30.03.1955
Sameinað þing: 49. fundur, 74. löggjafarþing.
Sjá dálk 732 í D-deild Alþingistíðinda. (3115)
217. mál, Marshalllán eða framlag
Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):
Herra forseti. Hv. þm. Vestm., sem var fjmrh. þegar nokkuð af þeim lánum var veitt, sem hér hefur verið talað um, er nú staddur erlendis í erindum þess félagsskapar. sem hann veitir forstöðu, en hann óskaði að koma hér fram grg. nokkurri um þetta mál og bað mig um að lesa hana hér upp, og geri ég það orðrétt eins og hann samdi hana:
„Þetta lán, sem um ræðir í fsp. á þskj. 467, var tekið til þess m. a. að efla síldarvinnslu landsmanna. Allir vonuðu, að sams konar síldarganga kæmi aftur og verið hafði í Hvalfirði veturinn 1947–48. Öruggasta ráðið til að standa straum af vinnslu slíks magns var bygging stórra verksmiðja, einnar eða fleiri. við Faxaflóa. Það mátti heita kraftaverk, að það lánaðist veturinn 1947–48 að forða því mikla síldarmagni, er á land barst, frá eyðileggingu. og hefði ekki lánazt, ef svo hefði ekki viljað til, að í leigu landsmanna voru þá mörg óvenju stór amerísk flutningaskip, en þau og allar aðrar fleytur, sem til náðist, voru tekin í notkun til að flytja síldina í síldarverksmiðjur úti á landi til vinnslu með ærnum kostnaði. Hin mikla Faxaverksmiðja, er fyrirhuguð var sumarið 1948, virtist geta orðið öruggasta ráðið gegn því, að nokkur hætta væri á því; að Hvalfjarðarsíld, ef til kæmi, hagnýttist ekki að fullu, þótt um stórveiði væri að ræða. Var bygging Faxaverksmiðjunnar, sem Reykjavíkurbær og h/f Kveldúlfur stóðu að, stórfelld öryggisráðstöfun í þessu efni. Áhætta eigendanna af hinni stóru Faxaverksmiðju, ef síldveiði brygðist, var auðvitað frá upphafi geysilega mikil og ekki sambærileg við áhættu af rekstri hinna minni verksmiðja við Faxaflóa, sem af láninu nutu, er munu flestar eða allar hafa verið í rekstri. Aðstaða þeirra var stórbætt með lánunum, þótt ekki megnuðu þær að bjarga til vinnslu svipuðu magni og á land barst frá Hvalfirði, enda voru þær eigi byggðar með slíka hráefnisgengd fyrir augum, heldur upphaflega í öðru skyni, og hafa einnig reynzt arðbær fyrirtæki, þótt Hvalfjarðarsíldin hyrfi alveg. Svo voru lán veitt til að byggja fiskimjölsverksmiðjur úti um land, sem byggðu á annarri hráefnisöflun en síld. Þá fékk Hæringur líka lán fyrr en Faxaverksmiðjan, en álíka upphæð. Þar var enginn gengisfyrirvari orðaður, enda hafði skipið betri aðstöðu til síldaröflunar en Faxaverksmiðjan; það var ekki staðbundið eins og hún. Í öðru lagi var því ekki ætlað að reyna nýjar vinnsluaðferðir eins og með Faxaverksmiðjunni. Í þriðja lagi var hlutur opinberra aðila minni í Hæringi heldur en Faxaverksmiðjunni. Faxaverksmiðjan var miðuð við feikimikil afköst, enda stórt, nýtt fyrirtæki, sem átti að kanna nýjar leiðir í síldarvinnslu og hlaut að eiga allt undir því, að Hvalfjarðarsíldin kæmi ár eftir ár í eins miklum göngum eða meiri en var 1947, eða þá að henni bærist annað hráefni í mjög stórum stíl.
Reynslan hefur nú sannað það, hversu mikil áhætta er af byggingu slíkrar verksmiðju. Vegna þess aðstöðumunar, er að framan getur, var á það fallizt að veita Faxaverksmiðjunni hennar hluta lánsins með gengisfyrirvara. þó því aðeins, að ríkissjóður þyrfti ekki að endurgreiða útlenda lánið, m. ö. o. að lánið yrði gert óafturkræft af lánveitanda, en um það var á þessu tímabili ekkert hægt að segja, og enn liggur ekkert fyrir í þessu efni. Stjórn h/f Faxaverksmiðjunnar mun hins vegar ekki hafa talið sig geta notað þetta lánsfé án gengisfyrirvarans.
Til byggingar Faxaverksmiðjunnar, sem ætlað var hið sama hlutverk sunnanlands, er síldarverksmiðjur ríkisins hafa norðanlands, var stofnað af Reykjavíkurbæ, að því er virtist að einróma vilja allra flokka í bæjarstjórninni, og auk þess af einstöku hlutafélagi, h/f Kveldúlfi. Ekki er vitað, að neitt framlag úr ríkissjóði hafi til hennar runnið. Eini stuðningurinn, sem hér kom til greina, var sá að losa Faxaverksmiðjuna við gengishættu af umræddum lánshluta verksmiðjunnar, ef ríkið sjálft fengi féð að gjöf eða sem óafturkræfa Marshallhjálp, þ. e. a. s., að ríkið féll frá hugsanlegum gengisgróða, en var tryggt með að verða ekki fyrir tjóni, hvernig sem færi.
Um það má vitanlega deila, hvort þessi leið hafi af ríkisvaldsins hálfu verið betri en önnur til að stuðla að framgangi byggingar stórvirkrar síldarverksmiðju á Suðurlandi, sem þá var talin nauðsynleg, en ég ætla, að hún hafi verið áhættuminnst fyrir ríkið.
Með byggingu slíkrar verksmiðju var náð því takmarki að tryggja svo síldarverksmiðjuafköst sunnanlands, að víst væri, að stórveiði í Faxaflóa eða Hvalfirði, ef til kæmi, hagnýttist í sem ríkustum mæli hér á staðnum.
Um einstök atriði þessarar lánveitingar til Faxaverksmiðjunnar liggja fullar upplýsingar í skjölum ráðuneytisins. Þess skal þó getið, að auðvitað var til þess ætlazt, að af hálfu verksmiðjunnar væri full trygging sett fyrir láninu eins og öðrum lánum, sem veitt voru innlendum aðilum af hinu ameríska láni.
Víst er, að með reynslu síldarársins mikla er Hvalfjörður fylltist af síld — að baki hefði það þótt mikið forsjárleysi af sérhverri ríkisstjórn, ef hún hefði torveldað þann stórhuga viðbúnað til móttöku veiði, er efnt var til með byggingu Faxaverksmiðjunnar, svo fremi nýtt síldarhlaup hefði komið næstu árin á eftir, en það illa eða ekki hagnýtzt sökum skorts á hæfilega stórum síldarverksmiðjum.
Jóhann Þ. Jósefsson.“
Þetta er sú grg., sem Jóhann Þ. Jósefsson óskaði eftir að kæmi hér fram, og hef ég þá lesið hana.