23.11.1954
Sameinað þing: 20. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 688 í D-deild Alþingistíðinda. (3051)

212. mál, áburðarverksmiðjan

Forseti (JörB):

Ég vil þakka hæstv. ráðh. fyrir hönd Alþ. fyrir boð hans. Ég veit, að hv. þingmenn munu hafa áhuga að kynna sér þetta mikla fyrirtæki, og tækifærið munu þingmenn nota sér, að koma og skoða verksmiðjuna.

Hæstv. ráðh. á vitaskuld enga sök á þeim mistökum, sem orðið hafa um tvo töluliði fsp. 8. landsk. Það má telja, að ég eigi fyrst og fremst sök á að hafa ekki gætt þess, hvernig bréfið, sem sent var, var úr garði gert. En til þess að bæta úr þessum mistökum skal ég sjá til þess, að vitneskja berist verksmiðjunni og upplýsingar fáist, og getur þá hv. fyrirspyrjandi og aðrir þm. haft aðgang að þeim hér í þinginu.