02.03.1955
Sameinað þing: 40. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 694 í D-deild Alþingistíðinda. (3067)

149. mál, Kjarvalshús

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Samkvæmt þál. þeirri frá 2. marz 1945, sem nefnd er í fyrirspurninni, skipaði menntmrn. 27. marz 1945 þriggja manna nefnd til þess að undirbúa og framkvæma byggingu á sýningarsal og íbúð handa Jóhannesi Kjarval málara. Í nefndina voru skipaðir Sigurður Guðmundsson húsameistari, Kristján Jónsson kaupmaður og Valgeir Björnsson hafnarstjóri.

Hinn 7. júní 1945 ritaði menntmrn. fjmrn. svo hljóðandi bréf:

„Menntmrn., Reykjavík, 7. júní 1945. Hinn 13. marz 1945 sendi Alþ. þessu ráðuneyti svofellda ályktun um listasafn, er samþ. hafði verið í þinginu 2. sama mánaðar.

„Alþingi ályktar að heimila ríkisstj. að verja allt að 300 þús. kr. af tekjuafgangi ársins 1944 til að reisa í Reykjavík sýningarsal og íbúð. Skal ríkisstj. á 60 ára afmæli Jóhannesar Kjarvals næsta haust bjóða honum að búa og starfa í þessu húsi og gera jafnframt ráðstafanir til þess, að þar verði komið upp til varðveizlu og sýnis sem fullkomnustu safni af málverkum eftir þennan listamann.“

Samkvæmt þessu skipaði ráðuneytið hinn 27. marz s.l. þriggja manna nefnd til að hrinda verkinu í framkvæmd.

Nú mun fjmrn. hins vegar hafa falið húsameistara ríkisins framkvæmd byggingarinnar, og hefur því nefnd sú, er þetta ráðuneyti skipaði, sagt af sér störfum. Verður að líta svo á, að fjmrn. hafi tekizt á hendur framkvæmd þál., og mun þetta ráðuneyti eigi hafa frekari afskipti af málinu.“

Þetta er það eina, sem sést um afskipti menntmrn. af þessu máli, og hefur það því farið úr þess höndum nú fyrir nærri 10 árum.

Samkvæmt upplýsingum ríkisbókhaldsins hefur ekkert fé verið greitt úr ríkissjóði í þessu sambandi. Hins vegar voru lagðar til hliðar og geymdar þær 300 þús. kr., sem þál. heimilaði.

Skrifstofa húsameistara ríkisins segir, að lauslegir uppdrættir hafi á sínum tíma verið gerðir af húsinu, og skilst mér, sannast sagt, — annars mun hæstv. fjmrh. gera nánari grein fyrir viðhorfi fjmrn. til þessa máls, — að málið hafi strandað á þessum ágreiningi ráðuneytanna um það, hver ætti um það að fjalla, en það er sjálfsagt, að það verði tekið upp til nýrrar athugunar, hver greiðfærasta leið sé til framkvæmda í þessum efnum. En þá er auðvitað ljóst, að þær 300 þús. kr., sem lagðar voru til hliðar fyrir meira en 10 árum, hrökkva hvergi nærri til neinna verulegra framkvæmda í þessum efnum.