02.12.1954
Sameinað þing: 21. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 678 í D-deild Alþingistíðinda. (3042)

211. mál, jöfn laun karla og kvenna

Landbrh. (Steingrímur Steinþórsson):

Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð til að leiðrétta misskilning hjá hv. 3. landsk., sem talaði hér síðast, sem raunverulega var ekki misskilningur hjá hv. þm., heldur alger útúrsnúningur. Hv. þm. vildi bera brigður á það, sem ég sagði. að um jöfn laun karla og kvenna væri að ræða, þegar um starfsmenn ríkisins væri talað, og að því væri einmitt framfylgt, þar sem tekur til starfsmanna ríkisins. Þetta er algerlega rétt, og ég er alveg hissa á hv. þm. að vera að bera á móti þessu. Ja, hann færði það helzt fram sínu máli til sönnunar, að í efstu starfsmannaflokkum Reykjavíkurbæjar væru nú engar konur. Þetta þekki ég ekki, en auðvitað sannar þetta ekki nokkurn skapaðan hlut heldur. Konur hafa nákvæmlega jöfn laun og karlar í sama flokki og miðað við sömu ástæður, starfsmannaaldur o. fl. Þetta hlýtur hv. þm. að vita, og að vera með gaspur eins og hann var er bara rétt til að gera sig hlægilegan. Það var ekkert annað, sem ég sagði um þessi mál.

Hv. þm., sem er nú forseti Alþýðusambandsins, sagði, að þessi n. mætti gjarnan hverfa. Ég tek þessa yfirlýsingu þannig, að hann óski eftir, að fulltrúi Alþýðusambandsins í n. verði látinn hætta störfum, ef ætti að taka það bókstaflega, eins og hv. þm. orðaði þetta. En ég leit svo á sem félmrh., og mér er óhætt að segja, að ríkisstj. leit öll svo á, að það væri mjög nauðsynlegt að hafa samvinnu við þessar tvær stóru stofnanir einmitt varðandi mál eins og þessi, og það eru ýmsar fleiri ályktanir frá Alþjóðavinnumálastofnuninni. sem hafa verið til meðferðar hjá þessari n. Ég taldi, að þetta væri gert í þökk þessara stóru sambanda, en ekki í óþökk. En sé það virkilega svo, að Alþýðusambandið vilji ekki hafa fulltrúa til þess að athuga slíka hluti, þá náttúrlega geta þeir tekið sinn fulltrúa úr þessari n., hvenær sem þeim sýnist. (HV: Þurfum við ekki samþykki ríkisstjórnarinnar til?) Þurfið þið ekki? Nei. Ég vildi bara staðfesta það, sem hv. þm. hafði sagt. Hann þarf ekki að vera að byrsta sig nein ósköp út af því.

Það er í raun og veru ekkert annað, sem ég sé ástæðu til að taka hér fram varðandi þetta mál nú. Það liggur ósköp ljóst fyrir. Þessi n. var ekki bundin við það eitt að segja til um það, hvaða till. væri hægt að löggilda að óbreyttri löggjöf, þó að ég tæki ekki annað fram. Vitanlega hafði hún í valdi sínu að gera till. um breytingar á löggjöf, ef hún teldi rétt að gera það, við skulum t. d. segja breytingar á vinnumálalöggjöfinni, þannig að hægt væri að gera svona breytingar að einhverju leyti, grípa inn í það frelsi, sem ríkir hér hjá okkur á milli vinnuveitenda annars vegar og verkalýðssamtakanna hins vegar um að ákveða kaup og kjör fyrir þá, sem í þeim samtökum eru. Það hefur ekki verið beitt neinu ofríki á neinn hátt frá ríkisstj. eða félmrn. um það, að slíkar till. gætu ekki komið fram.

Það var líka útúrsnúningur hjá hv. þm., að það ætti að skilja mín ummæli þannig. að ekki kæmi til mála að löggilda þá samþykkt, sem hér er um að ræða, eða fullgilda hana, eins og það mun vera kallað, fyrr en nágrannalönd okkar væru búin að gera það. Það lá alls ekki í mínum orðum, en við höfum litið svo á, og ég lít þannig á, að einmitt samtök vinnuveitenda og verkamanna séu einna þroskuðust á ýmsan hátt sem frjáls félagsskapur í ýmsum nágrannalöndum okkar. Og þegar þeim hefur virzt, að það væru ekki ástæður til þess að grípa inn í þessu efni, eins og nú er ástatt, þá er það vissulega í mínum augum nokkur rökstuðningur fyrir því, að það geti verið dálítið svipað hér hjá okkur um þessi efni. Ég tel mig ekki svo stóran, hvað sem hv. 3. landsk. finnst um sjálfan sig, að ég geti ekki vel dregið dæmi og tekið til greina efni, sem gerast hjá nágrannaríkjum okkar, bæði hvað þessa hluti snertir og aðra.