna öll árin 1942–1946, heldur voru aðeins tekin framtöl 1942 og 1946, en framtölum árin þar á milli sleppt. Ofangreindri athugun skattyfirvalda er nú nýlokið. Er nú næsta skrefið í þessu efni að bera saman innstæðufjárhæðir og framtaldar fjárhæðir. Er Landsbankinn nú að vinna að því.
Í þessu sambandi koma upp ýmis vafaatriði, sem skera þarf úr, en endanlegar prósentur bótanna er ekki unnt að reikna út, fyrr en allar umsóknir hafa verið úrskurðaðar. Telja þeir, sem að þessu vinna, að bótagreiðslur geti ekki hafizt fyrr en í byrjun næsta árs, í janúar eða febrúar.
Augljóst er, að mikið verk er að úthluta sparifjáruppbótunum. Sérstaklega hefur framtalsskilyrðið valdið miklum erfiðleikum. Ég hygg, að ef menn gera sér ljóst, hversu mikil vinna er í þessu fólgin, þá telji hv. þingmenn, að þessi dráttur sé eðlilegur. Og það er vitanlega aðalatriðið, að ríkisstj. ætlar sér að standa við það, sem segir í lögunum, að deila út áður nefndum 10 millj. kr. til sparifjáreigenda í réttu hlutfalli við innstæður þeirra, eftir að sannreynt hefur verið, að krafan er á rökum reist.