23.11.1954
Sameinað þing: 20. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 686 í D-deild Alþingistíðinda. (3050)
212. mál, áburðarverksmiðjan
Landbrh. (Steingrímur Steinþórsson):
Herra forseti. Ég mun svara hér, eftir því sem ég get, þessum fyrirspurnum hv. 8. landsk. En eins og ég tók fram um hina fyrri fsp. varðandi áburðarverksmiðjuna, falla nokkrir af liðum fsp. saman, svo að ástæðulaust er að taka þá til meðferðar, og er svo um 1. lið fsp. hv. 8. landsk.
2. liður fsp. er þannig: Eru líkur á því, að hann (þ. e. áburðurinn) seljist á innlendum markaði á næsta ári? Þessu má svara þannig: Ef miðað er við notkun köfnunarefnis á s.l. ári og þótt engin aukning verði á næsta ári hliðstæð þeirri aukningu, sem orðið hefur árlega undanfarin ár, — 1952—53 var t. d. köfnunarefnisnotkunaraukningin um 3000 tonn og 1953–54 um 2400 tonn, miðað við þennan köfnunarefnisáburð hreinan, sem á íslenzku heitir Kjarni, — ættu 2/3 hlutar framleiðslunnar eða rúmlega það að seljast á innanlandsmarkaði, 12–13 þús. tonn. Ef hliðstæð aukning verður, ætti salan að nema nokkru meira.
Þá er 3. liðurinn: Hefur fengizt markaður fyrir áburðinn erlendis? Síðari hluti árs er jafnan sá tími, sem verst gegnir um sölu áburðar, sem er frekar ýmsum öðrum vörutegundum einmitt háður árstíðum, eins og gefur að skilja. En áhuga verður mjög víða vart, og standa nú yfir athuganir um ýmsa markaði, sem eru taldir mjög líklegir. Annað er ekki hægt að segja um þetta að svo vöxnu máli.
Þá er það 4. liðurinn, þar sem spurt er: Er víða framleiddur sams konar áburður með tilliti til kornastærðar og hér er gert? Eitt af stærstu orkuverum Bandaríkjastjórnar hafði um margra ára skeið framleitt sömu tegund og gerð áburðar og hér er framleidd. Kornastærðin hér hefur þó verið minni en æskilegt hefur þátt, miðað við kornastærð áður innflutts áburðar sömu tegundar. En þó hefur miðað verulega í betri átt síðustu vikur, og hefur kornastærðin vaxið. Þessi gerð, þ. e. krystallagerðin, sem svo er nefnd, hefur verið valin meðal annars af því, að krystallaáburður er talinn öruggari í meðferð en aðrar gerðir, svo sem kúlur eða flögur sams konar köfnunarefnisáburðar, sem sums staðar er framleiddur. En vegna þess umtals, sem orðið hefur meðal almennings um of litla kornastærð áburðarins, skal á það bent, að annar mælikvarði en venja um þetta efni, grundvölluð á stærð áður innfluttra tegunda, virðist varla fyrir hendi hér hjá okkur. Skoðanir virðast skiptar um, hvort smá kornastærð sé betri eða verri, og mun það allt eftir því, hver fer með það og við hvað er miðað. Í almennu umtali hefur því verið haldið fram, þó að í fsp. sé ekki á það minnzt, að áburðurinn hafi hlaupið í kökk. Rétt er að skýra frá því hér og viðurkenna staðreyndir, sem eru þær, að í upphafi rekstrar verksmiðjunnar, sem þá var skipuð fullkomlega óreyndum og óþjálfuðum mönnum að undanskildum fáum verkfræðingum til leiðsögu og kennslu, kom það nokkuð fyrir, að kekkja yrði vart í áburðinum. Var þetta af þeim orsökum, að smám saman þurfti að stilla tæki til að ná réttu rakastigi, að læra þurfti meðferð leirhúðunartækja og fá reynslu um nauðsynlegt leirmagn, er héldi áburðinum frá því að kekkjast. Þegar í ljós kom, að kekkir mynduðust í geymslu, voru gerðar aðrar ráðstafanir, sem hafa svo haft þau áhrif, að áburðurinn hefur ekki hlaupið í kekki umfram það, sem almennt gengur og gerist í þeim áburði, sem inn hefur verið fluttur. Sá áburður, sem upprunalega var framleiddur með minna úðunarefni en siðar var farið að nota, nemur 2000 tonnum og var framleiddur fyrir miðjan júlí s.l. Nýlega var þessi áburður fluttur milli geymslna, og þá voru þeir sekkir teknir frá til endurvinnslu, sem innihéldu mikla eða harða kekki. Magn það, sem þannig var tekið frá, nam aðeins 3–4% af þessum 2000 tonnum, sem talin voru of fín, en kekkirnir voru ekki harðari en svo, að þeir molnuðu undir berum höndum manna. Sýnishorn, tekin úr öðrum geymslum, sýndu hins vegar, eins og áður er sagt, að ekki var um óeðlilega kekkjun að ræða.
Þetta er það, sem ég vildi leyfa mér að taka fram varðandi það umtal, sem fram hefur komið um, að áburðurinn væri slæmur til að dreifa honum, og hér mun vera skýrt svo nákvæmlega frá þessu sem mögulegt er. Eins og fram kemur hér, virðast allar vonir til þess standa, að nú þegar sé búið að yfirvinna þá örðugleika, sem vart var í þessu efni.
Ég leyfi mér þá að snúa mér að 5. liðnum, sem er þannig: Eru allar vélar áburðarverksmiðjunnar framleiddar af þekktum fyrirtækjum, sem langa reynslu hafa í framleiðslu slíkra tækja. Um það vil ég þetta segja: Allar vélar og tæki eru ný og framleidd af þekktum fyrirtækjum í samræmi við verkfræðilegar skilgreiningar um bæði efni og gerð. Eftirlit á þessu sviði var í höndum hins ameríska verkfræðifyrirtækis, er sá um hina tæknilegu hlið verksmiðjunnar. Um þetta verkfræðifyrirtæki, ásamt dr. Charles Owen Brown, sem annazt hefur byggingu 28 áburðarverksmiðja og verið hefur ráðunautur áburðarverksmiðjunnar, er annars það að segja, að það hefur verið valið ásamt tveim öðrum úr hópi 300 slíkra fyrirtækja til þess að sjá um og skipuleggja 40 millj. dollara framkvæmdir fyrir kjarnorkuráð Bandaríkjastjórnarinnar. Slíkt fyrirtæki verður að teljast vel þekkt að þessu leyti.
Í 6. lið er spurt: Hafa komið fram gallar á vélum eða tækjum verksmiðjunnar og þá hverjir? Því hef ég svarað áður.
En svo verð ég að biðja hið háa Alþ. mjög afsökunar á því, að svo slysalega hefur til tekizt í rn., þegar þessar fsp. voru sendar til stjórnar áburðarverksmiðjunnar, að þess hefur ekki verið gætt að taka upp — þetta var tekið upp í bréf — nema þær, sem voru á þessari síðu blaðsins. Það eru tveir liðir á baki, sem hafa fallið niður úr bréfinu, og hefur því ekki komið svar við þeim í mínar hendur fyrr en um hádegið, svo að ég var eiginlega ekki búinn að lesa það verulega yfir. En ég hef nú fengið hér, ef ég kemst fram úr því, einhverjar upplýsingar varðandi þetta.
Greitt fyrir reikninga, eftirlit, skipulag o. fl. um 10 millj. kr., eða um 8% af kostnaðarverði verksmiðjunnar. Við byggingu erlendra verksmiðja er jafnan reiknað með, að um 16% af stofnkostnaði fari í sams konar og hér er um að ræða.
Ég hefði getað haft þetta dálítið greinilegra, ef þessi mistök hefðu ekki orðið, en hef fengið þessar upplýsingar hér nú meðan ég var að lýsa hinu, enda mun mjög auðvelt fyrir hv. fyrirspyrjanda og aðra, sem hafa áhuga á því, að fá nákvæmari upplýsingar, ef þeir óska eftir, um þetta atriði beint frá skrifstofunni, því að það er áreiðanlega ekki ætlað að fela neitt þar.
Ég skal svo leyfa mér að geta þess að lokum, að mér væri það mjög kært, að menn kynntu sér rekstur áburðarverksmiðjunnar sem bezt og kæmu þangað og kynntu sér starfsháttu þar. Einkanlega álít ég nauðsynlegt, að það verði sem ljósast, að áburðurinn er nú að færast í það horf, sem fyllilega jafnast á við þann áburð, sem áður hefur verið fluttur hingað til landsins. Og ég vil leyfa mér í samráði við stj. áburðarverksmiðjunnar að bjóða alþm. í verksmiðjuna, hvenær sem hæstv. forseta þætti það henta tímans vegna, til þess að kynna sér þar allar aðstæður, og mundi þá vera mjög auðvelt að fá að sjá sýnishorn af áburði, bæði eins og hann var í fyrstu, þegar gallar þóttu á honum, og eins og hann er nú, eftir að að einhverju leyti hefur verið úr bætt. Má þá mjög auðveldlega bera það saman við erlend áburðarsýnishorn hvað þetta atriði snertir.
Ég skal svo ekki hafa þessi orð fleiri og vænti, að ég hafi nokkurn veginn, þó að nokkur mistök væru á, svarað því, sem um var spurt.