23.11.1954
Sameinað þing: 20. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 671 í D-deild Alþingistíðinda. (3029)
97. mál, rannsókn byggingarefna
Fyrirspyrjandi (Ásgeir Bjarnason):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. landbrh. fyrir þær upplýsingar, sem hann hefur hér gefið. Ég geng þess ekki dulinn, að það er margt að rannsaka í þessum efnum og þess vegna ekki þess að vænta, að það sé hægt að gefa nein fullnaðarsvör við þessu nú. En mér þykir þó vænt um að heyra, að það skuli þó vera komið þetta á veg, og vildi ég leggja á það mikla áherzlu, að hægt yrði þegar á næsta ári að flytja inn nokkur hús til sýnis og vita, hversu dýr þau kunna að vera upp komin, samanborið við þær byggingar, sem yfirleitt eru framkvæmdar hér á landi. Og svo vil ég einnig leggja áherzlu á það, að haldið verði áfram að leita tilboða og vita, hvort ekki verður hægt að fá þær húsastærðir, sem heppilegar þykja hér á landi. Það er kvartað undan því nú, að það sé vinnuaflsskortur í landinu. Þess vegna er það ekki þýðingarlítið fyrir þá, sem þurfa að koma upp byggingum, að það sé hægt að koma þeim upp án þess að þurfa að vera upp á mikinn og dýran vinnukraft kominn. Og þótt þessi hús yrðu nokkuð dýr í innflutningi, þá gætu þau í uppsetningu e. t. v. sparað stórmikla peninga og vinnuafl, og þegar flutt er til landsins erlent vinnuafl, þá sé ég ekki mikinn mismun á því að flytja inn hluti eins og t. d. hús, sem geta verulega sparað innflutning á slíku vinnuafli.