02.12.1954
Sameinað þing: 21. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 679 í D-deild Alþingistíðinda. (3043)

211. mál, jöfn laun karla og kvenna

Gunnar Thoroddsen:

Herra forseti. Hv. 3. landsk. hefur bæði við þessar umr. og eins við umr. um till., sem við 7 þm. Sjálfstfl. fluttum á síðasta þingi um sömu laun karla og kvenna. haldið því fram, að sjálfstæðismenn hafi verið og séu mjög áhugalitlir um þetta mál og jafnvel andvígir því, og vitnar m. a. nú í ræðu sinni til þess. að misrétti ríki að verulegu leyti hjá Reykjavíkurbæ í þessu efni. Mér þykir því hlýða að minnast á þetta mál örfáum orðum.

Þess er fyrst að geta, að eftir að mér hafði verið falið fyrir nokkrum árum að undirbúa nýja löggjöf um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, þá var eitt af þeim málum, sem þar komu sérstaklega til athugunar, það, hver ákvæði skyldi setja um jafnrétti karla og kvenna. Um það atriði segir svo í grg. þeirri, sem ég samdi og fylgdi með þessu frv.. sem lagt var fyrir Alþ. í fyrra. í kaflanum um jafnrétti karla og kvenna, orðrétt:

„Í lok 3. gr. frv. eru settar tvær meginreglur um jafnrétti kvenna og karla um opinber störf: 1) Konur og karlar skulu hafa jafnan rétt til opinberra starfa.“

Áður voru í lögum frá 1911 ákvæði um, að til allra embætta hafi konur sama rétt og karlar. En með ákvæði þessa frv. er jafnréttisreglan látin ná til allra opinberra starfa. Ef ákvæði kynnu að finnast í einstökum lögum, reglugerðum eða öðrum fyrirmælum í þá átt að karlar einir eða konur einar hafi rétt til einhvers opinbers starfs eða forgangsrétt, þá falla slík ákvæði úr gildi með lögfestingu þessa frv.

„2) Konur og karlar skulu hafa rétt til sömu launa fyrir sams konar störf.“

Að lokum segir í grg. um þetta: „Meginsjónarmið við ákvörðun launa á að vera hæfileikar og þekking, en ekki kyn. Hér er því slegið föstu jafnrétti kvenna og karla um launakjör.“

Svo segir í grg., og ætla ég, að eftir að hafa farið yfir þau orð, ættu menn ekki að draga það í efa, að hér hafi verið fullur skilningur á því að tryggja þetta varðandi alla opinbera starfsmenn. Þessi ákvæði voru svo af Alþ. samþykkt óbreytt, eins og lagt var til í frv.

Í rauninni ruglar hv. 3. landsk. hér saman tveimur atriðum. Hann ruglar því saman, hvort konur og karlar eigi að hafa rétt til sömu launa fyrir sömu störf, og hinu, hvort konur sitji í störfum, sem eru í hæstu launaflokkum ríkis eða Reykjavíkurbæjar. Hann segir, að í hæstu launaflokkum hjá Reykjavíkurbæ séu engar konur. Ég vil taka það strax fram, að við höfum mörg dæmi þess, að hjá Reykjavíkurbæ eru konur í svokölluðum hæstu stöðum. Við skulum nefna til dæmis yfirkennarastörf við barnaskólana. Fyrir nokkrum árum var skipað í eitt slíkt yfirkennarastarf; það var við Melaskólann í Reykjavík. Vitanlega sóttust margir karlmenn eftir því að fá það starf, en fyrir valinu varð hjá Reykjavíkurbæ kona, kennslukona, sem síðan hefur gegnt því starfi með hinni mestu prýði. Í bæjarráði Reykjavíkur á sæti ágæt kona, og að sjálfsögðu fær hún sömu þóknun fyrir sín störf þar og karlmenn. Í fjölda starfa hjá bænum eru konur alveg til jafns við karlmenn, kennslukonur, lögregluþjónn er einn þar, við gjaldkerastörf eru konur, forstöðumaður eða forstöðukona eins af sjúkrahúsum bæjarins, og þannig mætti lengi telja. Og hvar sem konur eru í þessum störfum, hafa þær vitanlega nákvæmlega sömu laun og karlmenn hafa í svipuðum störfum eða karlmenn mundu hafa í þessum störfum, ef þeir væru settir í þau.

Ég tel því, að ummæli hv. þm. að þessu leyti í garð bæjarstjórnar Reykjavíkur séu algerlega ómakleg.

Eins og ég gat um, var flutt hér af 7 þm. Sjálfstfl. í fyrra till. til þáh um að skora á ríkisstj. að beita sér fyrir því, að samþykkt Alþjóðavinnumálastofnunarinnar um jöfn laun karla og kvenna verði staðfest að því er varðar Ísland. Nú hefur hæstv. ráðh. svarað fsp. um þetta efni og telur, að ekki sé unnt að óbreyttum lögum að gerast aðili að þessari samþykkt og auk þess muni nágrannalönd okkar ekki hafa þegar gerzt aðilar að henni.

Ég er þeirrar skoðunar, að að því beri að vinna, að Ísland gerist aðili að þessu, og að því leyti sem þarf til þess lagabreytingar, þá beri að fá þær samþykktar. Ég hef í rauninni ekki fleiri orðum við þetta að bæta. Hins vegar vil ég taka það fram, að um það kunna að vísu að vera skiptar skoðanir, hvort löggjafinn eigi að grípa inn í samningsfrelsi vinnuveitenda og verkalýðssamtakanna á þennan hátt. Með staðfestingu þessarar alþjóðasamþykktar væri að vísu gert nokkuð í þá átt, og hér höfum við endurteknar yfirlýsingar forseta Alþýðusambandsins um það, að það sé hans stefna og þá væntanlega stjórnar Alþýðusambandsins, að rétt sé, að löggjafarvaldið skerist að þessu leyti í leikinn, en þetta sé ekki lagt á vald aðilanna eftir meginreglunum um samningsfrelsi. — En sem sagt, ég vil taka það skýrt fram, að strax í frv. um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna, sem samið var fyrir nokkrum árum, var alveg skýrt fram tekið, að vinna bæri að þessum tveimur meginatriðum um jafnréttið: jafnrétti til allra opinberra starfa og jafnrétti um laun. Og þetta var lögfest á s.l. þingi. Í öðru lagi, út af þessum ummælum um Reykjavikurbæ, að þar ríkir hið fyllsta jafnrétti og til kvenna er tekið fullkomlega tillit, þegar skipa skal í opinber störf.

Að lokum vil ég undirstrika þetta: Í framhaldi af samþykkt Alþ. frá því í fyrra tel ég rétt og sjálfsagt, að unnið sé að því að undirbúa þátttöku okkar í þessari alþjóðasamþykkt og þá með nauðsynlegum lagabreytingum, ef þörf krefur.